Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Tollsvör

Þessi síða er fyrir þá sem vinna tollskýrslur og vilja vita hvað reitir og aðgerðir gera. Hún lýsir tollsvörum og gjaldalínum þeirra.

Yfirlit

Tollsvar er skeyti sem tollurinn sendir til baka eftir að tollskýrsla er send. Tollakerfi les svörin inn, tengir þau við tollskýrsluna og vinnur úr þeim. Hvaða áhrif hvert skeyti hefur á stöðu skýrslunnar er í Stöður og skeyti.

Svör við einni skýrslu opnar þú með Tollsvör á tollskýrslunni. Öll svör eru á listanum Öll tollsvör í hlutverkasetrinu.

Tollsvör

AðgerðHvað hún gerir
Sækja og vinna úr tollsvörumSækir öll ný svör frá tolli og vinnur úr þeim.
Vinna úr svariVinnur úr völdu svari ef það hefur ekki verið gert.
Hala upp tollsvariLes inn svarskeyti úr skrá.
Niðurhala EDI skjaliHleður niður upprunalega EDI skeytinu.

Tollsvar

Tollsvar

ReiturHvað hann sýnir
Nr.Hlaupandi númer tollsvarsins.
Nr. EDI skjalsNúmer EDI skeytisins sem svarið kom í. Tollurinn sendir stundum mörg svör í einu skeyti og þá hafa þau sama númer.
Dagsetning móttekinHvenær svarið var lesið inn.
Nr. tollskýrsluTollskýrslan sem svarið er við.
Vinnslu lokiðUnnið hefur verið úr svarinu. Óunnin svör hindra bókun tollskýrslunnar.
EDI tegundTegund skeytisins: CUSDOR, CUSERR, CUSGER, CUSPAR, CUSTAR eða CUSTAR-BAK.
Númer skjals/skeytisSendingarnúmer tollskýrslunnar.
Kennitala, Kennitala umboðsaðilaKennitala innflytjanda og umboðsaðila hans.
Kenni staðsetningarKóti tollafgreiðslustaðar.
Dagsetning heimildarDagsetning heimildar tolls til innflutnings eða útflutnings.
Afhendingarheimild afturkölluðDagsetning ef afhendingarheimild var afturkölluð.
Dagsetning skeytisHvenær tollurinn bjó skeytið til.
Lokadagsetning skilafrestsSíðasti dagur til að skila skjölum sem tollurinn biður um.
Tollskýrslu hafnað með athugasemd, Aðflutningsskýrsla móttekin, en tollafgreiðslu hafnaðSvarið er höfnun, með athugasemd eða vegna villu.
Senda á starfsmann tollsSenda á skjöl til starfsmanns tolls.
Leyfi veitt, Leyfi afturkallaðLeyfi til tollafgreiðslu var veitt eða afturkallað.
Frjáls text 1 til Frjáls texti 5Texti sem tollurinn skrifaði í svarið.
Villa í haus, Nr. línuvilluHvort villan er í haus skýrslunnar eða á hvaða línu.
Farmskrárnúmer, Tilvísunarnúmer SMTTilvísanir úr skýrslunni sem tollurinn sendir til baka.
UpphæðHeildarupphæð gjalda og tolla, í skuldfærslu (CUSTAR).

Gjaldalínur

Í skuldfærslu (CUSTAR) sendir tollurinn gjöld, tolla og virðisaukaskatt fyrir hverja þjappaða línu.

Gjaldalínur

ReiturHvað hann sýnir
Kóði gjalds/tollsKóti gjaldsins samkvæmt tollskránni, til dæmis A, BV eða Ö6.
UpphæðUpphæð gjaldsins á línunni.
Almennir kóðarKóti uppgjörstímabils, til dæmis S2. Gjalddaginn reiknast út frá honum. Sjá Stofngögn tolls.

Tollsvarsvillur

Tollsvarsvillur

ReiturHvað hann sýnir
DagsetningarstympillHvenær svarið var lesið inn.
EDI tegundTegund skeytisins.
Kóti villuKóti villunnar eða skjalsins sem tollurinn biður um.
Lýsing villuLýsing úr Villukóðar eða Viðbótarskjöl. Tollurinn sendir aðeins kótann, svo lýsingin er auð ef kótinn er ekki skráður.

Aðgerðirnar Villukótar og Fylgiskjalakótar opna töflurnar svo þú getir skráð kóta sem vantar. Allar villur við skýrslu sérðu með Allar villur frá tolli á tollskýrslunni.

Samskiptaloggur

Samskiptaferill á tollskýrslunni sýnir öll skeyti sem hafa farið á milli kerfisins og tolls: Átt samskipta, Lýsing, Dagsetningarstimpill. og Hrátt EDI skjal.