Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Uppsetning bankakerfis með aðstoð

Þessi síða er fyrir kerfisstjóra og ráðgjafa sem setja Bankakerfi upp í fyrsta sinn. Uppsetning með aðstoð leiðir þig í gegnum allar grunnstillingar í einu ferli og sýnir að lokum samantekt yfir það sem er klárt og það sem vantar.

Tilgangur

Eftir uppsetninguna getur Business Central talað við bankann: bankareikningar eru tengdir bankaþjónustu, notendur eru skráðir í bankann og grunnstillingar fyrir kröfur, útgreiðslur og afstemmingu eru til. Hver stilling er líka til á sinni eigin síðu, svo þú getur breytt henni síðar án þess að fara aftur í gegnum ferlið.

Forsendur

  • Bankakerfi er sett upp og fyrirtækið er með leyfi frá Rue de Net.
  • Þú hefur fengið API-lykil, nafn búnaðarskilríkis og slóð á fjárhagstengingar frá Rue de Net.
  • Fyrirtækið er með B2B-aðgang í hverjum banka sem það skiptir við.
  • Fjárhagsreikningar fyrir vexti, gjöld, vanskilagjöld og fjármagnstekjuskatt eru til.

Heimildir

Þú þarft heimild til að breyta stillingum Bankakerfis, bankareikningum, númeraröðum og bókarsniðmátum.

Skref

Opnaðu Uppsetning með aðstoð og veldu Setja upp Bankakerfi Rue de Net. Gögnin vistast jafnóðum, svo þú getur hætt hvenær sem er og haldið áfram síðar.

Upphafssíða uppsetningar

  1. Velkomin. Veldu Næsta. Ef uppsetningu er þegar lokið og þú þarft aðeins að skrá þinn eigin bankanotanda skaltu haka við Einungis búa til tengingar. Þá ferð þú beint í skráningu bankanotanda.

  2. Fjárhagstengingar. Skráðu Nafn búnaðarskilríkis og Slóð á fjárhagstengingar og veldu Skrá API lykil. Sjá Fjárhagstengingar.

    Fjárhagstengingar í uppsetningu

  3. Yfirlit reikninga. Hér eru allir bankareikningar. Hakið sýnir hvort reikningurinn er nógu vel settur upp til að tala við bankann. Veldu Búa til bankareikning til að bæta við reikningi, eða veldu reikning til að opna RdN Bankareikningar Flýtiuppsetning. Sjá Bankareikningur.

    Yfirlit reikninga

  4. Kröfur númeraseríur. Veldu Búa til númeraseríu til að búa til númeraraðir fyrir kröfubunka og kröfur, eða veldu númeraraðir sem til eru.

  5. Kröfugreiðslur stillingar. Veldu Innheimtureikningur og hvort kröfur leyfi hlutagreiðslu, bæti við reikningsgjaldi og séu stofnaðar eða lesnar inn sjálfkrafa.

  6. Kröfudagsetningar. Skráðu Útreikningur eindaga frá gjalddaga og Niðurfellingardagur sem dagsetningarformúlu, til dæmis 2D eða 48M.

  7. Kröfugreiðslubækur. Veldu bókarsniðmát og bókarkeyrslu fyrir kröfugreiðslur.

  8. Kröfureikningur. Veldu Fjárhagsreikningur vaxta, Fjárhagsreikningur gjalda og Fjármagnstekjuskattur. Þessir reikningar eru notaðir þegar kröfugreiðslur eru færðar í inngreiðslubók. Sjá Setja upp kröfur.

  9. Útgreiðslur. Veldu Búa til númeraseríu eða númeraröð í Númerasería útgreiðslubókar, veldu Sjálfgefinn bankareikningur og hvort greiðslur parast við kröfur.

  10. Greiðslur - Mótreikningar. Veldu Mótreikningur gjalda, Mótreikningur vaxta og Reikningur vanskilagjalds. Sjá Setja upp útgreiðslur.

  11. Afstemming. Veldu Búa til númeraseríu eða númeraröð í Númeraröð afstemmingar og skráðu Dagsetningamunur í afstemmingu, til dæmis 3D. Sjá Setja upp afstemmingu.

  12. Búa til B2B bankanotanda. Veldu bankana sem fyrirtækið skiptir við, skráðu B2B-notandanafn og lykilorð fyrir hvern banka og veldu Skrá notanda. Aðrir notendur skrá sig síðar á síðunni Þínir RdN bankanotendur. Sjá Bankanotendur.

    Skrá bankanotanda

  13. Lokið. Farðu yfir samantektina og veldu Lokið.

Staðfesta

Samantektin í síðasta skrefi sýnir stöðu hvers hluta:

  • ✔ merkir að hlutinn er útfylltur, til dæmis ✔ Tenging við bankavefþjónstu heppnaðist eða ✔ Uppsetning á kröfum fullkláruð.
  • ✖ merkir að eitthvað vantar, til dæmis ✖ Enginn bankareikningur getur talað við banka.
  • ⚊ merkir að tenging við banka var ekki valin.

✔ þýðir aðeins að reitirnir eru útfylltir, ekki að gildin séu rétt. Prófaðu því tenginguna á síðunni Stillingar - RdN Fjárhagstengingar Cloud og sæktu bankafærslur eða ógreiddar kröfur til að staðfesta að allt virki.

Samantekt

Öll skilaboð eru í Aðstoð.