Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Nota tollkvóta

Tollkvóti fer á tollskýrslulínur með vörur í tollkafla kvótans. Kerfið tekur frá magn af kvótanum og dregur það frá þegar skýrslan er bókuð.

Sviðsmynd

Dæmi ehf. flytur inn 1.200 kg af osti. Kvótinn er virkur og kerfið setur hann á línurnar þegar sendingarnúmerið er skráð á skýrsluna.

Áður en þú byrjar

  • Kvótinn er skráður, sjá Skrá tollkvóta.
  • Kvóti er virkur fyrir línu þegar tollkaflinn passar, kvótinn er ekki lokaður og Viðmiðunardagsetning skýrslunnar er innan tímabils kvótans.

Skref fyrir skref

  1. Ef Úthluta tollkvóta sjálfkrafa er virkt í Stillingar tollakerfis fer kvótinn á línurnar þegar sendingarnúmerið er skráð á innflutningsskýrsluna.

  2. Annars veldu Línur með mögulegan tollkvóta á skýrslunni. Síðan Tollkvótar tollskýrslulína opnast.

    Tollkvótar á tollskýrslulínum

  3. Veldu kvóta á línurnar:

    • Setja sjálfgefin kvóta á allt eða Setja sjálfgefin kvóta á kafla setja fyrsta virka kvótann á línurnar.
    • Setja kvóta á allt m. athugun eða Setja kvóta á kafla m. athugun spyrja hvaða kvóta á að nota ef fleiri en einn eru virkir.
  4. Kerfið býr til frátekna tollkvótafærslu fyrir hverja línu. Magnið er nettóþyngd línunnar, en þó ekki meira en það sem er eftir af kvótanum. Sjáðu færslurnar með Tollkvótafærslur.

    Tollkvótafærslur

Niðurstaða

  • Við skuldfærslu (CUSTAR) fer kvótinn á innkaupareikninginn til tollsins sem lína með Kostnaðarauki tollkvóta og mínuslína á Fjárhagsreikningur tollkvóta.
  • Þegar skýrslan er bókuð fá færslurnar stöðuna Bókað. Ef ekkert er eftir af kvótanum lokast hann.

Bókaðar tollkvótafærslur

Ef eitthvað fer úrskeiðis

  • „Tollkvóti … hefur verið notaður að fullu í línu …“. Kvótinn dugði ekki fyrir allri línunni. Restin fer á venjulegan toll eða á annan kvóta.
  • „Get ekki eytt tollkvótafærslu sem er tengd skýrslu“. Fjarlægðu kvótann af línunni í staðinn.

Sjá Aðstoð.