Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Bankareikningur

Bankakerfi notar bankareikninga Business Central. Til að reikningur geti talað við bankann þarf hann að vera tengdur bankaþjónustu og með kennitölu fyrirtækisins. Reikningar sem eru notaðir fyrir kröfur þurfa líka innheimtuauðkenni og kröfuhöfuðbók.

Tilgangur

Þegar bankareikningurinn er settur upp getur þú sótt færslur af honum, stofnað kröfur á hann og greitt af honum. Hægt er að stofna reikninginn með flýtiuppsetningu eða setja Bankakerfi upp á reikningi sem er þegar til.

Forsendur

  • Bankaþjónusta er til fyrir bankann.
  • Bókunarflokkur bankareikninga er til.
  • Ef reikningurinn er notaður fyrir kröfur hefur þú fengið innheimtuauðkenni frá bankanum.

Heimildir

Þú þarft heimild til að stofna og breyta bankareikningum.

Skref

Stofna nýjan bankareikning

  1. Opnaðu skrefið Yfirlit reikninga í uppsetningu með aðstoð og veldu Búa til bankareikning. Þá opnast RdN Bankareikningar Flýtiuppsetning.
  2. Skráðu númer og heiti reikningsins.
  3. Skráðu reikningsnúmerið í þremur hlutum: Útibú (fjórir tölustafir), Höfuðbók (tveir tölustafir) og Reikningsnr. (sex tölustafir). Bættu núllum framan við ef númerið er styttra.
  4. Veldu Bókunarflokkur. Ef bókunarflokkurinn er tengdur fjárhagsreikningi sem leyfir beinar færslur varar kerfið þig við, því það getur valdið vandræðum í afstemmingu.
  5. Fylltu út kennitölu fyrirtækisins, bankaþjónustu og, ef reikningurinn er notaður fyrir kröfur, innheimtuauðkenni, kröfuhöfuðbók og vanskilastillingar.

Flýtiuppsetning bankareikninga

Ef reikningurinn er ekki í íslenskum krónum skaltu velja gjaldmiðilinn á flipanum Bókun á bankareikningsspjaldinu.

Setja Bankakerfi upp á reikningi sem er til

  1. Opnaðu bankareikningsspjaldið og veldu Uppsetning Bankakerfis. Þá opnast RdN Bankareikningur.

    Bankareikningsspjald

  2. Fylltu út flipann Samskipti:

    ReiturHvað hann gerir
    KennitalaKennitala fyrirtækisins sem á reikninginn. Bankinn notar hana í B2B-samskiptum.
    Uppsetning bankaþjónustuBankaþjónustan sem reikningurinn talar við. Án hennar getur reikningurinn ekki talað við bankann.
    Sjálfgefið innheimtuauðkenniÞriggja stafa kóði frá bankanum sem merkir kröfur fyrirtækisins. Sjá Innheimtuauðkenni.
    KröfuhöfuðbókHöfuðbók krafna í bankanum, oftast 66.
  3. Ef reikningurinn er notaður fyrir kröfur skaltu fylla út vanskilavexti og vanskilagjöld á flipanum Almennt. Sjá Vextir og vanskilagjald.

  4. Ef reikningurinn á að nota aðrar afstemmingarstillingar en sjálfgefnar skaltu velja þær í RdN Stillingar - Afstemming. Sjá Setja upp afstemmingu.

RdN Bankareikningur

Staðfesta

  • Í skrefinu Yfirlit reikninga í uppsetningu með aðstoð er hakað við reikninginn. Það þýðir að lágmarksuppsetning er útfyllt.
  • Veldu Staðfesta tilvist bankareiknings á bankareikningsspjaldinu. Kerfið spyr bankann og sýnir Tilvist bankareiknings staðfest. Sjá Staðfesta bankareikning.

Öll skilaboð eru í Aðstoð.