Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Lesa kröfur frá banka

Þegar fyrirtæki byrjar að nota Bankakerfi eru oft kröfur í bankanum sem voru stofnaðar í eldra kerfi. Með því að lesa þær inn í kröfubunka geturðu fylgt þeim eftir, sótt greiðslur á þær og uppfært þær eða fellt niður úr Business Central eins og aðrar kröfur.

Sviðsmynd

Dæmi ehf. tók Bankakerfi í notkun 1. mars. Kröfur sem voru stofnaðar í febrúar í gamla kerfinu eru enn opnar í bankanum. Innheimtufulltrúinn les þær inn svo greiðslur á þær bókist rétt.

Áður en þú byrjar

  • Bankareikningurinn er settur upp fyrir Bankakerfi með sama innheimtuauðkenni og kröfurnar voru stofnaðar með.
  • Notaðu sérstakan kröfubunka fyrir innlesnu kröfurnar, svo þær blandist ekki nýjum kröfum.

Skref fyrir skref

  1. Stofnaðu nýjan kröfubunka á RdN Kröfubunkar og veldu bankareikninginn í Innheimtuaðili.

  2. Veldu Lesa kröfur frá banka.

    Aðgerðin Lesa kröfur frá banka

  3. Í RdN Sækja allar kröfur skaltu skrá Dagsetning frá og Dagsetning til. Kerfið sækir kröfur sem voru stofnaðar á tímabilinu, bæði ógreiddar, greiddar og niðurfelldar.

    Dagsetningar fyrir innlestur krafna

  4. Veldu Í lagi. Kerfið sýnir hve margar kröfur voru lesnar inn af hverri stöðu.

Niðurstaða

Nýjar kröfur eru í kröfubunkanum með Samskipta staða Send, því þær eru þegar til í bankanum, og Staða kröfu eins og bankinn skráir hana. Ef krafa með sama númeri og gjalddaga er þegar til í Business Central er hún ekki stofnuð aftur heldur er staða hennar uppfærð. Þú getur fylgt kröfunum eftir, uppfært þær og fellt þær niður eins og aðrar kröfur.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

  • Ekki fannst vefþjónustu … fyrir bankareikning %1 Bankareikningurinn í Innheimtuaðili er ekki tengdur bankaþjónustu. Sjá Bankaþjónustur.
  • Engar kröfur koma inn. Athugaðu dagsetningarnar og að Innheimtuaðili sé bankareikningurinn sem kröfurnar voru stofnaðar á.

Öll skilaboð eru í Aðstoð.