Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Sækja og bóka kröfugreiðslur

Þegar viðskiptamaður greiðir kröfu í heimabankanum skráir bankinn greiðsluna. Bankakerfi sækir greiðslurnar í RdN Kröfugreiðslur, færir þær í inngreiðslubók og stingur upp á jöfnun á móti opnum færslum viðskiptamannsins. Þú bókar svo bókina eins og hverja aðra inngreiðslubók.

Sviðsmynd

Prófun hf. greiddi kröfu frá Dæmi ehf. í gær. Bókarinn hjá Dæmi ehf. sækir greiðslur gærdagsins á morgnana, færir þær í inngreiðslubókina, fer yfir línurnar og bókar.

Áður en þú byrjar

  • Kröfur eru settar upp og í flýtiflipanum Kröfugreiðslur eru Heiti bókarsniðmáts, Heiti bókarkeyrslu, Númeraröð greiðslna og fjárhagsreikningar fyrir vexti, gjöld og fjármagnstekjuskatt útfylltir.
  • Bankinn staðfestir greiðslur á miðnætti. Greiðsla sem var greidd í dag verður sýnileg eftir kl. 01:00 í nótt.

Skref fyrir skref

  1. Opnaðu RdN Kröfugreiðslur og veldu Sækja kröfugreiðslur frá banka.

  2. Veldu Bankareikningur og tímabil í Frá dags. og Til dags. og veldu Í lagi.

    Sækja kröfugreiðslur frá banka

    Greiðslurnar birtast í listanum. Krafan sem var greidd fær Staða kröfu Greidd, eða Hluta greidd ef aðeins hluti var greiddur.

    Kröfugreiðslur lesnar inn

  3. Ef einhver greiðsla á ekki að fara í bókina strax skaltu haka í Ekki hreyfa færslu á henni.

  4. Veldu Færa kröfugreiðslur í inngreiðslubók. Ef línur eru þegar í bókinni spyr kerfið hvort eigi að eyða þeim.

    Færa kröfugreiðslur í inngreiðslubók

  5. Opnaðu inngreiðslubókina sem er skráð í stillingum krafna og farðu yfir línurnar:

    • Hver greiðsla fær línu á viðskiptamanninn. Ef viðskiptamannafærslan er opin er jöfnun stungið upp á henni.
    • Ef greitt var með vanskilagjaldi, tilkynningagjaldi eða vöxtum fær hvert gjald tvær línur til viðbótar: eina á viðskiptamanninn og eina á fjárhagsreikninginn úr stillingunum.
    • Fjármagnstekjuskattur fer á Fjárhagsreikningur fjármagnstekjuskatts.
    • Bankalínan fær greiddu upphæðina að frádregnum fjármagnstekjuskatti.

    Inngreiðslubók með kröfugreiðslum

  6. Ef jöfnun vantar á línu, til dæmis af því að reikningurinn var þegar jafnaður á móti annarri færslu, skaltu jafna línuna handvirkt.

  7. Bókaðu bókina.

Niðurstaða

Greiðslurnar eru bókaðar á bankareikninginn og viðskiptamennina og opnu reikningarnir eru lokaðir. Í kröfugreiðslunum sýnir Bókað að færslan hefur verið bókuð. Bókaðar færslur getur þú svo fært í greiðslusafn.

Viðskiptamannafærslur eftir bókun

Ef eitthvað fer úrskeiðis

  • Greiðsla sem var greidd í dag kemur ekki. Bankinn staðfestir greiðslur á miðnætti. Sæktu hana aftur eftir kl. 01:00.
  • Greiðsla kröfu %1 var gerð áður en bókunardagsetning skjalsins. Viltu sleppa núverandi línu? Greiðslan er eldri en reikningurinn sem hún jafnast á móti. Veldu Já til að sleppa línunni og jafna hana handvirkt.
  • Færslum sleppt fyrir lokaðan viðskiptamann: %1 Viðskiptamaðurinn er lokaður og greiðslan fór ekki í bókina. Opnaðu viðskiptamanninn eða kveiktu á Leyfa bókun á lokaða viðskiptamenn.
  • Krafa var greidd en reikningurinn hafði verið kreditfærður. Bókaðu greiðsluna án jöfnunar og endurgreiddu viðskiptamanninum.

Öll skilaboð eru í Aðstoð.