Bankakerfi
Bankakerfi Rue de Net er viðbót við Business Central sem tengir BC beint við íslensku bankana. Þú sendir kröfur á viðskiptamenn, sækir og bókar kröfugreiðslur, greiðir lánardrottnum og stemmir af bankareikninga án þess að fara í netbankann. Tengingin byggir á IOBS, íslenska sambankastaðlinum.
Yfirlit
Bankakerfi hentar íslenskum fyrirtækjum sem vilja vinna öll bankaverk í Business Central. Innheimtufulltrúar, bókarar og fjármálastjórar nota það í daglegu starfi, en kerfisstjóri eða ráðgjafi setur það upp einu sinni.
| Svið | Hvað þú gerir |
|---|---|
| Kröfur | Stofnar kröfur á bókaða reikninga, sendir þær í bankann, uppfærir þær, dreifir þeim og fellir niður. |
| Kröfugreiðslur | Sækir greiðslur á kröfum úr bankanum og bókar þær í inngreiðslubók, svo þær jafnast við viðskiptamannafærslur. |
| Útgreiðslur | Greiðir lánardrottnum innanlands og erlendis, greiðir kröfur úr netbanka og staðfestir bankareikninga. |
| Afstemming | Sækir bankafærslur og jafnar þær við bankareikningsfærslur í BC, sjálfvirkt eða handvirkt. |
| Kreditkort | Sækir kortafærslur, stemmir þær af og býr til innkaupareikninga úr þeim. |
| Gengi | Sækir gengi gjaldmiðla frá Seðlabanka Íslands, handvirkt eða í vinnsluröð. |
| BankDocs | Sendir reikninga og greiðsluseðla í bankann svo þeir birtist í netbanka viðskiptamanns. BankDocs er valfrjáls viðbót við Bankakerfi. |
Bankakerfi tengist Landsbankanum, Íslandsbanka, Arion banka og Kviku í gegnum fjárhagstengingar Rue de Net.
Hvernig þetta virkar
- Kerfisstjóri tengir BC við fjárhagstengingar, setur upp bankaþjónustu fyrir hvern banka og tengir bankareikningana. Hver notandi skráir sig hjá bankanum. Sjá Fyrstu skref.
- Innheimtufulltrúi stofnar kröfur á bókaða sölureikninga og sendir þær í bankann. Kröfurnar birtast í netbanka viðskiptamannsins. Sjá Stofna kröfur og senda í banka.
- Þegar viðskiptamaður greiðir sækir bókari kröfugreiðslurnar og bókar þær. Greiðslan jafnast sjálfkrafa við reikninginn. Sjá Sækja og bóka kröfugreiðslur.
- Bókari býr til greiðslutillögu til lánardrottna, fjármálastjóri fer yfir hana og greiðslurnar eru sendar í bankann og bókaðar. Sjá Greiða lánardrottnum með millifærslu.
- Bókari les inn bankafærslur og lætur kerfið jafna þær við færslur í BC. Sjá Stemma af bankareikning.
Vinnsluröðin getur stofnað kröfur, sótt kröfugreiðslur og sótt gengi sjálfkrafa.
Ávinningur
Þú þarft ekki að flakka á milli netbanka og bókhalds. Kröfugreiðslur eru ekki slegnar inn og ekki jafnaðar handvirkt, greiðslur til lánardrottna fara beint úr BC og staðan í BC endurspeglar stöðuna í bankanum. Það sparar tíma, fækkar villum og auðveldar innheimtu.