Notkun
Þessi hluti lýsir daglegri vinnu í Tollakerfi eftir að kerfið hefur verið sett upp. Uppsetningin er í Stillingar og lýsing á reitum og aðgerðum í Uppfletting.
Yfirlit
Tollskýrsla verður til út frá innkaupapöntunum (innflutningur) eða bókuðum sölureikningum (útflutningur). Þú villuathugar hana og sendir til tolls. Tollurinn svarar með skeytum sem breyta stöðu skýrslunnar: Send, Á villu, Beiðni um skjöl, Skuldfærð eða Útflutningsheimild. Þegar skýrslan er skuldfærð og öll innkaupaskjöl bókuð bókar þú hana og hún fer í geymslu sem bókuð tollskýrsla.
Hvernig þetta virkar
Byrjað
- Hlutverkasetur: yfirlit yfir skýrslur, tollsvör, pantanir og reikninga.
- Lesa inn tollskrá: ný tollskrá frá Skattinum.
Innflutningur
Síðurnar eru í þeirri röð sem verkin eru unnin.
- Búa til innflutningstollskýrslu: úr einni eða fleiri innkaupapöntunum.
- Tollmiðlun: tollskýrsla fyrir viðskiptamann sem tollmiðlari.
- Tollafgreiða sýnishorn: vörur án verðs frá birgja.
- Dreifa þyngd: brúttó- og nettóþyngd á línur.
- Umbúðir á tollskýrslulínum: megin söluumbúðir.
- Skrá kostnað á tollskýrslu: flutningskostnaður og annar kostnaður.
- Villuathuga og senda: villuathugun, prófunarskýrsla og sending.
- Sækja svör: tollsvör, villur og beiðni um skjöl.
- Skuldfærsla: CUSTAR, innkaupareikningur á tollinn og bakfærsla.
- Tengja flutningsgjaldareikning: kostnaðarauki á móttökur skýrslunnar.
- Kostnaðarverð vöru: hvernig gjöldin fara á kostnaðarverð.
- Bóka tollskýrslu: skýrslan fer í geymslu.
- Leiðrétta tollskýrslu: opin eða bókuð skýrsla.
Útflutningur
- Búa til útflutningstollskýrslu: úr bókuðum sölureikningum.
- Bóka útflutningstollskýrslu: eftir útflutningsheimild.
Tollkvótar
- Skrá tollkvóta: nýr kvóti með aðstoð.
- Nota tollkvóta: kvóti á tollskýrslulínur.
- Skrá tollkvótafærslu handvirkt: notkun utan tollskýrslu.
- Afskrifa ónotaðan tollkvóta: loka kvóta sem verður ekki notaður.
Ávinningur
Öll tollvinnsla er í Business Central. Tollskýrslan verður til úr innkaupa- og söluskjölunum, svör tollsins uppfæra stöðuna sjálfkrafa og gjöldin fara beint á kostnaðarverð vörunnar.