Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Aðgerðatillögur á kröfur

Krafa byggir á viðskiptamannafærslum. Ef færslunum er breytt eftir að krafan var send, til dæmis með millifærslu eða kreditreikningi, passar krafan í bankanum ekki lengur. Aðgerðatillögur bera kröfurnar saman við færslurnar og velja rétta aðgerð. Þú getur keyrt þær handvirkt eða látið vinnsluröð keyra þær og senda aðgerðirnar.

Sviðsmynd

Prófun hf. greiddi helming af einum reikningi með millifærslu og annan reikning að fullu. Innheimtufulltrúi Dæmi ehf. jafnaði greiðslurnar á reikningana. Nú þarf að lækka fyrri kröfuna og fella þá síðari niður, og hann vill að kerfið finni þær.

Áður en þú byrjar

  • Greiðslur og kreditreikningar hafa verið bókaðir og jafnaðir á móti reikningunum sem kröfurnar byggja á.
  • Fyrir vinnsluröð þarftu heimild til að stofna vinnsluraðarfærslur.

Skref fyrir skref

Handvirkt

  1. Opnaðu kröfubunkann, eða RdN Vinnuskjal krafna til að ná yfir alla bunka.

  2. Veldu Aðgerðatillögur á kröfubunka. Á einni kröfu velurðu Aðgerðatillögur á kröfu á kröfuspjaldinu.

    Aðgerðatillögur á vinnuskjali krafna

  3. Farðu yfir tillögurnar í dálkinum Aðgerð:

    • Uppfæra þegar eftirstöðvar færslnanna hafa breyst. Upphæð kröfunnar er lagfærð.
    • Fella niður þegar eftirstöðvarnar eru orðnar 0.
  4. Ef tillaga á ekki við skaltu velja Hætta við valdar aðgerðir fyrir þá kröfu.

  5. Veldu Framkvæma aðgerðir til að senda aðgerðirnar í bankann.

Sjálfvirkt með vinnsluröð

Vinnsluröðin RdN Perform Operations keyrir aðgerðatillögurnar og sendir aðgerðirnar sjálfkrafa. Sjá Senda kröfur sjálfvirkt með vinnsluröð.

Niðurstaða

Kröfurnar í bankanum passa við eftirstöðvar viðskiptamannafærslnanna. Uppfærðar kröfur hafa nýja upphæð og niðurfelldar kröfur hverfa úr heimabanka viðskiptamannsins. Vinnsluröðin sendir líka allar aðrar biðaðgerðir, þar á meðal nýjar kröfur sem bíða stofnunar, og lokar bunka þegar engin krafa í honum bíður stofnunar lengur.

Næsta skref er að fylgja eftir kröfum.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

  • Engin tillaga kemur þótt greiðsla hafi borist. Athugaðu að greiðslan hafi verið jöfnuð á móti reikningnum. Ójöfnuð greiðsla breytir ekki eftirstöðvum reikningsins.
  • Vinnsluröðin sinnir ekki eldri kröfum. Lokaðir bunkar eru aðeins með ef kveikt er á Leyfa aðgerðatillögur á lokaðar kröfur.

Öll skilaboð eru í Aðstoð.