Skrá tollkvótafærslu handvirkt
Ef kvóti er notaður á sendingu sem fer ekki í gegnum tollskýrslu í Tollakerfi skráir þú notkunina handvirkt. Þá getur kerfið stofnað innkaupareikning á tollinn fyrir kvótanum.
Sviðsmynd
Tollmiðlari tollafgreiddi sendingu fyrir Dæmi ehf. og notaði 300 kg af ostakvótanum. Starfsmaðurinn skráir notkunina á kvótann.
Áður en þú byrjar
- Kvótinn er ekki lokaður.
- Lánadrottnanr. Tolls, Kostnaðarauki tollkvóta og Fjárhagsreikningur tollkvóta eru fylltir út í Stillingar tollakerfis.
Skref fyrir skref
-
Opnaðu Tollkvótar, veldu kvótann og veldu Skrá færslu handvirkt.
-
Fylltu út Magn og Sendingarnúmer.

-
Veldu Skrá, eða Skrá og stofna innkaupareikning ef þú vilt reikninginn strax.
-
Ef þú stofnar reikning spyr kerfið Viltu opna innkaupareikninginn?

Niðurstaða
Færslan er á Færslur kvótans. Innkaupareikningurinn er á Lánadrottnanr. Tolls með:
- línu með Kostnaðarauki tollkvóta fyrir upphæðinni (magn × upphæð per magn), og
- mínuslínu á Fjárhagsreikningur tollkvóta.
Reikningsnúmer lánadrottins er sendingarnúmerið.

Færslur sem voru skráðar án reiknings setur þú síðar á einn reikning með Stofna innkaupreikning útfrá óunnum færslum.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
- Skrá færslu handvirkt er óvirk. Kvótinn er lokaður.
- „Get ekki eytt tollkvótafærslu með stöðu bókuð. Stofnaðu leiðréttingu í staðinn“. Veldu Leiðrétta á færslunni og skráðu mismuninn.
Sjá Aðstoð.