Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Stillingar tollakerfis

Þessi síða er fyrir kerfisstjóra og ráðgjafa sem setja upp Tollakerfi. Hún skýrir hvern reit í stillingum tollakerfis.

Tilgangur

Á síðunni Stillingar tollakerfis eru allar stillingar Tollakerfis og EDI samskipta við tollinn. Flestar eru fylltar út í uppsetningu með aðstoð. Hér er hver reitur skýrður eftir flýtiflipum.

Forsendur

  • Tollakerfi er uppsett. Flestir reitir eru fylltir út með uppsetningu með aðstoð.
  • Þú hefur upplýsingar um EDI samskiptin frá Rue de Net.

Heimildir

Þú þarft heimildasafnið TOLLAKERFI RDN (Tollakerfi RdN).

Skref

  1. Opnaðu Stillingar tollakerfis.
  2. Farðu yfir flýtiflipana og breyttu þeim reitum sem eiga við. Hver reitur er skýrður hér fyrir neðan.

Stillingar tollakerfis

Almennt

ReiturHvað hann gerirHvenær á að breytaSjálfgefið
Kennitölureitur lánardrottinsReiturinn á lánardrottnaspjaldinu sem geymir kennitölu lánardrottins.Ef kennitalan er geymd í öðrum reit en venjulega.
Innflutningur virkurKveikir á innflutningstollskýrslum.Þegar fyrirtækið flytur inn vörur.
Útflutningur virkurKveikir á útflutningstollskýrslum.Þegar fyrirtækið flytur út vörur.
Nota sem tollmiðlariLætur kerfið virka fyrir tollmiðlara sem gerir tollskýrslur fyrir aðra.Ef þú ert tollmiðlari, sjá Tollmiðlun.Nei
Aftengja breytingavöktunEykur hraða, en þá er ekki lengur fylgst með breytingum á milli innkaupapantana og tollskýrslna.Aðeins ef hraði skiptir meira máli en vöktunin.Nei
AfhendingarþjónustaÞjónustan sem sendir EDI skeyti til tollsins: Deloitte, Unimaze eða Annað. Slóðir vefþjónustu fyllast sjálfkrafa fyrir Deloitte og Unimaze.Þegar skipt er um þjónustu.
Nota EDI þýðandaLætur kerfið þýða skeytin í EDI snið.Ekki breyta.Já
Er LS CentralLagar stafasettið að LS Central.Ef Tollakerfi er sett upp í LS Central.Nei
Nota Umbúðargjald vegna sölu- og flutningsumbúðaReiknar úrvinnslugjald á sölu- og flutningsumbúðir eftir reglum sem tóku gildi 1. mars 2023, sjá Umbúðir.Á að vera virkt.
Nota líklegar söluumbúðirNotar líklegar söluumbúðir sem tollurinn gefur út þegar umbúðir vantar á línu.Ef vörur eru oft án skráðra umbúða.
Nota kostnaðarlínurFlutningskostnaður og annar kostnaður skráist í kostnaðarlínur á tollskýrslunni í stað eldri kostnaðarreita í hausnum. Sjá Skrá kostnað á tollskýrslu.Þegar þú þarft fleiri en tvær kostnaðarlínur af hvorri gerð.Nei
Stofna kreditreikninga á fyrsta degi á opnu tímabiliÞegar bókuð tollskýrsla er leiðrétt fá kreditreikningarnir fyrsta dag opins bókunartímabils ef upprunaleg dagsetning er utan þess.Ef þú leiðréttir tollskýrslur eftir lokun tímabils.Nei

Skýrsla

ReiturHvað hann gerirHvenær á að breytaSjálfgefið
Númerasería - InnflutningurNúmerasería innflutningstollskýrslna. Má ekki vera lengri en 14 stafir.Við uppsetningu.
Bókuð númerasería - InnflutningurNúmerasería bókaðra innflutningstollskýrslna.Við uppsetningu.
Númerasería - ÚtflutningurNúmerasería útflutningstollskýrslna.Við uppsetningu.
Bókuð númerasería - ÚtflutningurNúmerasería bókaðra útflutningstollskýrslna.Við uppsetningu.
Uppfæra upprunaland frá skýrsluUppfærir upprunaland á vöruspjaldi frá tollskýrslulínu: Nei, Alltaf eða Ef tómt.Ef tollskýrslan er betri heimild en vöruspjaldið.Nei
Uppfæra brúttóþyngd frá skýrsluSama fyrir brúttóþyngd.Eins.Nei
Uppfæra tollnúmer frá skýrsluSama fyrir kóta tollflokks.Eins.Nei
Uppfæra megin umbúðir út frá skýrsluSama fyrir megin söluumbúðir vörunnar.Eins.Nei
Biðja um staðfestingu á uppfærsluSpyr áður en vöruspjaldið er uppfært frá tollskýrslulínu.Ef þú vilt staðfesta hverja uppfærslu.Nei
Sjálfgefin þyngdardreifingHvernig þyngd dreifist á línur: Eftir upphæð eða Eftir línu.Ef vörurnar eru svipaðar að þyngd en ólíkar í verði.Eftir upphæð
Þyngdardreifing af tollskýrsluspjaldi virkBrúttó- og nettóþyngd í hausnum dreifast á línurnar um leið og hún er slegin inn.Ef þú skráir heildarþyngd sendingar í hausinn.Nei
Dreifing nettóþyngdarEngin: nettóþyngd á línum breytist ekki. 90% af brúttó: nettóþyngd verður 90% af brúttóþyngd línunnar. Útfrá innsleginni þyngd: heildarnettóþyngd í hausnum dreifist á línurnar.Eftir því hvaða þyngd þú hefur.Engin
Sjálfgefið EUR leyfi á allar línurGildið fer í reitinn EUR leyfi á allar línur á nýjum tollskýrslum og línurnar tengjast leyfinu.Ef flestar sendingar eru með EUR upprunavottorð.
Stofnmagnsumbreyting virkMagn í PCE (STK) er reiknað út frá stofnmagni eða magni línunnar, eftir því hvort einingartala er sett á tollnúmerið í tollskránni.Ef þú selur í öðrum einingum en þú kaupir.Nei

Skýrsla

Sjálfgefin gildi kostnaðar

Gildin fara í kostnaðarreitina í haus nýrrar tollskýrslu og eru notuð þegar innkaupareikningar eru stofnaðir út frá henni. Þau fylla ekki út kostnaðarlínur. Þegar Nota kostnaðarlínur er virkt skráir þú lánardrottin og kostnaðarauka á hverja kostnaðarlínu.

Vátrygging

ReiturHvað hann gerirHvenær á að breytaSjálfgefið
Sjálfgefin prósenta tryggingarPrósenta vátryggingar á tollskýrslu.Ef samningur fyrirtækisins er annar.Oftast 1
Sjálfgefinn gjaldmiðill tryggingarGjaldmiðill vátryggingar.Eins.Oftast ISK
Stofna innkaup á tryggingum útfrá skýrsluNei, Sem kostnaðarauki eða Sem fjárhagslykill.Ef vátrygging er bókuð á innkaupareikning.Nei
Númer vátryggingarKostnaðarauki eða fjárhagslykill vátryggingar, eftir reitnum á undan.Við uppsetningu.
Lánadrottinn vátryggingaLánardrottinn vátryggingar.Við uppsetningu.

Flutningur

ReiturHvað hann gerirHvenær á að breytaSjálfgefið
Stofna innkaup á flutningskostnaði útfrá skýrsluStofnar innkaupareikning fyrir flutningskostnað við bókun.Ef flutningsaðilinn rukkar sér.
Sjálfgefinn kostnaðarauki flutningskostnaðarKostnaðarauki flutningskostnaðar.Við uppsetningu.
Sjálfgefinn kostnaðarauki flutningskostnaðar 2Kostnaðarauki seinni flutningskostnaðar.Ef tveir flutningsaðilar eru algengir.
Sjálfgefinn lánadrottinn flutningskostnaðarLánardrottinn flutningskostnaðar.Við uppsetningu.
Sjálfgefinn lánadrottinn flutningskostnaðar 2Lánardrottinn seinni flutningskostnaðar.Eins.

Annar

ReiturHvað hann gerirHvenær á að breytaSjálfgefið
Stofna innkaup á öðrum kostnaði útfrá skýrsluStofnar innkaupareikning fyrir annan kostnað við bókun.Ef annar kostnaður er rukkaður sér.
Sjálfgefinn kostnaðarauki annars kostnaðarKostnaðarauki annars kostnaðar.Við uppsetningu.
Sjálfgefinn kostnaðarauki annars kostnaðar 2Kostnaðarauki seinni annars kostnaðar.Eftir þörfum.
Sjálfgefinn lánadrottinn annars kostnaðarLánardrottinn annars kostnaðar.Við uppsetningu.
Sjálfgefinn lánadrottinn annars kostnaðar 2Lánardrottinn seinni annars kostnaðar.Eftir þörfum.

Sjálfgefin gildi kostnaðar

Vefþjónusta

ReiturHvað hann gerirHvenær á að breytaSjálfgefið
Slóð vefþjónustu 1Hjá Deloitte er þetta Dispatcher slóðin.Fyllist sjálfkrafa fyrir Deloitte og Unimaze.
Slóð vefþjónustu 2Hjá Deloitte er þetta Browser slóðin. Unimaze notar hana ekki.Eins.
SkráðSýnir hvort lausnin er skráð hjá afhendingarþjónustunni. Notandanafn og lykilorð sjást ekki á síðunni.Skráðu notandann með Skrá vefþjónustunotanda.

EDI

ReiturHvað hann gerirHvenær á að breytaSjálfgefið
X400 pósthólfið mittX400 pósthólf innflytjandans.Við uppsetningu.
EAN kennitalan mín13 stafa EAN kennitala innflytjandans, tengd pósthólfinu.Við uppsetningu.
X400 pósthólf tollsinsX400 pósthólf tollsins.Ekki breyta.
EAN kennitala tollsinsEAN kennitala tollsins.Ekki breyta.6501881019
EDI prófanamerkiSendir skeytin í prófunarumhverfi tollsins.Hakaðu í meðan þú prófar sendingar og taktu hakið svo út.Nei

Þýðandi: gildin koma frá Deloitte eða Unimaze.

ReiturHvað hann gerirHvenær á að breytaSjálfgefið
EDI miðlariMiðlari EDI skeyta.Ekki breyta.SKOT-UT
EDI staðallEDI staðall skeytanna.Ekki breyta.SD.96A
EDI TilvísunarskráTilvísunarskrá þýðandans.Ekki breyta.CUSDEC96.REF
EDI vörpunarskráVörpunarskrá þýðandans.Ekki breyta.CUSDEC96.MAP

EDI

Úrvinnsla tollsvara

ReiturHvað hann gerirHvenær á að breytaSjálfgefið
Kostnaðarauki vöruKostnaðarauki sem bætir aðflutningsgjöldum ofan á kostnaðarverð vörunnar.Við uppsetningu, sjá Kostnaðaraukar.
Dýnamísk dreifing kostnaðaraukaDreifir kostnaðaraukanum eftir því hvort tollurinn er magntollur eða prósentutollur.Ef þú flytur inn vörur með magntolli.
Dreifing kostnaðaraukaEftir upphæð, Jafnt, Eftir þyngd eða Eftir rúmmáli.Eftir því hvernig gjöldin eiga að skiptast á vörurnar.Eftir upphæð
Lánadrottnanr. TollsLánardrottinn tollsins. Innkaupareikningur aðflutningsgjalda er stofnaður á hann.Við uppsetningu.
VSK fjárhagsreikningOpnar VSK vörpun.Við uppsetningu.
Nafn færslubókarsniðmátsFærslubókarsniðmát fyrir VSK til tolls.Ef VSK er fært í færslubók.
Nafn færslubókarbunkaFærslubókarbunki fyrir VSK til tolls.Eins.
Færa VSK línur í færslubókJá: VSK til tolls fer í færslubókina hér að ofan þegar skuldfærsla berst. Nei: VSK verður lína á innkaupareikningnum á tollinn.Eftir verklagi bókhaldsins.Nei
Reikningsnúmer lánadrottinsHvað fer í reikningsnúmer lánardrottins á innkaupareikningnum: tómt, Tollskýrslunúmer eða Sendingarnúmer.Eftir verklagi bókhaldsins.Tómt
Við móttöku á skuldfærsluGera ekkert, Búa til innkaupaskjöl eða Búa til og bóka innkaupaskjöl.Veldu bókun þegar ferlið er komið í fastar skorður.
Gjalddagi út frá greiðsluskilmálumGjalddagi innkaupaskjala reiknast út frá greiðsluskilmálum lánardrottins. Þá eru skjölin flokkuð eftir bókunardagsetningu en ekki gjalddaga.Eftir verklagi bókhaldsins.Nei
Tollar á handvirkt skráðar línurHvernig gjöld á línum án vörunúmers eða tengingar við pöntun eru bókuð, sjá hér fyrir neðan.Ef þú skráir línur handvirkt.Alltaf fjárhagsreikningur
Fjárhagsreikningur tollaFjárhagsreikningur aðflutningsgjalda á línum sem eru bókaðar á fjárhagsreikning og hjá tollmiðlara.Við uppsetningu.

Tollar á handvirkt skráðar línur:

  • Alltaf fjárhagsreikningur: gjöld á línum án vörunúmers eða tengingar við pöntun eða móttöku eru bókuð á Fjárhagsreikningur tolla.
  • Kostnaðarauki á aðrar línur skýrslu þar sem hægt er: gjöldin dreifast sem kostnaðarauki á aðrar línur skýrslunnar sem eru með vörunúmeri eða tengdar pöntun eða móttöku. Ef engin slík lína er til fara gjöldin á fjárhagsreikning.

Línur sem eru tengdar pöntun og með móttöku fá alltaf kostnaðarauka.

Úrvinnsla tollsvara

Gengi

ReiturHvað hann gerirHvenær á að breytaSjálfgefið
Tollagengi gilt fráHve lengi tollgengi gildir.Ekki breyta.1V
Slóð tollagengisVefþjónusta tollsins sem tollgengi er sótt frá.Ekki breyta.https://vefskil.tollur.is/tollalinan/gengi/Innflutningur.aspx

Tollkvótar

ReiturHvað hann gerirHvenær á að breytaSjálfgefið
Kostnaðarauki tollkvótaKostnaðarauki sem bætir tollkvóta ofan á kostnaðarverð vörunnar.Ef fyrirtækið á tollkvóta.
Fjárhagsreikningur tollkvótaFjárhagsreikningur fyrirframgreidds tollkvóta.Eins.
Fjárhagsreikningur ónotaðs tollkvótaFjárhagsreikningur sem ónotaður tollkvóti er afskrifaður á.Eins.
Nafn færslubókarsniðmáts tollkvótaFærslubókarsniðmát fyrir notkun tollkvóta.Eins.
Nafn færslubókarbunka tollkvótaFærslubókarbunki fyrir notkun tollkvóta.Eins.
Úthluta tollkvóta sjálfkrafaTollkvóta er úthlutað sjálfkrafa á tollskýrslulínur.Ef þú vilt ekki velja kvóta handvirkt.Nei

Slóðir gagnapakka

Slóðirnar segja kerfinu hvaðan á að sækja stofngögn tolls, tollskrár, lýsingar tollskrár, viðmiðunartöflu umbúða og líklegar umbúðir. Þær fyllast út við uppsetningu. Ekki breyta þeim.

Aðgerðir

AðgerðHvað hún gerir
Prófa tenginguAthugar hvort tenging næst við vefþjónustuna.
Skrá vefþjónustunotandaSkráir notandann sem kerfið notar í samskiptum við vefþjónustuna.
Eyða þjónustunotandaEyðir skráða notandanum.
Lesa inn gögn frá tolliLes kóta frá tollinum inn í töflur stofngagna tolls.
Flytja inn viðmiðunartöflu umbúðaLes inn viðmiðunartöflu umbúða, sjá Umbúðir.
Uppfæra pöntunarnúmerSetur pöntunarnúmer á allar tollskýrslur.
SamantektAthugar hvort eitthvað vanti í uppsetninguna.

Staðfesta

Búðu til tollskýrslu, veldu Villuathuga skjal og sendu hana til tolls. Engin villa kemur um stillingar.