Stofngögn tolls
Þessi síða er fyrir þá sem vinna tollskýrslur og vilja vita hvað reitir og aðgerðir gera. Hún lýsir kótatöflunum sem tollskýrslan notar.
Yfirlit
Stofngögn tolls eru kótatöflur sem tollurinn gefur út. Þær eru lesnar inn með tollskránni, sjá Lesa inn tollskrá. Þú finnur þær í hlutverkasetri Tollakerfis eða með leit.

Einfaldar kótatöflur
Þessar töflur hafa aðeins Kóti og Lýsing:
| Tafla | Hvað hún geymir |
|---|---|
| Flutningsmátar | Flutningsmáta yfir landamæri. |
| Tegund tollafgreiðslu | Tegundir tollafgreiðslu, til dæmis AL. |
| Tegund viðskipta | Tegundir viðskipta, til dæmis 1 fyrir viðskipti gegn greiðslu. |
| Viðskiptasvæði | Viðskiptasvæði tollskýrslu. |
| Tollmeðferðarkótar | Tollmeðferð lína. |
| Va-lyklar | Verðmætisyfirlýsingar. |
| Umbúðir | Umbúðategundir sem eru sendar til tolls. |
| Magntölur | Magntölur, til dæmis NET, LIT og PRO. |
| Kótar tolls | Tollkóta sem tengjast upprunalandi og fríverslunarsamningi. |
| Villukóðar | Villukóta í svörum tolls. Lýsingin birtist í tollsvarsvillum. |
| Viðbótarskjöl | Skjöl sem tollurinn getur beðið um í beiðni um skjöl (CUSDOR). |
Tollurinn sendir aðeins kóta í svörum. Ef villukóti eða skjalakóti er ekki skráður hér kemur engin lýsing á honum. Þá getur þú bætt honum við.
Afhendingarskilmálar
| Reitur | Hvað hann sýnir |
|---|---|
| Kóti, Lýsing | Afhendingarskilmáli samkvæmt Incoterms, til dæmis CIF eða FOB. |
| Vátrygging: Reikna heildarupphæð | Heildarupphæð skýrslunnar er í grunni vátryggingar þegar hún er reiknuð út frá prósentu. |
| Vátrygging: Reikna flutningskostnað | Flutningskostnaður er í grunni vátryggingar. |
| Vátrygging: Reikna annan kostnað | Annar kostnaður er í grunni vátryggingar. |
| Viðtakandi greiðir tryggingu, Viðtakandi greiðir flutningskostnað, Viðtakandi greiðir annan kostnað | Viðtakandinn greiðir þennan kostnað. Þá á hann ekki að vera á skýrslunni og villuathugun gefur villu ef hann er þar. |
Leyfi
| Reitur | Hvað hann sýnir |
|---|---|
| Kóti, Lýsing | Leyfi, bann eða undanþága hjá tollinum. |
| Tilvísunarnúmer leyfis | Tilvísunarnúmer leyfis ef þú hefur það. Það er notað á tollskýrslulínum. |
Vörur á leyfi sýnir vörurnar sem hafa leyfið.
Vöruhús tolls
Kóti, Nafn fyrirtækis, Kennitala fyrirtækis og Heimilisfang vöruhúss sem tollurinn þekkir.
Sölu- og flutningsumbúðir
| Reitur | Hvað hann sýnir |
|---|---|
| Kóti, Lýsing | Umbúðategund. |
| Kóði megin söluumbúða | Kóði sem er sendur til tolls fyrir megin söluumbúðir. |
| Kóði magntölu umbúða | Kóði magntölu þegar þyngd umbúða er tilgreind. |
| Úrvinnslugjald | Úrvinnslugjald umbúðategundarinnar á kg. |
Sjá Umbúðir.
Uppgjörstímabil tolls
Í skuldfærslu sendir tollurinn kóta uppgjörstímabils á hverja gjaldalínu, til dæmis S2. Uppgjörstímabilið segir til um gjalddaga innkaupareikningsins.
| Reitur | Hvað hann sýnir |
|---|---|
| Kóti, Lýsing | Uppgjörstímabilið. |
| Reikna frá uppgjörstímabil | Reiknireglan reiknar frá enda uppgjörstímabilsins. Annars frá deginum í dag. |
| Prósentur ganga upp í 100 | Prósentur reiknireglnanna eru samtals 100. |
Hvert uppgjörstímabil hefur eina eða fleiri Gjalddagaformúlur:
| Reitur | Hvað hann sýnir |
|---|---|
| Reikniregla | Dagsetningarformúla gjalddagans, til dæmis 15D fyrir 15. næsta mánaðar. |
| Prósenta | Hlutfall gjaldanna sem fellur á þennan gjalddaga. Oftast 100. Ef tollurinn dreifir gjöldunum á fleiri gjalddaga eru reiknireglurnar fleiri. |
| Dæmi af dagsetningu | Dæmi um gjalddaga samkvæmt reiknireglunni. |
Landakóðar
Á landakóðum er reiturinn Tollur, sem segir hvaða fríverslunarsamningur gildir fyrir landið. Sjá Tollar landa.