Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Senda reikninga í bankann

Með BankDocs, valfrjálsri viðbót við Bankakerfi, sendir þú reikningana á bak við kröfur sem PDF-skjöl í bankann. Greiðandinn sér þá reikninginn við hlið kröfunnar í heimabankanum.

Sviðsmynd

Dæmi ehf. stofnar kröfur á viðskiptamenn sína í hverjum mánuði. Viðskiptamennirnir vilja sjá reikninginn í heimabankanum, svo bókarinn sendir reikningana um leið og kröfubunkinn hefur verið sendur í bankann.

Áður en þú byrjar

  • BankDocs er sett upp.
  • Kröfurnar í bunkanum eru stofnaðar á bókaða reikninga eða kreditreikninga. Aðeins kröfulínur með fylgiskjalsnúmeri eru sendar.

Ef Senda reikninga með kröfum er valið í Stillingar - RdN Kröfur eru reikningarnir sendir sjálfkrafa þegar kröfurnar eru stofnaðar í bankanum og þú þarft ekki að gera neitt.

Skref fyrir skref

  1. Opnaðu kröfubunkann.
  2. Veldu Senda reikninga í bankann. Aðgerðin sést aðeins ef það eru reikningar í bunkanum.

Kröfubunki

Reikningarnir eru prentaðir með útlitinu sem er fyrst í Skýrsluval - Sala fyrir reikninga og kreditreikninga. Ef ekkert útlit er valið þar er staðlaða reikningsútlitið notað. Kerfið setur skjölin í zip-skrár og sendir þær bankanum frá bankareikningnum í Innheimtuaðili á bunkanum.

Niðurstaða

  • Allir reikningar sendir í bankann á kröfubunkanum sýnir hvort allir reikningar í bunkanum hafa tekist. Veldu gildið til að opna aðgerðasöguna.
  • Í línum bunkans sýna Sendir reikningar og Ósendir reikningar stöðuna fyrir hverja kröfu. Í kröfulínunum sýnir Reikningur sendur hvort hver reikningur hefur farið.
  • Ef Hlaða niður sendum reikningum er valið er zip-skráin líka sótt á tölvuna þína.

"Sendur" þýðir að bankinn tók við skjalinu. Hvernig þú athugar hvað gerðist eftir það er í Athuga og endursenda skjöl.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

  • Ekki tókst að senda neina kröfureikninga án villna. Enginn reikningur fór. Veldu Opna aðgerðasögu til að sjá villuna á hverjum reikningi.
  • Kennitala "…" á bankareikningi … er ógild. Kennitala á bankareikningi innheimtuaðilans þarf að vera 10 tölustafir.
  • Kenni viðskiptamanns "…" á kröfu … er ógilt. Kennitala greiðandans á kröfunni þarf að vera 10 tölustafir.
  • Viðskiptamaður … hefur reitinn "Sleppa kröfureikningum í banka" stilltan sem Já. Viðskiptamaðurinn á ekki að fá reikninga í heimabanka. Taktu hakið af á viðskiptamannaspjaldinu ef það er rangt.
  • Hugsast getur að bankareikningur kröfubunkans sé ekki tengdur réttri vefþjónustu. Athugaðu bankaþjónustu innheimtuaðilans.

Öll skilaboð eru í Aðstoð.