Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Aðstoð

Hér eru skilaboðin sem Tollakerfi birtir, flokkuð eftir því hvar þú rekst á þau, ásamt því sem á að gera. %1 og %2 standa fyrir breytilegt gildi, til dæmis númer. Villur við villuathugun tollskýrslu birtast á síðunni Skýrsluvillur, sjá Villuathuga og senda. Neðst eru vandamál sem koma upp án skilaboða.

Sum skilaboð eru ekki þýdd og birtast á ensku líka í íslensku viðmóti.

Búa til og senda tollskýrslu

SkilaboðSkýringHvað á að geraSjá
„Númerasería hefur ekki verið sett upp fyrir innflutningsskýrslur. Opnaðu stillingar tollakerfis og veldu númeraseríu.“Engin númeraröð er valin fyrir tollskýrslur í stillingunum.Settu númeraseríu í Stillingar tollakerfis.Búa til innflutningstollskýrslu
„Fann engar innkaupapantanir til að bæta við“Allar innkaupapantanir eru þegar á tollskýrslum.Ekkert þarf að gera. Búðu til nýja innkaupapöntun ef hana vantar.Búa til innflutningstollskýrslu
„Ekki hægt að bæta við innkaupapöntun á tollskýrslu sem hefur verið send til tolls.“Skýrslan hefur verið send til tolls.Búðu til nýja tollskýrslu fyrir pöntunina, eða leiðréttu skýrsluna í samráði við tollinn.Búa til innflutningstollskýrslu
„Viðtakandi má ekki vera sá sami og tollmiðlari“Villuathugun finnur sömu kennitölu á viðtakanda og tollmiðlara.Veldu réttan viðskiptamann.Tollmiðlun
„Athugið að Tollverðmæti línu er aðeins notað þegar Upphæð er 0“Línan hefur verð. Tollverðmæti línu er þá ekki notað og tollverðið kemur af upphæð línunnar.Settu Upphæð á 0 ef tollverðið á að koma úr Tollverðmæti línu.Tollafgreiða sýnishorn
„Ein eða fleiri línur hava nettóþyngd meiri en brúttóþyngd. Þetta þýðir að skýrslan getur ekki verið send til tolls án frekar breytinga. Viltu samt vista þessar breytingar?“Nettóþyngd línu er hærri en brúttóþyngd. Tollurinn tekur ekki við skýrslunni þannig.Svaraðu Já til að vista og lagaðu svo þyngdina áður en þú sendir. Ef þú svarar nei kemur „Notandi hætti við aðgerð“ og ekkert er vistað.Dreifa þyngd á tollskýrslu
„Nettó þyngd er hærri en samtals brúttóþyngd til að dreifa.“Samtals nettóþyngd er hærri en heildarþyngdin.Lagaðu tölurnar.Dreifa þyngd á tollskýrslu
„Eftir að hafa dregið frá frátekna þyngd (%1 kg) frá heildarþyngd (%2 kg) er aðeins %3 kg eftir til að dreifa“Línurnar sem þú slepptir eru of þungar miðað við heildarþyngdina.Taktu hakið af einhverjum þeirra eða hækkaðu heildarþyngdina.Dreifa þyngd á tollskýrslu
„Ekki hægt að flytja út skýrslu með %1 villur“Skýrslan hefur villur.Veldu Villuathuga skjal og lagaðu þær.Villuathuga og senda tollskýrslu

Kostnaður og skuldfærsla

SkilaboðSkýringHvað á að geraSjá
„Tollskýrsla má að hámarki hafa 23 kostnaðarlínur með upphæð þar sem CUSDEC-skilaboðin geta ekki innihaldið fleiri.“Skeytið til tolls hefur 25 upphæðareiti. Tveir fara í heildarupphæð reiknings og vátryggingu.Sameinaðu línur.Skrá kostnað á tollskýrslu
„Settu kostnaðargerð á kostnaðaraukann ... áður en hann er notaður á kostnaðarlínu.“Kostnaðaraukinn hefur enga Kostnaðargerð, svo kerfið veit ekki í hvaða reit skeytisins upphæðin fer.Opnaðu Kostnaðaraukar og veldu Kostnaðargerð.Skrá kostnað á tollskýrslu
„Reitur Lánadrottinn má ekki vera tómur“Kostnaðarlínan á að verða að innkaupareikningi en enginn lánardrottinn er valinn.Veldu lánardrottin, eða hakaðu í Ekki stofna innkaupareikning.Skrá kostnað á tollskýrslu
„Það á eftir að bóka móttöku fyrir línur í Tollskýrslu. Ef þú heldur áfram mun engum kostnaðarauka vera úthlutað á móttökulínur. Viltu halda áfram?“Móttaka er ekki bókuð.Veldu Nei, bókaðu móttökuna og reyndu aftur. Ef þú heldur áfram þarftu að úthluta kostnaðaraukanum handvirkt.Skuldfærsla
„Það á eftir að bóka móttöku fyrir línur í tollskýrslu %1. Bókaðu móttöku áður en hægt er að vinna úr CUSTAR skeyti.“Sama villa þegar CUSTAR er unnið sjálfkrafa.Bókaðu móttökuna og veldu Vinna úr svari á tollsvarinu.Skuldfærsla
„Skýrsla %1 er ekki til í kerfinu. Viltu samt stofna innkaupareikning fyrir þetta CUSTAR skeyti?“Skuldfærslan er fyrir skýrslu sem er ekki í kerfinu.Veldu Já ef þú vilt samt reikningsfæra gjöldin.Skuldfærsla
„Get ekki bókað innkaupaskjöl nema reikningsnúmer lánadrottins sé valið“Kemur í stillingunum þegar þú velur Búa til og bóka innkaupaskjöl en Reikningsnúmer lánadrottins er tómt.Veldu fyrst gildi í Reikningsnúmer lánadrottins.Skuldfærsla
„Það eru tollskýrslulínur sem hafa ekki bókaða móttöku. Viltu samt halda áfram?“Sumar pantanir á skýrslunni eru ekki mótteknar. Ef þú heldur áfram fá þær línur ekki kostnaðarauka.Veldu Nei, bókaðu móttökuna og reyndu aftur.Tengja flutningsgjaldareikning

Bóka og leiðrétta

SkilaboðSkýringHvað á að geraSjá
„Staða verður að vera %1 fyrir skýrslur af tegundinni %2“Innflutningsskýrsla verður að vera Skuldfærð.Bíddu eftir skuldfærslu tollsins.Bóka tollskýrslu
„Tollskýrslan er með óunnar tollsvör“Tollsvar á skýrslunni hefur ekki verið unnið.Vinndu úr svörunum áður en þú bókar.Bóka tollskýrslu
„Aborted“Þú svaraðir Nei við spurningunni um innkaupaskjölin. Skýrslan er ekki bókuð.Bókaðu innkaupaskjölin fyrst, eða bókaðu aftur og svaraðu Já.Bóka tollskýrslu
„Það var ekki hægt að bóka öll skjöl:%1“Eitt eða fleiri innkaupaskjöl stöðvuðust við bókun. Villan hvers skjals er talin upp.Lagaðu skjölin og bókaðu aftur.Bóka tollskýrslu
„Tollskýrsla %1 er þegar til óbókuð, tollskýrslunr: %2“Leiðrétting er þegar í vinnslu.Opnaðu óbókuðu skýrsluna.Leiðrétta tollskýrslu
„Það eru %1 bókaðar tollskýrslur fyrir sömu tollskýrslu með hærra númer tollafgreiðslu.“Þú valdir eldri útgáfu.Veldu nýjustu bókuðu skýrsluna.Leiðrétta tollskýrslu
„Staða verður að vera Útflutningsheimild fyrir skýrslur af tegundinni Útflutningur“Tollurinn hefur ekki gefið útflutningsheimild.Sæktu tollsvörin og bíddu eftir heimildinni.Bóka útflutningstollskýrslu
„Tollskýrslan er með óunnar tollsvör“Tollsvar á skýrslunni hefur ekki verið unnið.Opnaðu Tollsvör á skýrslunni og keyrðu Vinna úr svari.Bóka útflutningstollskýrslu

Tollkvótar

SkilaboðSkýringHvað á að geraSjá
„Magn getur ekki verið 0“Kvótafærsla þarf magn.Fylltu út Magn keypt (kg).Skrá tollkvóta
„Tollkvóti … hefur verið notaður að fullu í línu …“Kvótinn dugði ekki fyrir allri línunni. Restin fer á venjulegan toll eða á annan kvóta.Ekkert þarf að gera. Skráðu nýjan kvóta ef þú átt eftir að fá meiri úthlutun.Nota tollkvóta
„Get ekki eytt tollkvótafærslu sem er tengd skýrslu“Færslan er frátekin fyrir línu á tollskýrslu.Fjarlægðu kvótann af línunni í staðinn.Nota tollkvóta
„Get ekki eytt tollkvótafærslu með stöðu bókuð. Stofnaðu leiðréttingu í staðinn“Bókaðar kvótafærslur eru ekki eyddar.Veldu Leiðrétta á færslunni og skráðu mismuninn.Skrá tollkvótafærslu handvirkt
„Get ekki lokað tollkvóta sem hefur fráteknar færslur…“Kvótinn er á opinni skýrslu.Bókaðu skýrsluna eða fjarlægðu kvótann af henni.Afskrifa ónotaðan tollkvóta
„Fann ekki færslubók“Færslubókarbunkinn í stillingunum er ekki til.Stofnaðu bunkann eða veldu annan í stillingum tollakerfis.Afskrifa ónotaðan tollkvóta
„Lokun tollkvóta mistókst. Bókað magn þarf að hafa sama gildi og upprunalegt magn.“Eitthvað er eftir af kvótanum.Notaðu Færa ónotaðan kvóta í færslubók í staðinn fyrir Loka tollkvóta.Afskrifa ónotaðan tollkvóta

Uppsetning

SkilaboðSkýringHvað á að geraSjá
„Númerasería hefur ekki verið sett upp fyrir innflutningsskýrslur. Vinsamlegast opnaðu Stilling Tollakerfis og veldu númeraseríu.“Númeraröð tollskýrslna vantar í stillingarnar.Veldu númeraröð í Stillingar tollakerfis og reyndu aftur.Stillingar tollakerfis

Vandamál án skilaboða

VandamálSkýringHvað á að geraSjá
Pöntun sést ekki í listanumHún er þegar á annarri tollskýrslu.Fjarlægðu hana þaðan fyrst.Búa til innflutningstollskýrslu
Línu vantar tollnúmerVaran hefur ekkert tollnúmer í tollastillingum vörunúmera.Settu tollnúmer á vöruna og veldu Endurreikna skýrslu. Endurreikningur sækir gildin aftur úr pöntununum og getur skrifað yfir breytingar sem þú gerðir.Búa til innflutningstollskýrslu
Sem tollmiðlari sést ekkiNota sem tollmiðlari er ekki virkt í stillingunum.Kveiktu á Nota sem tollmiðlari í stillingum tollakerfis.Tollmiðlun
Enginn reikningur var stofnaðurÁbyrgðaraðili greiðslu er Viðtakandi.Breyttu sniðmáti viðskiptamannsins ef hann á ekki að vera með tollkrít.Tollmiðlun
Vöruverð á tollskýrslulínunni er 0Tollverðmæti línu var skráð eftir að skýrslan var búin til.Veldu Endurreikna skýrslu.Tollafgreiða sýnishorn
Lína er rauðNettóþyngd línunnar er meiri en brúttóþyngdin.Lagaðu hana áður en þú vistar.Dreifa þyngd á tollskýrslu
Engar umbúðir í listanumViðmiðunartaflan hefur ekki verið lesin inn.Lestu viðmiðunartöfluna inn, sjá Umbúðir.Umbúðir á tollskýrslulínum
Rangar umbúðir koma sjálfkrafaMegin söluumbúðir vörunnar ganga framar umbúðunum á tollnúmerinu.Athugaðu megin söluumbúðirnar á vörunni í Tollastillingar vörunúmera.Umbúðir á tollskýrslulínum
Breyta þarf skýrslu sem hefur verið sendSend skýrsla er læst.Það er aðeins hægt í samráði við tollinn, sjá Leiðrétta tollskýrslu.Villuathuga og senda tollskýrslu
Ekkert svar berstTollurinn hefur ekki svarað enn.Reyndu aftur síðar.Sækja svör frá tolli
Ekki er hægt að bóka skýrslunaHún hefur óunnin svör.Opnaðu Tollsvör og veldu Vinna úr svari.Sækja svör frá tolli
Kostnaðaraukanum var ekki úthlutaðAðeins línum sem hefur ekki verið úthlutað er úthlutað.Eyddu úthlutuninni og veldu aðgerðina aftur.Tengja flutningsgjaldareikning
Aðgerðin Leiðrétta er óvirkÓbókuð skýrsla hefur ekki verið send.Breyttu skýrslunni beint. Hún er enn opin.Leiðrétta tollskýrslu
Skýrslan fer á Á villuTollurinn sendi villuskeyti.Opnaðu Allar villur frá tolli, lagaðu skýrsluna og sendu hana aftur.Búa til útflutningstollskýrslu
Reikningur kemur ekki í síunniHann er þegar á annarri skýrslu.Fjarlægðu hann þaðan með Fjarlægja.Búa til útflutningstollskýrslu
Skrá færslu handvirkt er óvirkKvótinn er lokaður.Opnaðu kvótann aftur ef það á að skrá á hann.Skrá tollkvótafærslu handvirkt
Tollnúmer á vöru finnst ekki lengurTollnúmerinu var breytt í nýju tollskránni.Settu nýtt tollnúmer á vöruna, sjá Tollastillingar vörunúmera.Lesa inn tollskrá