Sækja svör frá tolli
Eftir að tollskýrsla er send svarar tollurinn með EDI skeytum. Kerfið les svörin inn, tengir þau við skýrsluna og breytir stöðu hennar.
Sviðsmynd
Dæmi ehf. sendi tollskýrslu í morgun. Starfsmaðurinn sækir svörin. Tollurinn hefur gert athugasemd við eina línu, svo hann lagar hana og sendir skýrsluna aftur.
Áður en þú byrjar
- Tollskýrslan hefur verið send, sjá Villuathuga og senda.
- Ef svörin eiga að sækjast sjálfkrafa er verkraðarfærsla sett upp, sjá Verkraðarfærslur.
Skref fyrir skref
-
Sæktu svörin á einn af þessum stöðum:
- Sækja tollsvar á tollskýrslunni sækir svar við þeirri skýrslu.
- Sækja og vinna úr tollsvörum á listanum Tollskýrslur eða Öll tollsvör sækir öll ný svör.
- Ef þú fékkst svarskeyti sem skrá velur þú Hala upp tollsvari á Öll tollsvör.
-
Opnaðu Tollsvör á tollskýrslunni til að sjá svörin.

-
Ef svar hefur ekki verið unnið velur þú það og Vinna úr svari.
-
Haltu áfram eftir því hvaða skeyti barst. Öll skeytin og áhrif þeirra eru í Stöður og skeyti.
Villuskeyti: CUSERR og CUSGER
CUSERR eru villur eða athugasemdir við skýrsluna. CUSGER er höfnun á innlestri hennar. Í báðum tilfellum fær skýrslan stöðuna Á villu.

-
Opnaðu tollsvarið. Villurnar eru í hlutanum Tollsvarsvillur.

-
Til að sjá allar villur sem hafa borist fyrir skýrsluna frá upphafi velur þú Allar villur frá tolli á tollskýrslunni.

-
Lagaðu skýrsluna og sendu hana aftur.
Beiðni um skjöl: CUSDOR
Tollurinn biður um viðbótarskjöl. Skýrslan fær stöðuna Beiðni um skjöl.

- Opnaðu tollsvarið. Lokadagsetning skilafrests er síðasti dagur til að skila skjölunum. Ef Senda á starfsmann tolls er valið á að senda skjölin til starfsmanns tolls.
- Sendu tollinum skjölin og bíddu eftir næsta svari.
Skuldfærsla: CUSTAR
Tollurinn hefur skuldfært gjöldin. Skýrslan fær stöðuna Skuldfærð. Sjá Skuldfærsla.
Niðurstaða
Svörin eru unnin og staða tollskýrslunnar sýnir hvar hún er stödd. Þegar hún er Skuldfærð er næst að bóka hana.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
- Ekkert svar berst. Tollurinn hefur ekki svarað enn. Reyndu aftur síðar.
- Ekki er hægt að bóka skýrsluna. Hún hefur óunnin svör. Opnaðu Tollsvör og veldu Vinna úr svari.
Sjá Aðstoð.