Uppfæra kröfu
Eftir að krafa hefur verið send í bankann geturðu breytt eindaga hennar og sent uppfærsluna. Breytingin nær ekki inn í bankann fyrr en aðgerðin hefur verið framkvæmd. Gjalddaga er ekki hægt að breyta eftir að krafan hefur verið send.
Sviðsmynd
Prófun hf. hefur samið við Dæmi ehf. um tveggja vikna frest á kröfu. Innheimtufulltrúinn færir eindagann aftur um 14 daga svo vanskilagjald og dráttarvextir reiknist ekki fyrr en þá.
Áður en þú byrjar
- Krafan hefur Samskipta staða Send. Ósendri kröfu breytirðu beint í bunkanum.
- Ef breyta þarf upphæð kröfu vegna greiðslu eða kreditreiknings skaltu nota Aðgerðatillögur. Þær bera kröfuna saman við viðskiptamannafærslurnar.
Skref fyrir skref
-
Opnaðu kröfuna á RdN Kröfuspjald.
-
Breyttu Eindagi í flýtiflipanum Staða kröfu.

-
Veldu Uppfæra Kröfur. Ef kerfið spyr Viltu örugglega uppfæra kröfuna? skaltu svara játandi. Aðgerð kröfunnar verður Uppfæra.

-
Veldu Framkvæma aðgerðir til að senda uppfærsluna í bankann. Ef kveikt er á Framkvæma aðgerð strax í stillingum krafna fer hún strax og þetta skref fellur niður.
Til að uppfæra margar kröfur í einu skaltu merkja þær í kröfubunkanum og velja Uppfæra valdar kröfur, eða á RdN Vinnuskjal krafna og velja Uppfæra Kröfur.
Niðurstaða
Bankinn hefur nýja eindagann og viðskiptamaðurinn sér hann í heimabankanum. Aðgerð kröfunnar er aftur tóm og Samskipta staða er Send.
Ef þú valdir aðgerð fyrir mistök geturðu valið Hætta við valda aðgerð á kröfuspjaldinu, eða Hætta við valdar aðgerðir í bunkanum, áður en aðgerðin er send. Þá breytist ekkert í bankanum.
Næsta skref er að fylgja kröfunni eftir.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
- Ekki er hægt að breyta gjaldaga á kröfu sem hefur verið stofnuð í banka. Vinsamlegast fellið kröfuna niður og stofnið nýja Gjalddagi er fastur eftir að krafan er send. Breyttu eindaganum, eða felldu kröfuna niður og stofnaðu nýja.
- Krafa hefur ekki enn verið stofnuð Krafan hefur ekki verið send í bankann. Sendu hana fyrst með Framkvæma aðgerðir.
Öll skilaboð eru í Aðstoð.