Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Setja upp afstemmingu

Þessi síða er fyrir kerfisstjóra og ráðgjafa sem setja upp afstemmingu í Bankakerfi. Þú stofnar stillingar afstemmingar, tengir þær við bankareikninga, setur upp vörpun bankafærsluflokka á bókhaldslykla, bókun gengismunar og stillingar fyrir kreditkort.

Tilgangur

Eftir uppsetninguna getur bókari lesið inn færslur frá bankanum í RdN Afstemming, jafnað þær sjálfvirkt eða handvirkt, flutt bankafærslur í greiðslubók og bókað gengismun. Hver bankareikningur notar þær stillingar sem eru tengdar við hann, svo þú getur haft ólíkar reglur fyrir ólíka reikninga.

Forsendur

  • Bankaþjónusta og bankanotandi eru uppsett.
  • Bankareikningurinn er tengdur við bankann.
  • Númeraröð fyrir afstemmingu er til, til dæmis með upphafsgildinu AF000001.
  • Ef bóka á gengismun: sniðmát og keyrsla færslubókar eru til, og reikningar fyrir innleystan gengishagnað og gengistap eru fylltir út á gjaldmiðlunum.

Heimildir

Þú þarft heimild til að breyta Stillingar - RdN Afstemming, bankareikningum og númeraröðum.

Skref

Þú getur notað RdN Afstemming - Uppsetning með hjálp, sem leiðir þig í gegnum almennu stillingarnar og sjálfvirka afstemmingu, eða opnað Stillingar - RdN Afstemming beint. Allir reitir eru útskýrðir í Stillingar afstemmingar.

Uppsetning afstemmingar með hjálp

Stofna stillingar

  1. Leitaðu að RdN Listi afstemmingar stillinga og veldu Uppsetning með hjálp, eða stofnaðu nýja línu og opnaðu hana.
  2. Sláðu inn Kóði, til dæmis ALMENNT.
  3. Veldu númeraröð í Númeraröð afstemmingar. Hver jöfnun fær númer úr henni í Afstemming ID.
  4. Hafðu kveikt á Öruggur innflutningur yfirlits. Þá eru aðeins staðfestar færslur lesnar inn frá bankanum.
  5. Veldu bankareikning í Sjálfgefinn bankareikningur ef RdN Afstemming á að opnast með honum.

Stillingar afstemmingar

Sjálfvirk afstemming

  1. Sláðu inn í Mesti leyfilegi dagsetningamunur hversu marga daga bankafærsla og færsla í Business Central mega vera hvor frá annarri, til dæmis 3D. Sjálfgefið er 3D, sem nær yfir greiðslu á föstudegi sem bankinn bókar á mánudegi.
  2. Hafðu kveikt á Leyfa óöruggar uppástungur ef kerfið á að stinga upp á jöfnun þó að fleiri en ein bankafærsla komi til greina. Slökktu á því ef aðeins á að jafna þegar ein færsla passar.
  3. Kveiktu á Eitt jöfnunarnúmer á keyrslu ef allar jafnanir í einni keyrslu eiga að fá sama Afstemming ID.
  4. Kveiktu á Nota nýja afstemmingaraðferð ef sjálfvirk jöfnun á að nota hraðvirkari aðferðina.

Sjálfvirk afstemming í uppsetningu með hjálp

Bankafærslur fluttar í færslubók

Þessar stillingar gilda þegar bankafærslur eru fluttar í greiðslubók úr RdN Afstemming.

  1. Kveiktu á Eitt fylgiskjalsnúmer á bók ef allar línur eiga að fá sama fylgiskjalsnúmer.
  2. Kveiktu á Sleppa sjálfkrafa jöfnunarnúmeri á greiðslulínu ef kerfið á ekki að jafna innborgun viðskiptamanns sjálfkrafa á móti opinni færslu.
  3. Kveiktu á Hreinsa upphæð ef ekkert skjal til jöfnunar finnst ef línur sem ekki finnst skjal til að jafna á móti eiga að koma inn með auða upphæð.

Bankafærsluflokkar á bókhaldslykla

Bankinn merkir hverja færslu með flokkunarkóta. Með vörpun fara til dæmis bankagjöld beint á réttan bókhaldslykil þegar færslurnar eru fluttar í greiðslubók.

  1. Kveiktu á Tengja Bankaf.flokka við bókhaldslykla.
  2. Veldu töluna í Flokkunarkótar í bókhaldslykla varpanir. Síðan Bankaf.flokka í bókhaldslykla varpanir opnast.
  3. Sláðu inn Flokkunarkóti og Bókhaldslykill fyrir hvern flokk. Fylltu aðeins út Kenni greiðanda ef vörpunin á bara við um færslur frá einum greiðanda.

Vörpun bankafærsluflokka á bókhaldslykla

Gengismunur

  1. Veldu sniðmát í Sniðmát færslubókar fyrir gengismun.
  2. Veldu keyrslu í Keyrsla færslubókar fyrir gengismun.

Gengismunurinn er bókaður á reikning fyrir innleystan gengishagnað eða gengistap á gjaldmiðlinum.

Gengismunur í stillingum afstemmingar

Kreditkort

  1. Kveiktu á Sækja kreditkortaviðhengi ef sækja á kvittanir sem korthafar hafa skráð í bankanum.
  2. Veldu númeraraðir í Númeraröð innkaupareikninga og Númeraröð bókaðra innkaupareikninga ef innkaupareikningar úr kortafærslum eiga að fá aðrar númeraraðir en aðrir innkaupareikningar.
  3. Skráðu API-lykil fyrir bankann:
    • Arion banki: veldu Setja Arion API-lykil og skráðu lykilinn sem Rue de Net afhendir.
    • Landsbankinn: veldu Setja LI API-lykil og skráðu lykilinn. Þú stofnar kerfisaðgang og færð lykilinn í netbanka fyrirtækisins eða hjá Landsbankanum.
    • Íslandsbanki: enginn API-lykill. Bankanotandinn skráir sig inn með rafrænum skilríkjum á síðunni Þínir RdN bankanotendur.
  4. Athugaðu að Staða Arion API-lykils eða Staða LI API-lykils sé Uppsett.

Ekki skrifa API-lykla í lýsingar, athugasemdir eða skjöl.

Kreditkort í stillingum afstemmingar

Tengja stillingar við bankareikning

  1. Opnaðu bankareikningsspjaldið.
  2. Veldu stillingarnar í reitnum RdN Stillingar - Afstemming.
  3. Endurtaktu fyrir hvern bankareikning sem á að stemma af, líka bankareikninga kreditkorta.

Staðfesta

  • Opnaðu RdN Afstemming, veldu bankareikninginn og veldu Lesa inn færslur. Færslur frá bankanum birtast í Bankareikningshreyfingar (frá banka).
  • Veldu Keyra sjálfvirka jöfnun og athugaðu að kerfið birti fjölda jafnaðra færslna.
  • Ef Stillingar afstemmingar fundust ekki fyrir bankareikning %1 birtist er reiturinn RdN Stillingar - Afstemming auður á bankareikningnum. Sjá Aðstoð.