Jafna færslur handvirkt
Færslur sem jöfnuðust ekki sjálfvirkt jafnar þú í RdN Afstemming. Þú getur látið kerfið stinga upp á jöfnun eða merkt færslurnar sjálfur, til dæmis þegar ein innborgun í bankanum greiðir marga reikninga.
Sviðsmynd
Prófun hf. greiðir Dæmi ehf. þrjá reikninga með einni millifærslu. Í bankanum er ein færsla en í Business Central þrjár. Sjálfvirk jöfnun ræður ekki við það, svo bókarinn merkir færslurnar fjórar og staðfestir jöfnunina.
Áður en þú byrjar
- Þú hefur lesið inn færslur og keyrt sjálfvirka jöfnun.
- Allar færslur sem á að jafna eru bókaðar. Bankafærslur sem vantar í Business Central flytur þú fyrst í greiðslubók.
- Ef gengismunur er á ójafnaðri greiðslu í erlendum gjaldmiðli skaltu bóka gengismuninn áður en þú staðfestir þá jöfnun, svo summur merktra færslna stemmi.
Skref fyrir skref
Láta kerfið stinga upp á jöfnun
-
Veldu Stinga uppá jöfnun (Shift+F11). Kerfið finnur færslu í bankanum og færslu í Business Central með sömu upphæð og merkir þær í Markað.

-
Ef uppástungan er rétt velur þú Staðfesta jöfnun (F9).
-
Ef hún er röng velur þú Ógilda uppástungu. Merkin eru tekin af og kerfið stingur ekki aftur upp á sömu pörun.
-
Endurtaktu þar til engar fleiri uppástungur koma.
Merkja færslur sjálfur
- Hakaðu í Markað við færslurnar í Bankareikningshreyfingar (frá banka) og Bankareikningshreyfingar (í NAV) sem eiga saman. Þú getur líka valið nokkrar línur og valið Merkja valdar línur.
- Berðu saman Summa merktra færslna í báðum hlutum síðunnar. Þær eiga að vera jafnar og Heildarsumma merktra færslna efst á síðunni sýnir mismuninn.
- Veldu Staðfesta jöfnun (F9). Ef færslurnar eru ekki allar á sama degi spyr kerfið Færslur eru ekki allar á sama degi, jafna samt? Svaraðu játandi ef þær eiga saman.

Afturkalla jöfnun
- Veldu Afmarka á jafnaðar færslur til að sjá jafnaðar færslur.
- Merktu eina af færslunum í jöfnuninni og veldu Afturkalla jöfnun.
- Svaraðu Afturkalla jöfnun %1? játandi. Allar færslur með sama Afstemming ID verða ójafnaðar aftur.
Niðurstaða
Merktu færslurnar fá sameiginlegt Afstemming ID og hverfa úr listanum yfir ójafnaðar færslur.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
- Upphæðirnar stemma ekki! Summa merktra færslna er ekki sú sama báðum megin. Athugaðu Heildarsumma merktra færslna og merktu færslu sem vantar eða taktu merki af rangri færslu.
- Veldu færslur sem skal jafna Engin færsla er merkt.
- Velja verður ReconID sem skal afturkalla Merkta færslan hefur ekki verið jöfnuð. Veldu fyrst Afmarka á jafnaðar færslur.
- Færsla í Business Central sem á heima annars staðar birtist. Afmarkaðu listann með Dagsetningarafmörkun eða afmörkunaraðgerðunum.
Öll skilaboð eru í Aðstoð.