Dreifa þyngd á tollskýrslu
Þyngd línanna kemur af vöruspjöldunum. Oft er heildarþyngd sendingarinnar á farmbréfinu önnur. Þá dreifir þú heildarþyngdinni á línurnar, eftir upphæð eða jafnt á línur.
Sviðsmynd
Á farmbréfi sendingar Dæmi ehf. er brúttóþyngdin 1.250 kg, en samtala línanna á tollskýrslunni er 1.180 kg. Starfsmaðurinn dreifir 1.250 kg á línurnar eftir upphæð.
Áður en þú byrjar
Stillingarnar eru í hlutanum Skýrsla í Stillingar tollakerfis:
- Þyngdardreifing af tollskýrsluspjaldi virk leyfir að skrá þyngd beint á spjaldið.
- Dreifing nettóþyngdar ræður hvernig nettóþyngd er fundin: Engin, 90% af brúttó eða Útfrá innsleginni þyngd.
- Sjálfgefin þyngdardreifing ræður hvort dreift er Eftir upphæð eða Eftir línu.
Skref fyrir skref
Beint af spjaldinu
Ef Þyngdardreifing af tollskýrsluspjaldi virk er valið skráir þú heildarþyngdina í Brúttóþyngd í hlutanum Upphæðir á tollskýrslunni. Henni er strax dreift á línurnar samkvæmt sjálfgefinni dreifingu. Ef nettóþyngd er dreift eftir innsleginni þyngd skráir þú líka Nettóþyngd.
Á síðunni Dreifing þyngda á skýrslu
-
Á tollskýrslunni velur þú Þyngdardreifing, eða kafar í Brúttóþyngd eða Nettóþyngd. Síðan Dreifing þyngda á skýrslu opnast.

-
Veldu í Dreifa á hvort dreift er eftir Upphæð eða á hverja Línu jafnt.
-
Skráðu heildarbrúttóþyngdina í Heildarþyngd.
-
Veldu Útreikningur nettóþyngdar og skráðu Samtals nettóþyngd ef þú dreifir innsleginni nettóþyngd.
-
Hakaðu í Sleppa línu á línum sem eiga að halda sinni þyngd. Þyngd þeirra er dregin frá heildarþyngdinni áður en afganginum er dreift.
-
Veldu Reikna þyngdardreifingu. Línurnar sýna nýja þyngd í Nettóþyngd (kg) og Brúttóþyngd (kg).

-
Veldu Vista og loka.
Ef þú lokar síðunni án þess að vista spyr kerfið „Viltu uppfæra línur með núverandi dreifingu?“
Til að byrja upp á nýtt velur þú Endursetja á núverandi gildi, sem sækir þyngdina sem er á línunum núna, eða Endursetja á upprunaleg gildi, sem reiknar þyngdina aftur af vöruspjöldunum: brúttóþyngd vörunnar sinnum magn í grunneiningu. Ef nettóþyngd vörunnar er 0 verður nettóþyngdin 90% af brúttóþyngdinni.
Niðurstaða
Línur tollskýrslunnar hafa nýja brúttó- og nettóþyngd og samtölurnar í Upphæðir stemma við farmbréfið.
Næsta skref er að villuathuga og senda tollskýrsluna.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
- Lína er rauð. Nettóþyngd línunnar er meiri en brúttóþyngdin. Lagaðu hana áður en þú vistar.
- „Ein eða fleiri línur hava nettóþyngd meiri en brúttóþyngd. Þetta þýðir að skýrslan getur ekki verið send til tolls án frekar breytinga. Viltu samt vista þessar breytingar?“ Ef þú svarar nei kemur „Notandi hætti við aðgerð“ og ekkert er vistað.
- „Nettó þyngd er hærri en samtals brúttóþyngd til að dreifa.“ Samtals nettóþyngd er hærri en heildarþyngdin. Lagaðu tölurnar.
- „Eftir að hafa dregið frá frátekna þyngd (%1 kg) frá heildarþyngd (%2 kg) er aðeins %3 kg eftir til að dreifa“. Línurnar sem þú slepptir eru of þungar miðað við heildarþyngdina. Taktu hakið af einhverjum þeirra eða hækkaðu heildarþyngdina.
Sjá Aðstoð.