Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Bókuð tollskýrsla

Þessi síða er fyrir þá sem vinna tollskýrslur og vilja vita hvað reitir og aðgerðir gera. Hún lýsir bókaðri tollskýrslu og aðgerðum á henni.

Yfirlit

Þegar tollskýrsla er bókuð færist hún á listann Bókaðar tollskýrslur, með línum, leyfum, magntölum, kostnaðarlínum og viðhengjum. Sama síða er notuð fyrir innflutning og útflutning.

Bókaðar tollskýrslur

Bókuð tollskýrsla

Reitir

Flestir reitir eru þeir sömu og á opinni skýrslu. Sjá Innflutningstollskýrsla. Þessir eru aðeins á bókaðri skýrslu:

ReiturHvað hann sýnir
Nr.Númer bókuðu skýrslunnar.
Skýrsla nr.Númer upprunalegu skýrslunnar. Leiðréttingar á sömu skýrslu hafa sama númer.
BókunardagsetningHvenær skýrslan var bókuð.
Gerð tollskýrsluVenjuleg eða Leiðrétting.
Númer tollafgreiðsluHækkar um einn við hverja leiðréttingu.

Hlutinn Kostnaðarlínur sést ef skýrslan hefur kostnaðarlínur. Sjá Kostnaðarlínur. Á línunum eru líka aðgerðirnar Birgðafærslur og Virðisfærslur.

Vara, tollnúmer, magn og nettóþyngd á línu bókaðrar tollskýrslu.

Aðgerðir

AðgerðHvað hún gerir
LeiðréttaBýr til nýja, opna tollskýrslu með sama númeri sem leiðréttingu. Sjá Leiðrétta tollskýrslu.
Opna verðbreytingabók, KostnaðarverðsskýrslaSjást aðeins ef viðbótin Verðbreytingabók er sett upp. Sjá Kostnaðarverð vöru.
Prenta prófunarskýrsluSýnir skýrsluna á stöðluðu eyðublaði tolls.
TollsvörOpnar svör tolls við skýrslunni.
Villur í tolliOpnar allar villur frá tolli við skýrsluna.
TollkvótafærslurOpnar tollkvótafærslur skýrslunnar.