Tollskrá
Þessi síða er fyrir þá sem vinna tollskýrslur og vilja vita hvað reitir og aðgerðir gera. Hún lýsir tollskránni og tollnúmerunum.
Yfirlit
Tollskráin heldur utan um tollskrárnúmer með tollum, gjöldum, magntölum, leyfum og bönnum. Tollakerfi bætir þessu við staðlaða tollskrá Business Central. Hvernig tollskráin er lesin inn er í Lesa inn tollskrá.

Reitir
Þegar þú smellir á tollskrárnúmer, til dæmis 01012100, opnast leit að því númeri í veftollskrá Skattsins.
| Reitur | Hvað hann sýnir |
|---|---|
| Undanþága | Undanþága sem fyllist sjálfkrafa á tollskýrslulínu þegar tollnúmerið er valið. |
| Útrunnið | Tollskrárnúmerið var ekki í síðustu tollskrá sem var lesin inn. |
| Megin söluumbúðir viðmiðunartafla, Megin söluumbúðir raunmagn | Umbúðir tollnúmersins. Sjá Umbúðir á tollskýrslulínum. |
| Einingartölu krafist | Tollnúmerið krefst einingartölu (stykkjatölu) á tollskýrslu. |
Kröfur tollnúmers
Undir tollskrárnúmerinu eru hlutar með kröfum tollnúmersins:
| Hluti | Hvað hann sýnir |
|---|---|
| Tollar | Tollar tollnúmersins. Kóti kröfu tengist tolli lands samkvæmt fríverslunarsamningi. Sjá Tollar landa. |
| Gjöld | Önnur gjöld, til dæmis vörugjöld. |
| Magntölur | Magntölur sem þarf, til dæmis NET (nettóþyngd), LIT (lítrar) eða PRO (áfengisprósenta). |
| Leyfi, Bönn | Leyfi og bönn sem gilda um tollnúmerið. |
| Reitur | Hvað hann sýnir |
|---|---|
| Kóti kröfu | Kóti tolls, gjalds, magntölu, leyfis eða banns. |
| Prósenta | Prósenta tolls eða gjalds. |
| Upphæð per magn | Tollur eða gjald á hverja einingu, til dæmis kg eða lítra. |
| Fyrir innflutning, Fyrir útflutning | Hvort krafan gildir í innflutningi, útflutningi eða hvoru tveggja. |
Aðgerðir
| Aðgerð | Hvað hún gerir |
|---|---|
| Flytja inn tollskrá (Innflutningur), Flytja inn tollskrá (útflutningur) | Les inn tollskrá úr skrá frá tollinum. |
| Sækja gögn | Sækir tollskrána og stofngögn sjálfkrafa. |
| Flytja inn lýsingar | Les inn lýsingar tollskrárnúmera. |
| Opna veftollskrá Skattsins | Opnar veftollskrána í vafra, þar sem þú getur flett upp einstökum tollnúmerum. |