Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Stilla rafræn skjöl fyrir lánardrottin

Þessi síða er fyrir þá sem stofna og viðhalda lánardrottnum. Þegar lánardrottnaspjaldið er rétt stillt verða reikningar frá birginum að réttum innkaupaskjölum í BC og pantanir berast honum rafrænt.

Tilgangur

Á lánardrottnaspjaldinu ræðurðu hvort innkaupapantanir fara rafrænt til birgisins og hvernig innkomnir reikningar frá honum verða að innkaupaskjölum í BC. Hér er farið yfir alla reiti í flokknum Rafrænir Reikningar og hvað hver þeirra breytir.

Forsendur

Heimildir

Notandinn þarf heimildasafnið EDOCS og heimild til að breyta lánardrottnum.

Skref

  1. Opnaðu lánardrottnaspjald birgisins og finndu flokkinn Rafrænir Reikningar.

    Flýtiflipinn Rafrænir Reikningar á lánardrottnaspjaldi Prófunar hf.

  2. Stilltu reitina fyrir rafrænar pantanir:

    ReiturÁhrif
    DreifisvæðiDreifisvæðið sem rafrænar pantanir fara um. Ræður líka Gerð eDoc skjals. Án dreifisvæðis verður ekkert rafrænt skjal til þegar pöntun er gefin út.
    Gerð eDoc skjalsEkki breytanlegt. Fær sjálfgefinn staðal valins dreifisvæðis.
    Nota grunnmælieininguÚtsendar pantanir nota kóða grunnmælieiningar vörunnar í stað mælieiningar línunnar.
    EAN KenniGLN-númer birgisins. Það fer á pöntunina sem auðkenni birgisins og er notað til að finna birginn í innkomnum EDI-skjölum. Ef Nota pöntunaraðsetur er valið í uppsetningu er EAN Kenni pöntunaraðsetursins notað, sé það útfyllt.
    VaratölvupóstfangNetfang sem Unimaze notar þegar pöntun er send sem JSON-lýsigögn og birgirinn getur ekki tekið við rafrænu skjali. Ef reiturinn er auður er netfang aðilans í skjalinu notað og vistað hér.
    X400 PósthólfX400-pósthólf fyrir EDI-skjöl.
  3. Stilltu reitina fyrir innkomna reikninga:

    ReiturÁhrif
    Uppsetning bókunartextaSnið bókunarlýsingar á innkaupaskjalinu. Ef reiturinn er auður er sjálfgefin stilling úr uppsetningu notuð; sjá bókunarlýsingar.
    Athuga PöntunarnúmerEf reikningurinn vísar í pöntun athugar kerfið hvort innkaupapöntun með því númeri sé til. Ef ekki kemur villan Tilvísuð pöntun <nr.> er ekki til. Reikningur án pöntunartilvísunar er ekki stöðvaður. Til að sleppa athuguninni á einu skjali velurðu Sleppa athugun á pöntunartilvísun á rafræna skjalinu.
    Sameiginleg vörunr.Veldu þegar birgirinn notar sömu vörunúmer og þú. Kerfið spyr Ertu viss um að Lánadrottinn noti sömu vörunúmer? Þegar engin vörpun finnst stofnar kerfið vörpun á vöruna með sama númeri, ef hún er til.
    Hunsa línurAðeins haus innkaupaskjalsins er stofnaður. Línur rafræna skjalsins eru ekki fluttar og þú skráir línurnar sjálfur.
    Sameina línurLínur með sama númer eru sameinaðar í eina línu með magnið 1, samanlagða upphæð og lýsinguna „<nafn birgis> - <nr. reiknings lánardrottins>“. Kostnaðarauka er þá ekki úthlutað sjálfkrafa.
    Uppruni lýsingar úr eDoc línuHvaða texti fer í lýsingu innkaupalínunnar: Lýsing, Nafn, Lýsing + Nafn, Nafn + Lýsing eða Lýsing frá vörpun. Sjálfgefið notar stillinguna í uppsetningu. Ef valinn texti er auður er lýsing vörunnar notuð, síðan nafnið og loks bókunarupplýsingar línunnar.
  4. Meira þarf ekki fyrir rafrænar pantanir. Þegar innkaupapöntun eða skilapöntun á birginn er gefin út stofnar kerfið rafrænt skjal, nema reikningur eða kreditreikningur birgisins sé þegar skráður á hana. Sjá Senda innkaupapöntun.

Á spjaldinu eru líka þessar aðgerðir:

  • Rafrænir Reikningar (Ctrl+E) opnar rafræn skjöl birgisins.
  • Varpanir rafrænna reikninga opnar varpanir birgisins. Ef engar eru til kemur Engar varpanir fundust fyrir þennan lánardrottinn.
  • Mynda rafræna reikninga stofnar rafræn skjöl fyrir innkaupapantanir birgisins frá Frá Bókunardags. sem eiga ekki rafrænt skjal fyrir. Að lokum kemur Bjó til <fjöldi> rafræna reikninga útfrá innkaupapöntunum.

Staðfesta

  • Gefðu út prufupöntun á birginn. Í Rafrænir Reikningar á að birtast skjal af gerðinni Pöntun -út.
  • Þegar fyrsti reikningurinn berst skaltu opna rafræna skjalið og velja Athuga skjal. Engar villur eiga að vera, og innkaupareikningurinn sem verður til á að hafa línur og lýsingar eins og þú stilltir.
  • Ef eitthvað stöðvast, sjá Aðstoð.