Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Vinnsluraðarfærslur

Tollakerfi getur sótt tollsvör og tollgengi sjálfkrafa með vinnsluraðarfærslum. Hér setur þú upp tvær færslur: aðra sem sækir og vinnur úr tollsvörum og hina sem sækir tollgengi.

Tilgangur

Dæmi ehf. sendir tollskýrslur yfir daginn og vill að svör tollsins komi inn án þess að nokkur sæki þau. Kerfisstjórinn setur upp vinnsluraðarfærslu sem sækir svör á tíu mínútna fresti á vinnutíma og aðra sem sækir tollgengi einu sinni á dag.

Forsendur

Heimildir

Þú þarft heimildasafnið TOLLAKERFI RDN (Tollakerfi RdN) og stofna vinnsluraðarfærslur.

Skref

  1. Opnaðu Vinnsluraðarfærslur og stofnaðu nýja færslu.

  2. Í Hlutategund í keyrslu velur þú Codeunit og í Hlutakenni í keyrslu velur þú 10042360 RdN CC Import EDI. Hún sækir öll ný tollsvör og vinnur úr þeim.

    Vinnsluraðarfærsla sem sækir tollsvör

  3. Hakaðu í alla vinnudaga vikunnar, settu Upphafstími og Lokatími á vinnutímann og láttu færsluna keyra til dæmis á tíu mínútna fresti.

  4. Settu stöðu færslunnar á Tilbúið.

  5. Stofnaðu aðra færslu á sama hátt með codeunit 10042359 RdN CC Exchange Rate Mgt.. Hún sækir tollgengi dagsins. Ein keyrsla á dag dugar.

    Vinnsluraðarfærsla sem sækir tollgengi

Staðfesta

Tollsvör og tollgengi berast sjálfkrafa. Í hlutverkasetrinu sérðu ný svör í reitnum Tollsvör.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

  • Færslan fer á Villa. Opnaðu villuskilaboðin í vinnsluraðarfærslunni. Oftast er EDI tengingin ekki rétt sett upp; prófaðu hana með Prófa tengingu í stillingunum og settu færsluna svo aftur á Tilbúið.

Sjá Aðstoð.