Skrá varpanir fyrir móttekin skjöl
Þessi síða er fyrir þá sem taka á móti rafrænum reikningum frá birgjum. Með réttum vörpunum skráir kerfið innkomin skjöl í BC án handvirkra leiðréttinga.
Tilgangur
Vörpun segir kerfinu hvað gildi í rafrænu skjali þýðir í BC: vörunúmer lánardrottins verður vara, fjárhagslykill, eign eða kostnaðarauki, mælieining verður BC-mælieining og bókunarupplýsingar verða víddir. Án vörpunar fyrir vöru stöðvast skjalið við Athuga skjal.
Forsendur
- Rafrænir reikningar eru settir upp.
- Lánardrottinn er til í BC og stilltur fyrir rafræn skjöl.
Heimildir
Notandinn þarf heimildasafnið EDOCS.
Skref
-
Opnaðu rafrænt skjal frá lánardrottninum og veldu Varpanir. Þá opnast eDoc Varpanir afmarkað á kennitölu lánardrottins. Ef skjalið hefur engan sendanda færðu Birgi ekki gefinn. Þú kemst líka í varpanirnar með Varpanir rafrænna reikninga á lánardrottnaspjaldinu.
-
Stofnaðu línu fyrir hverja vöru:

Reitur Gildi eSkjal aðili Kennitala lánardrottins. Fyllist út sjálfkrafa þegar listinn er opnaður úr skjali. eSkjal Tegund Vara eSkjal Kenni Vörunúmer lánardrottins eins og það kemur í skjalinu. Má vera afmörkun, sjá Nota afmarkanir í vöruvörpunum. eSkjal Tegund 2 / eSkjal Kenni 2 Valfrjálst. Bókunarupplýsingar, Viðbótarvísun skjals eða Eiginleiki vöru og gildið, ef sama vara á að fara á mismunandi staði eftir því gildi. Skattflokkur Valfrjálst. Vörpunin gildir þá aðeins um línur í þeim skattflokki, sjá Skattflokkar. BC tegund Vara, Fjárhagur, Eign eða Kostnaðarauki (vöru). BC Kenni 1 Númerið í BC. -
Ef lánardrottinn sendir mælieiningar sem eru ekki til í BC skaltu bæta við línu með eSkjal Tegund Mælieining, sjá Mælieiningar.
-
Til að varpa bókunarupplýsingum í víddir, sjá Varpa fleiri en einni vídd.
-
Bóka VSK á BC Kenni 1 er aðeins fyrir vörpun á fjárhagslykil án VSK. Línan er þá bókuð með VSK innifalinn á fjárhagslykilinn og VSK-prósentan er ekki borin saman. Á annan fjárhagslykil færðu villu og kerfið spyr hvort alltaf eigi að bóka VSK á lykilinn.
Í hvaða röð kerfið leitar
Fyrir innkaupareikninga og innkaupakreditreikninga leitar kerfið aðeins í vörpunum lánardrottins (eftir kennitölu) með eSkjal Tegund Vara:
- Vörpunum úr samþykktakerfi Unimaze, ef það er virkt.
- Vöru með bókunarupplýsingum línunnar í eSkjal Kenni 2.
- Vöru með viðbótarvísun skjals.
- Vöru með eiginleika vöru.
- Vöru eingöngu (tómt eSkjal Kenni 2).
- Afmörkunum í eSkjal Kenni.
Í skrefum 2 og 4–6 eru línur með sama Skattflokkur og skjallínan valdar fyrst og síðan línur með tómum Skattflokkur.
Finnist engin vörpun reynir kerfið að stofna hana sjálft. Það leitar að vöru með sama vörunúmer lánardrottins á vöruspjaldinu, á lánardrottnum vörunnar eða á birgðahaldseiningu, og ef Sameiginleg vörunr. er valið á lánardrottninum, að vöru með sama vörunúmer. Finnist ekkert færðu Ekki tókst að varpa vöru %1 (%2). Engin vara er til með samsvarandi vörunr. lánadr. eða Ekki tókst að varpa vöru %1 (%2). Engin vara er til með samsvarandi vörunr. Vörpunarlínur sem kerfið stofnar sjálfkrafa eru merktar Færsla búin til af kerfi.
Fyrir mótteknar pantanir frá viðskiptamönnum (Pöntun -inn og Skilapöntun -inn) er röðin önnur: vörpun aðilans, vöruflokkur aðilans, almenn vörpun (tómt eSkjal aðili), almennur vöruflokkur og loks afmarkanir aðilans. Almennar varpanir og Skilyrt gilda aðeins hér.
Stofna varpanir út frá eldri innkaupalínum
Stofna varpanir á Uppsetning rafrænna reikninga stofnar vörpun fyrir hverja opna innkaupalínu sem hefur vörunúmer lánardrottins, á vöru eða fjárhagslykil. Í lokin færðu Samtals %1 varpanir voru myndaðar. Línurnar eru skráðar á númer lánardrottins í eSkjal aðili, en uppflettingin notar kennitölu. Yfirfarðu því eSkjal aðili á nýju línunum.
Staðfesta
- Veldu Athuga skjal á rafræna skjalinu. Vörpun vantar fyrir eSkjals vöru: %1 eða Ekki tókst að varpa vöru á ekki að koma.
- Veldu Skrá skjal í BC og athugaðu að línurnar fari á réttar vörur eða lykla.
- Ef eitthvað stöðvast, sjá Aðstoð.