Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Afstemming

RdN Afstemming er síðan þar sem þú stemmir af bankareikninga og kreditkort. Efst eru bankafærslur frá bankanum og neðst bankareikningsfærslur í Business Central. Þú jafnar þær saman og hver jöfnun fær Afstemming ID.

Yfirlit

Þú opnar síðuna með leit að RdN Afstemming. Hún opnast með Sjálfgefinn bankareikningur úr stillingum afstemmingar. Síðan er notuð í Stemma af bankareikning, Jafna færslur handvirkt, Flytja bankafærslur í greiðslubók, Jafna upphafsfærslur, Bóka gengismun og Stemma af kreditkort.

RdN Afstemming

Reitir og hlutar

Reitur eða hlutiHvað hann sýnir
BankareikningurBankareikningurinn sem er stemmdur af. Stillingar afstemmingar verða að vera tengdar við hann.
DagsetningarafmörkunAfmarkar báða hlutana við tímabil.
Bankareikningshreyfingar (frá banka)Færslur sem hafa verið lesnar inn frá bankanum.
Bankareikningshreyfingar (í NAV)Bankareikningsfærslur í Business Central.
MarkaðHak í hvorum hluta. Merktar færslur eru jafnaðar saman.
Summa merktra færslnaSumma merktra færslna í hvorum hluta.
Heildarsumma merktra færslnaMismunurinn á merktum færslum hlutanna tveggja. Verður að vera 0 til að staðfesta jöfnun.
Afstemming IDNúmer jöfnunar. INIT þýðir að færslan var upphafsjöfnuð.
Stofna innkaupareikning, Búa til færslubókarlínu og Nr. innkaupareikningsÁ kortafærslum: hvort stofna á innkaupareikning sjálfkrafa, hvort flytja á færsluna sjálfkrafa í færslubók (vörpun á fjárhagslykil eða bankareikning) og númer reikningsins sem var stofnaður.
RdN KreditkortaviðhengiUpplýsingareitur með kvittun valinnar kortafærslu. Opna viðhengi sýnir hana í fullri stærð.

Aðgerðir

AðgerðHvað hún gerir
Lesa inn færslurLes inn færslur frá bankanum fyrir valið tímabil. Fyrir kreditkort eru kortafærslur lesnar inn.
Stinga uppá jöfnun (Shift+F11)Merkir eina bankafærslu og eina færslu í Business Central sem passa saman.
Ógilda uppástunguTekur merkin af og kerfið stingur ekki aftur upp á sömu pörun.
Staðfesta jöfnun (F9)Jafnar merktu færslurnar ef summurnar eru jafnar.
Afturkalla jöfnunGerir allar færslur með sama Afstemming ID ójafnaðar aftur.
Keyra sjálfvirka jöfnunJafnar allar færslur sem passa saman á upphæð og dagsetningu.
Keyra sjálfvirka jöfnun fyrir afmarkað tímabilSama fyrir valið tímabil.
Flytja í greiðslubók og Flytja markað í greiðslubókFlytur allar ójafnaðar eða merktar bankafærslur í færslubók.
Bóka gengismun og Sjálfvirk bókun á gengismunBókar mismun vegna gengis á greiðslum í erlendum gjaldmiðli.
Jafna upphafsfærslurMerkir eldri færslur jafnaðar með Afstemming ID INIT.
Sýna skjalOpnar bókaða innkaupareikninginn sem valin færsla í Business Central vísar á.
Afmarka á jafnaðar færslur, Afmarka á jafnaðar færslur í dag og Afmarka á valda jöfnunSýnir jafnaðar færslur, færslur jafnaðar í dag eða færslur í sömu jöfnun og valin færsla.
Merkja valdar línurMerkir allar valdar línur í hlutanum.
Stofna innkaupareikning fyrir merktar línur, Stofna innkaupareikninga fyrir sjálfvirkar línur og KreditkortavörpunAðgerðir fyrir kortafærslur. Línur sem varpast á fjárhagslykil eða bankareikning eru fluttar í færslubók. Sjá Stofna innkaupareikninga úr kortafærslum.