Greiða lánardrottnum með millifærslu
Í RdN Útgreiðslubók býrðu til greiðslur til lánardrottna, sendir þær í bankann og bókar þær þegar bankinn hefur staðfest þær. Greiðslurnar jafnast á móti innkaupareikningunum, svo þú þarft ekki að skrá þær aftur í heimabankanum.
Sviðsmynd
Gjaldkeri Dæmi ehf. greiðir reikninga lánardrottna einu sinni í viku. Hún lætur kerfið leggja til greiðslur á öllum reikningum sem eru komnir á gjalddaga, fer yfir tillöguna, sendir hana í bankann og bókar þegar bankinn hefur staðfest greiðslurnar.
Áður en þú byrjar
- Útgreiðslur eru settar upp og bankareikningurinn sem greitt er af er tengdur bankanum.
- Lánardrottinn er með kennitölu og bankareikning (banki, höfuðbók og reikningsnúmer, samtals 12 stafir). Þú getur staðfest bankareikninginn áður en þú greiðir.
- Innkaupareikningarnir eru bókaðir.
Skref fyrir skref
-
Opnaðu RdN Útgreiðslubók og veldu bunka og bankareikning efst á síðunni.
-
Veldu Greiðslutillögur til lánardr.

-
Fylltu út Síðasti greiðsludagur. Kerfið leggur til greiðslu á reikningum sem eru á gjalddaga á eða fyrir þann dag. Bókunardagsetning er dagurinn í dag og Upphafsnúmer skjals kemur úr númeraröð bókarinnar.
-
Afmarkaðu ef þú vilt, til dæmis á einn lánardrottin eða á kóta greiðslumáta, og veldu Í lagi.

-
Farðu yfir línurnar. Hver greiðsla fær lánardrottnalínu og bankareikningslínu með Aðferð greiðslu Millifærsla og Staða Ósend. Þú getur eytt eða breytt línum á meðan þær eru ósendar. Ef lánardrottinn hefur sent kröfu fyrir sama reikning getur kerfið greitt kröfuna í staðinn, sjá Greiða kröfur úr netbanka.

-
Veldu Athuga greiðslur. Kerfið athugar til dæmis bókunardagsetningu, upphæðir og bankaupplýsingar og birtir Greiðslur eru gildar og tilbúnar til sendingar ef allt er í lagi.
-
Veldu Senda bunka í banka og svaraðu Senda greiðslur í banka? játandi. Línurnar fá stöðuna Send í banka. Senda bunka í banka (Ein færsla) sendir greiðslurnar sem eina færslu út af reikningnum.

-
Ef bankinn krefst tvöfaldrar staðfestingar skaltu staðfesta bunkann í heimabankanum.
-
Veldu Athuga stöðu bunka. Greiðslur sem bankinn hefur tekið við fá stöðuna Staðfest frá banka. Ef mikið álag er á bankanum getur það tekið smá stund.

-
Þegar allar línur eru Staðfest frá banka velur þú Bóka. Kerfið spyr hvort það eigi að endurnúmera fylgiskjölin áður en bókað er.

Ef þú greiðir sömu greiðslurnar reglulega getur þú vistað bókina með Vista greiðslubók og sótt hana aftur með Lesa inn greiðslubók.
Niðurstaða
Greiðslurnar eru bókaðar og jafnaðar á móti innkaupareikningunum, sem lokast. Bankareikningsfærslan sýnir hvort greitt var með millifærslu eða kröfu.

Ef eitthvað fer úrskeiðis
- Bókunardagsetning verður að vera dagurinn í dag, en ekki %1 Greiðslur eru sendar með bókunardagsetningu dagsins í dag. Breyttu dagsetningunni á línunum.
- Fylgiskjal %1 fyrir dagsetningu %2 er ekki á núlli Lánardrottnalína og bankareikningslína sama fylgiskjals stemma ekki. Lagaðu upphæðina eða veldu Setja inn mismunalínur.
- Banki-HB-reikn; %1 verður að vera 12 stafir Bankareikningur lánardrottins er ekki rétt skráður.
- Ekki er hægt að bóka því ... línur standa á villu! eða ... línur hafa ekki verið sendar í bankann! Lagaðu línurnar sem eru Á villu eða sendu þær. Villan frá bankanum er í reitnum Villa.
- ... línur hafa ekki fengið staðfestingu frá banka Veldu Athuga stöðu bunka og bókaðu aftur.
- Bókin hefur ekki verið senda í bankann Þú valdir Athuga stöðu bunka áður en bókin var send.
- Ef þú sendir bók sem þegar hefur verið send spyr kerfið hvort senda eigi línurnar aftur. Svaraðu neitandi nema þú vitir að bankinn tók ekki við þeim.
Öll skilaboð eru í Aðstoð.