Tengja flutningsgjaldareikning
Reikningar fyrir flutning og annan kostnað berast oft eftir á. Í stað þess að úthluta kostnaðaraukanum á hverja móttöku fyrir sig tengir þú reikninginn við tollskýrsluna og kerfið úthlutar honum á allar móttökur hennar.
Sviðsmynd
Flutningsaðili Dæmi ehf. sendir reikning fyrir sjóflutningi sendingar sem var tollafgreidd í síðustu viku. Bókarinn skráir reikninginn og tengir hann við bókuðu tollskýrsluna.
Áður en þú byrjar
- Móttaka innkaupapantananna á tollskýrslunni er bókuð.
- Kostnaðaraukinn fyrir flutninginn er til, sjá Kostnaðaraukar.
Skref fyrir skref
-
Stofnaðu innkaupareikning, eða kreditreikning, á flutningsaðilann.
-
Bættu við línu af tegundinni Gjald (vara) með kostnaðaraukanum og upphæðinni. Ekki úthluta henni.
-
Veldu Setja kostnaðarauka á tollskýrslu ef tollskýrslan er óbókuð, eða Setja kostnaðarauka á bókaða tollskýrslu ef hún er bókuð.

-
Veldu tollskýrsluna í listanum.
Niðurstaða
Kostnaðaraukalínum sem var ekki úthlutað er úthlutað á móttökulínur tollskýrslunnar. Fjárhagslínur
reikningsins fá víddir pöntunarinnar. Reikningurinn fær númer tollskýrslunnar og, ef reikningsnúmer
lánardrottins er autt, tollskýrslunúmer eða sendingarnúmer með -ext aftan við, eftir stillingunni
Reikningsnúmer lánadrottins. Bókaðu reikninginn eins og venjulega.
Næsta skref er að skrá skuldfærslu.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
- „Það eru tollskýrslulínur sem hafa ekki bókaða móttöku. Viltu samt halda áfram?“ Sumar pantanir á skýrslunni eru ekki mótteknar. Ef þú heldur áfram fá þær línur ekki kostnaðarauka.
- Kostnaðaraukanum var ekki úthlutað. Aðeins línum sem hefur ekki verið úthlutað er úthlutað. Eyddu úthlutuninni og veldu aðgerðina aftur.
Sjá Aðstoð.