Senda kröfur sjálfvirkt með vinnsluröð
Kröfur sem verða til sjálfkrafa, við bókun eða með vinnsluröð, fara ekki í bankann fyrr en einhver velur Framkvæma aðgerðir. Vinnsluröðin RdN Perform Operations gerir það fyrir þig. Hún keyrir aðgerðatillögur á kröfubunkana, sendir allar biðaðgerðir í bankann og lokar bunkum sem ekkert bíður í. Ef kröfur eru stofnaðar sjálfkrafa er þetta mikilvægasta vinnsluröðin í Bankakerfinu.
Sviðsmynd
Dæmi ehf. stofnar kröfur við bókun sölureikninga. Innheimtufulltrúinn vill að nýjar kröfur, uppfærslur og niðurfellingar fari í bankann á hverjum degi án þess að hann opni kröfubunkana.
Áður en þú byrjar
- Kröfur eru stofnaðar og sendar handvirkt með Framkvæma aðgerðir án villu.
- Bankanotandi er skráður fyrir notandann sem keyrir vinnsluröðina.
- Þú hefur heimild til að breyta Stillingar - RdN Kröfur og stofna vinnsluraðarfærslur.
Skref fyrir skref
- Opnaðu Stillingar - RdN Kröfur og farðu í flýtiflipann Verkraðarfærslur - Aðgerðir krafa. Sjálfgefið sinnir vinnsluröðin aðeins opnum kröfubunkum. Til að ná líka til lokaðra bunka kveikirðu á Leyfa aðgerðatillögur á lokaðar kröfur. Með Sækja aðgerðatillögur á kröfur fram að dagsetningu: takmarkarðu þá við bunka sem voru stofnaðir þann dag eða síðar.
- Opnaðu Vinnsluraðarfærslur og stofnaðu færslu sem keyrir codeunit 10041507 (RdN Perform Operations).
- Ef vinnsluröðin á aðeins að sinna sjálfvirkum kröfubunkum skaltu setja færibreytuna
AUTO_ONLY. Sjálfvirkir bunkar verða til við bókun eða með vinnsluröðinni RdN Create Claims JOB. Handvirka bunka sendirðu þá með Framkvæma aðgerðir. - Veldu endurtekningu, til dæmis daglega síðdegis, og stilltu færsluna á Tilbúið. Ef RdN Create Claims JOB stofnar kröfurnar skaltu láta þessa vinnsluröð keyra á eftir henni.
Niðurstaða
Í hverri keyrslu fer vinnsluröðin yfir kröfubunkana og gerir þetta fyrir hvern þeirra:
- Keyrir aðgerðatillögur á kröfur sem eru hvorki greiddar, niðurfelldar né í milli- eða löginnheimtu. Kröfur sem hafa breyst fá Aðgerð Uppfæra eða Fella niður.
- Sendir allar biðaðgerðir í bankann, þar á meðal nýjar kröfur með Aðgerð Stofna. Kröfurnar birtast í heimabanka viðskiptamannanna.
- Lokar bunkanum þegar engin krafa í honum bíður stofnunar lengur.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
- Vinnsluraðarfærslan er í villu. Opnaðu hana og lestu villuna. Oftast tókst ekki að senda nýjar kröfur, til dæmis af því að bankanotandinn er ekki skráður. Lagaðu orsökina; næsta keyrsla sendir kröfurnar.
- Uppfærsla eða niðurfelling fór ekki í bankann, en vinnsluraðarfærslan er ekki í villu. Villur í þeim stöðva ekki vinnsluröðina. Opnaðu kröfuna og veldu Framkvæma aðgerðir til að sjá villuna.
- Krafa var ekki send. Athugaðu hvort bunkinn sé lokaður og Leyfa aðgerðatillögur á lokaðar kröfur
slökkt, eða hvort færibreytan
AUTO_ONLYsé sett og bunkinn handvirkur. - Tillaga sem þú hættir við fer samt í bankann. Vinnsluröðin keyrir tillögurnar aftur og sendir þær
án yfirferðar. Bunka sem þú vilt fara yfir fyrst skaltu stofna handvirkt, setja
AUTO_ONLYog senda þá með Framkvæma aðgerðir.
Öll skilaboð eru í Aðstoð.