Búa til útflutningstollskýrslu
Útflutningstollskýrsla verður til úr bókuðum sölureikningum á erlenda viðskiptamenn. Þú villuathugar hana, sendir til tolls og bíður eftir útflutningsheimild.
Sviðsmynd
Dæmi ehf. selur fisk til Prófun hf. í Danmörku. Sölureikningurinn er bókaður og starfsmaður býr til útflutningsskýrslu úr honum og sendir hana til tolls.
Áður en þú byrjar
- Sölureikningurinn er bókaður. Á viðskiptamanninum eru gjaldmiðill og bókunarflokkar réttir.
- Vörurnar eru með tollnúmer, á vörunni eða í Tollastillingar vörunúmera.
- Til er sniðmát tollskýrslu fyrir útflutning.
Skref fyrir skref
-
Veldu Ný útflutningsskýrsla m/aðstoð á lista skýrslna, eða Búa til útflutningsskýrslu í hlutverkasetrinu.
-
Fylltu út Nr. viðskiptamanns, Sniðmát og veldu reikningana í Sía bókaðra sölureikninga.

-
Skýrslan fyllist út frá sniðmátinu og sölureikningunum. Fleiri reikningum bætir þú við með Bæta bókuðum sölureikning við skýrslu.

-
Dreifðu þyngd ef þarf, sjá Dreifa þyngd.

-
Veldu Villuathuga skjal og lagaðu villurnar.


-
Veldu Prenta prófunarskýrslu til að sjá skýrsluna á eyðublaði tolls.

-
Veldu Senda skýrslu til tolls.

-
Sæktu svar með Sækja tollsvar, eða láttu vinnsluraðarfærslu gera það, sjá Vinnsluraðarfærslur.
Niðurstaða
Þegar tollurinn samþykkir útflutninginn fær skýrslan stöðuna Útflutningsheimild og þú getur bókað hana, sjá Bóka útflutningstollskýrslu.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
-
Skýrslan fer á Á villu. Tollurinn sendi villuskeyti. Opnaðu Allar villur frá tolli, lagaðu skýrsluna og sendu hana aftur.

-
Reikningur kemur ekki í síunni. Hann er þegar á annarri skýrslu. Fjarlægðu hann þaðan með Fjarlægja.
Sjá Aðstoð.