Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Tollakerfi

Tollakerfi Rue de Net er viðbót við Business Central sem heldur utan um tollafgreiðslu. Þú býrð til tollskýrslu úr innkaupapöntunum eða sölureikningum, sendir hana til tollsins með EDI og vinnur úr svörunum. Aðflutningsgjöldin verða að innkaupareikningi á tollinn og fara á kostnaðarverð vörunnar.

Yfirlit

Tollakerfi hentar fyrirtækjum sem flytja inn eða út vörur og tollafgreiða sjálf, og tollmiðlurum sem tollafgreiða fyrir viðskiptavini. Innkaupafulltrúar og bókarar nota það í daglegu starfi, en kerfisstjóri setur það upp einu sinni.

TegundBúin til úrLokastaða fyrir bókun
InnflutningurInnkaupapöntunumSkuldfærð
ÚtflutningurBókuðum sölureikningumÚtflutningsheimild

Skeytin fara til tollsins um afhendingarþjónustu, Deloitte eða Unimaze, á EDIFACT-sniði: tollskýrslan sem CUSDEC og svör tollsins sem CUSRES og CUSTAR.

Hvernig þetta virkar

  1. Þú býrð til tollskýrslu úr einni eða fleiri innkaupapöntunum. Línurnar fá tollskrárnúmer, þyngd, umbúðir og verð úr pöntununum. Sjá Búa til innflutningstollskýrslu.
  2. Þú skráir kostnað eins og flutning og vátryggingu og dreifir þyngd á línurnar. Sjá Skrá kostnað á tollskýrslu.
  3. Þú villuathugar skýrsluna og sendir hana. Staðan verður Send. Sjá Villuathuga og senda.
  4. Svör tollsins eru sótt og unnin, handvirkt eða í vinnsluröð. Staðan verður Á villu, Beiðni um skjöl eða Skuldfærð. Sjá Sækja svör.
  5. Við skuldfærslu (CUSTAR) verður til innkaupareikningur á tollinn og aðflutningsgjöldunum er úthlutað sem kostnaðarauka á móttökurnar. Sjá Skuldfærsla.
  6. Þú bókar tollskýrsluna og innkaupaskjöl hennar. Sjá Bóka tollskýrslu.

Útflutningur fer sömu leið frá bókuðum sölureikningum, sjá Búa til útflutningstollskýrslu. Tollkvótar lækka gjöldin á línum sem falla undir kvóta, sjá Nota tollkvóta.

Ávinningur

Tollskýrslan verður til úr gögnum sem eru þegar í BC, svo það þarf ekki að slá hana inn aftur. Villuathugunin finnur villur áður en skýrslan fer til tollsins, og skuldfærslan verður að innkaupareikningi með réttum kostnaðarauka. Kostnaðarverð vörunnar inniheldur þá aðflutningsgjöld og kostnað án handavinnu.