Stillingar
Þessi síða er fyrir þann sem setur Tollakerfi upp og sýnir hvaða síður á að fara yfir og í hvaða röð.
Yfirlit
Tollakerfi býr til innflutnings- og útflutningstollskýrslur í Business Central, sendir þær til tollsins sem EDI skeyti og bókar aðflutningsgjöldin. Áður en fyrsta skýrslan er send þarf að tengja kerfið við tollinn, lesa inn stofngögn og tollskrá og segja kerfinu hvernig gjöldin eru bókuð. Uppsetning með aðstoð fer í gegnum flest af þessu í einu ferli, sjá Fyrstu skref.
Hvernig þetta virkar
Farðu yfir þessar síður í þessari röð:
- Stillingar tollakerfis: EDI tenging, númeraraðir, kostnaðaraukar og sjálfgefin gildi.
- Starfsmenn tollakerfis: starfsmenn sem skrá sig á tollskýrslur.
- Sniðmát tollskýrslu: sjálfgefin gildi á haus og línum nýrra skýrslna.
- Kostnaðaraukar: kostnaðaraukar og bókunargrunnur fyrir gjöld og kostnað.
- VSK vörpun: fjárhagsreikningar fyrir VSK til tollsins.
- Tollgengi: tollgengi gjaldmiðla.
- Vinnsluraðarfærslur: sækja tollsvör og tollgengi sjálfkrafa.
- Tollastillingar vörunúmera: tollnúmer og umbúðir á vörum.
- Umbúðir: vörpun mælieininga, viðmiðunartafla og megin söluumbúðir.
- Tollar landa: fríverslunarsamningar eftir löndum.
- Viðskiptamenn og lánardrottnar: sjálfgefið sniðmát tollskýrslu.
- EDI varpanir: uppbygging EDI skeytanna.
Tollskráin sjálf er lesin inn eins og lýst er í Lesa inn tollskrá.
Ávinningur
- Tollskýrslur fá rétt sjálfgefin gildi og þarf sjaldnar að leiðrétta þær.
- Gjöldin bókast sjálfkrafa á réttu reikningana og fara í kostnaðarverð vörunnar.
- Tollsvör og tollgengi berast án þess að nokkur þurfi að sækja þau.