Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Setja upp útgreiðslur

Þessi síða er fyrir kerfisstjóra og ráðgjafa sem setja upp útgreiðslur í Bankakerfi. Þú setur upp númeraröð, mótreikninga, sjálfgefinn bankareikning, pörun við kröfur og stillingar fyrir erlendar greiðslur.

Tilgangur

Eftir uppsetninguna geta notendur búið til greiðslutillögur, greitt ógreiddar kröfur, sent greiðslur í bankann og bókað þær úr RdN Útgreiðslubók. Stillingarnar gilda fyrir alla lánardrottna nema annað sé valið á lánardrottnaspjaldinu.

Forsendur

  • Bankaþjónusta og notandi í bankanum eru sett upp.
  • Bankareikningurinn sem greitt er af er settur upp og tengdur bankanum.
  • Útgreiðslubók (sniðmát og bunki) er til.
  • Fjárhagsreikningar fyrir vexti, gjöld og vanskilagjöld eru til.

Heimildir

Þú þarft heimild til að breyta RdN Stillingar - Útgreiðslur, númeraröðum, lánardrottnum og bankareikningum.

Skref

Þú getur notað RdN Greiðslur - Uppsetning með hjálp, sem leiðir þig í gegnum skrefin Númeraröð, Reikningar, Valgreiðslukröfur, Afstemming og Annað, eða opnað RdN Stillingar - Útgreiðslur beint. Allir reitir eru útskýrðir í Stillingar útgreiðslna.

Uppsetning útgreiðslna með hjálp

Númeraröð og mótreikningar

  1. Opnaðu RdN Stillingar - Útgreiðslur.
  2. Veldu númeraröð í Númeraröð greiðslna.
  3. Veldu fjárhagsreikninga í Mótreikningur gjalda, Mótreikningur vaxta og Reikningur vanskilagjalds. Þeir eru notaðir þegar kostnaður á kröfu er settur í sérlínur. Án þeirra virkar aðgerðin Setja inn mismunalínur ekki.
  4. Kveiktu á Eitt fylgiskjalsnúmer á bók aðeins ef allar greiðslur eiga að fá sama fylgiskjalsnúmer.

Reikningar í uppsetningu með hjálp

Valkröfur

Valkröfur eru kröfur sem greiðandinn ræður sjálfur hvort hann greiðir.

  1. Kveiktu á Hlaða inn valkröfur ef valkröfur eiga að koma með þegar ógreiddar kröfur eru lesnar frá bankanum.
  2. Skráðu í Auðkenni valkrafna og Textalykill valkrafna auðkennið og textalykilinn sem merkja kröfu sem valkröfu.

Valgreiðslukröfur í uppsetningu með hjálp

Afstemming og annað

  1. Skráðu í Mesti mism. við jöfn. sölur. og Mesti mism. við jöfn. innkr. hve mikill mismunur má vera þegar greiðslur eru jafnaðar á móti reikningum.
  2. Veldu bankareikninginn sem oftast er greitt af í Sjálfgefinn bankareikningur.
  3. Kveiktu á Para greiðsluuppástungur við kröfur ef greiðslutillögur eiga að parast við ógreiddar kröfur í bankanum. Þá er krafan greidd í stað millifærslu.
  4. Kveiktu á Senda útgreiðslu á eindaga ef greiðslur eiga að fara í bankann sem framvirkar greiðslur sem greiðast á eindaga.
  5. Í Kennitölureitur lánadrottins velur þú reitinn á lánardrottnaspjaldinu sem geymir kennitöluna. Sjálfgefið er reitur 1, Nr., sem hentar ef númer lánardrottna eru kennitölur.

Annað í uppsetningu með hjálp

Erlendar greiðslur

  1. Leitaðu að RdN Greiðsluflokkar og veldu Fylla inn sjálfvirkt. Þá koma inn staðlaðir flokkar erlendra greiðslna.
  2. Á flipanum Erlendar greiðslur velur þú sjálfgefinn flokk í Sjálfg. flokkur erlendra greiðslna og skráir almenna vörulýsingu í Vörulýsing fyrir erlendar greiðslur.
  3. Kveiktu á Greiða kostnað viðtakanda af erlendum greiðslum ef fyrirtækið greiðir allan kostnaðinn.
  4. Kveiktu á Sækja kostnað erlendra greiðslna ef kostnaður bankans á að koma sem línur í bókina þegar staðan er athuguð. Veldu þá Mótreikningur kostnaðs erl. greiðslna og Bankareikningur kosnaðs erlendra greiðslna.
  5. Kveiktu á Senda kvittun á tölvupóstfang ef bankinn á að senda viðtakanda kvittun. Netfangið þarf að vera skráð á bankareikningi lánardrottins.

Á lánardrottnaspjaldi

Í Stillingar - RdN Útgreiðslur á lánardrottnaspjaldinu getur þú vikið frá pöruninni fyrir einn lánardrottin:

  • Nota sjálfgefnar stillingar fylgir stillingunni Para greiðsluuppástungur við kröfur.
  • Para greiðsluuppástungur við kröfur parar alltaf.
  • Ekki para kröfur við greiðsluuppástungur parar aldrei.
  • Aðeins greiða kröfur leyfir aðeins greiðslu krafna, ekki millifærslu.

Staðfesta

  • Búðu til greiðslutillögu í RdN Útgreiðslubók og athugaðu að línurnar fái bankareikning og stöðuna Ósend.
  • Veldu Athuga greiðslur áður en fyrsti bunkinn er sendur.
  • Ef eitthvað vantar sérð þú það þegar greiðslur eru sendar, sjá Aðstoð.