Setja upp kröfur
Þessi síða er fyrir kerfisstjóra og ráðgjafa sem setja upp kröfur í Bankakerfi. Þú setur upp númeraraðir, sjálfgefinn bankareikning, dagsetningar og gjöld krafna og inngreiðslubókina sem kröfugreiðslur fara í.
Tilgangur
Eftir uppsetninguna geta notendur stofnað kröfur á sölureikninga, sent þær í bankann og bókað greiðslurnar. Stillingarnar hér gilda fyrir allar kröfur nema annað sé sett í innheimtuauðkenni eða viðskiptamannastillingum. Kröfur fara sjálfgefið í bankann. Ef fyrirtækið lætur Gjaldskil sjá um þær, sjá Innheimta kröfur í gegnum Gjaldskil.
Forsendur
- Bankaþjónusta og bankanotandi eru sett upp.
- Bankareikningurinn sem innheimtir kröfurnar er settur upp með kennitölu, útibúi, kröfuhöfuðbók og innheimtuauðkenni frá bankanum.
- Inngreiðslubók (bókarsniðmát og bókarkeyrsla) er til fyrir kröfugreiðslur.
- Fjárhagsreikningar fyrir vexti, gjöld og fjármagnstekjuskatt eru til.
Heimildir
Þú þarft heimild til að breyta Stillingar - RdN Kröfur, númeraröðum og bankareikningum.
Skref
Þú getur notað RdN Kröfur - Uppsetning með hjálp sem leiðir þig í gegnum sömu reiti, eða opnað Stillingar - RdN Kröfur beint. Allir reitir eru útskýrðir í Stillingar krafna.

Kröfugerð
- Opnaðu Stillingar - RdN Kröfur.
- Veldu númeraröð í Kröfu Númeraröð. Kröfunúmerið fer í bankann og verður að vera 6 stafir,
til dæmis frá
000001til999999. - Veldu númeraröð í Kröfubunka nr.röð. Hún má vera hvernig sem er.
- Veldu bankareikninginn sem innheimtir kröfurnar í Innheimtuaðili. Nýir kröfubunkar fá hann.
- Settu gjöld í Tilkynningagjald og Annar kostnaður ef þau eiga að leggjast á kröfur, til dæmis seðilgjald.
- Fylltu út dagsetningarreitina, sjá Dagsetningar á kröfum.
- Kveiktu á Hlutagreiðsla leyfileg sjálfkrafa ef viðskiptamenn mega greiða hluta kröfu.
- Settu Lágmarks upphæð kröfu ef ekki á að stofna kröfur fyrir lágar upphæðir.
- Skráðu texta í Athugasemd á greiðsluseðli ef hann á að birtast á greiðsluseðlum.

Kröfugreiðslur
- Veldu inngreiðslubókina í Heiti bókarsniðmáts og Heiti bókarkeyrslu.
- Veldu Númeraröð greiðslna. Ef fylgiskjöl fjármagnstekjuskatts eiga að fá aðra númeraröð skaltu velja hana í Númeraröð fjármagns.
- Veldu fjárhagsreikninga í Fjárhagsreikningur vaxta, Fjárhagsreikningur gjalda og Fjárhagsreikningur fjármagnstekjuskatts.
- Kveiktu á Eitt fylgiskjalsnúmer á bók aðeins ef allar greiðslur eiga að fá sama fylgiskjalsnúmer. Það er sjaldgæft.
- Kveiktu á Lýsing færslu inniheldur tegund greiðslu ef lýsing línanna á að sýna hvort um innborgun, vexti eða gjöld er að ræða.

Sjálfvirkni
Ef kröfur eiga að verða til við bókun sölureiknings, sjá Stofna kröfur sjálfkrafa við bókun. Ef sækja á kröfugreiðslur sjálfkrafa, sjá Sækja kröfugreiðslur sjálfvirkt.
Staðfesta
- Stofnaðu kröfubunka og athugaðu að hann fái númer og Innheimtuaðila.
- Myndaðu fyrstu kröfuna og athugaðu gjalddaga, eindaga og gjöld á kröfuspjaldinu áður en þú sendir hana í bankann.
- Ef eitthvað vantar sérðu það þegar kröfur eru sendar, sjá Aðstoð.