Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Greiða kröfur úr netbanka

Margir lánardrottnar senda reikninga sína sem kröfur sem birtast í netbanka fyrirtækisins. Í stað þess að greiða þær í netbankanum sækir þú þær inn í RdN Útgreiðslubók, greiðir þær þaðan og bókar greiðsluna á móti innkaupareikningnum.

Sviðsmynd

Prófun hf. sendir Dæmi ehf. kröfu í hverjum mánuði fyrir húsaleigu. Bókarinn sækir allar ógreiddar kröfur með eindaga í vikunni, greiðir þær og bókar. Ein krafan er komin fram yfir eindaga og ber dráttarvexti, sem bókast á sérstakan reikning.

Áður en þú byrjar

  • Mótreikningur gjalda og Mótreikningur vaxta eru fylltir út í stillingum útgreiðslna. Án þeirra getur kerfið ekki búið til línur fyrir gjöld og vexti.
  • Lánardrottinn er skráður með sömu kennitölu og kröfuhafinn.

Skref fyrir skref

Sækja ógreiddar kröfur

  1. Opnaðu RdN Útgreiðslubók og veldu bunka og bankareikning.

  2. Veldu Lesa ógreiddar kröfur frá banka og svaraðu Lesa inn kröfur frá bankanum? játandi.

    Aðgerðin Lesa ógreiddar kröfur frá banka

  3. Fylltu út Eindagi frá og Eindagi til. Fylltu út Nr. lánardrottins ef þú vilt aðeins greiða kröfur eins lánardrottins.

    Sækja ógreiddar kröfur

  4. Kerfið spyr Fá sjálvirkar mismunalínur? Svaraðu játandi ef gjöld og dráttarvextir eiga að fá sínar eigin línur. Þá birtist %1 nýjar greiðslulínur búnar til.

  5. Farðu yfir línurnar. Aðferð greiðslu er Krafa og kröfunúmerið er í Kröfunúmer. Kröfulína sem hefur ekki verið jöfnuð á móti innkaupareikningi er auðkennd. Jafnaðu hana með Jafna færslur.

    Ógreiddar kröfur í útgreiðslubók

  6. Veldu Senda bunka í banka, síðan Athuga stöðu bunka og loks Bóka, eins og í Greiða lánardrottnum með millifærslu.

Para millifærslu við kröfu

Ef lánardrottinn hefur bæði sent reikning og kröfu getur þú greitt kröfuna í stað þess að millifæra.

  1. Veldu lánardrottnalínu þar sem Aðferð greiðslu er Millifærsla.
  2. Veldu Para við kröfu. Listinn RdN Ógreiddar kröfur opnast með kröfum úr bankanum.
  3. Veldu kröfuna. Bankareikningslínunni er skipt út fyrir kröfuna og lánardrottnalínan fær gjalddaga, eindaga og bókunardagsetningu kröfunnar.

Ef kveikt er á Para greiðsluuppástungur við kröfur gerir Greiðslutillögur til lánardr. þetta sjálfkrafa þegar krafa finnst fyrir sama reikning, með sama gjalddaga og sömu upphæð.

Niðurstaða

Kröfurnar eru greiddar í bankanum og hverfa úr netbankanum. Greiðslan er bókuð á móti innkaupareikningnum og gjöld og vextir á mótreikningana úr stillingunum.

Næsta skref er að greiða lánardrottnum.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

  • Mótreikningur tekn./kost. vantar í uppsetningu innheimtukerfis Mótreikningur gjalda eða Mótreikningur vaxta vantar í stillingar útgreiðslna.
  • Það er aðeins leyfilegt að greiða kröfur fyrir þennan lánadrottinn Lánardrottinn er stilltur á Aðeins greiða kröfur. Millifærslulínan fær stöðuna Á villu. Eyddu henni og sæktu kröfuna.
  • Ef eindagi kröfunnar er eftir Síðasti greiðsludagur í greiðslutillögunni kemur hvorki krafa né millifærsla fyrir reikninginn í bókina. Veldu seinni dagsetningu eða sæktu kröfuna seinna.
  • Para við kröfu er óvirkt nema á lánardrottnalínu með Millifærsla.

Öll skilaboð eru í Aðstoð.