Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Dreifa greiðslum sölupöntunar

Greiðsludreifing skiptir upphæð sölupöntunar á nokkra gjalddaga fram í tímann. Þegar pöntunin er bókuð verður til ein viðskiptamannafærsla fyrir hvern gjalddaga, og þú getur myndað kröfu á hverja þeirra. Fjöldi gjalddaga og tíminn á milli þeirra koma úr greiðsluskilmálunum.

Sviðsmynd

Prófun hf. kaupir vörur af Dæmi ehf. fyrir 600.000 kr. og semur um að greiða þær á sex mánuðum. Sölumaðurinn vill að viðskiptamaðurinn fái sex kröfur upp á 100.000 kr., eina í hverjum mánuði.

Áður en þú byrjar

  • Kröfur eru settar upp.
  • Þú veist hve margar greiðslur eiga að vera og hve langt á að líða á milli þeirra.

Skref fyrir skref

  1. Leitaðu að Greiðsluskilmálar og stofnaðu kóta fyrir dreifinguna, til dæmis 6MAN.

  2. Settu Fjöldi gjalddaga á 6 og Tímabil milli gjalddaga á 1M. Hafðu afsláttarprósentuna 0.

    Kóti greiðsluskilmála fyrir greiðsludreifingu

  3. Stofnaðu sölupöntunina og veldu greiðsluskilmálana á hana. Þeir erfast af viðskiptamannaspjaldinu en þú getur breytt þeim á einni pöntun.

  4. Á sölupöntuninni skaltu velja Dreifa greiðslum pöntunar undir aðgerðum og svara Dreifa greiðslu fyrir þessa pöntun? játandi.

    Aðgerðin Dreifa greiðslum pöntunar

  5. Bókaðu sölupöntunina.

  6. Myndaðu kröfur á viðskiptamanninn eins og lýst er í Stofna kröfur og senda í banka.

Niðurstaða

Bókaði reikningurinn er kreditfærður að fullu og í staðinn verða til sex viðskiptamannafærslur af gerðinni reikningur, ein fyrir hvern gjalddaga. Fyrsti gjalddaginn er sá sami og á upprunalegu pöntuninni og hinir koma með mánaðar millibili. Þegar þú myndar kröfur verður til ein krafa fyrir hverja færslu, með sinn gjalddaga.

Viðskiptamannafærslur eftir greiðsludreifingu

Ef eitthvað fer úrskeiðis

  • Greiðsludreifingu vantar fyrir greiðsluskilmála %1 Greiðsluskilmálarnir á pöntuninni hafa ekki Fjöldi gjalddaga og Tímabil milli gjalddaga. Fylltu reitina út eða veldu aðra greiðsluskilmála.
  • Ef krafa hefur þegar verið stofnuð á reikning geturðu skipt henni með Dreifa kröfu í staðinn.

Öll skilaboð eru í Aðstoð.