Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Viðhengi á rafrænum skjölum á útleið

Fyrir þá sem senda fylgiskjöl með rafrænum reikningum: hér sérðu hvaða viðhengi fylgja sjálfkrafa, hvernig þú bætir við viðhengi og hvað þú gerir ef staðallinn leyfir ekki viðhengi.

Tilgangur

Viðhengi sem eru á upprunaskjalinu í BC, til dæmis bókuðum sölureikningi, eru afrituð sjálfkrafa yfir á rafræna skjalið þegar það er búið til. Tenglar á upprunaskjalinu fylgja líka, sem tenglar. Auk þess geturðu bætt viðhengjum handvirkt við rafrænt skjal á útleið áður en það er sent, og fjarlægt viðhengi sem staðallinn leyfir ekki.

Hvaða skráartegundir má senda fer eftir reitnum BII Staðall í Uppsetning rafrænna reikninga:

BII StaðallLeyfðar skráartegundir
TS236PDF, PNG, JPEG, CSV, XLSX og ODS.
TS136PDF, JPG/JPEG, PNG, TIF/TIFF, GIF, DOC, XLS, XLSX, PPT, XML, HTML, TXT, CSV og ODS.
  • TS 236 (PEPPOL BIS Billing 3.0) leyfir aðeins tegundirnar í töflunni. Aðrar tegundir, til dæmis HTML, XML, DOC, XLS og GIF, eru ekki leyfðar.
  • TS 136 þekkir ekki nýrri tegundir eins og XLSX og ODS með nafni. Þær eru sendar sem almenn skrá (application/octet-stream), en skráarheitið heldur endingunni svo móttakandinn sér hvers konar skrá er um að ræða.
  • Viðhengi á upprunaskjalinu sem eru ekki í TS136-línunni, til dæmis DOCX, PPTX, ODT eða BMP, eru ekki afrituð yfir á rafræna skjalið. Önnur viðhengi eru afrituð óháð BII Staðall, svo með TS236 getur afritað viðhengi stoppað sendinguna (sjá Ef eitthvað fer úrskeiðis).

Forsendur

  • Skjalið er á útleið og hefur ekki verið sent, það er sölureikningur, sölukreditreikningur, pöntun, skilapöntun, þjónustureikningur eða þjónustukreditreikningur.
  • Viðhengi eru aðeins send ef Senda viðhengi er valið á dreifisvæðinu.

Skref

  1. Opnaðu rafræna skjalið, til dæmis með Rafrænn reikningur á bókaða reikningnum.
  2. Í upplýsingakassanum Viðhengi velurðu Bæta við viðhengi. Ekki er hægt að stofna nýja línu beint í upplýsingakassanum.
  3. Veldu skrána sem á að hengja við.

Upplýsingakassinn Viðhengi með tengli á reikning.

Myndin sýnir viðhengi á þegar sendu dæmiskjali. Á slíku skjali er ekki hægt að bæta við viðhengjum.

Niðurstaða

Viðhenginu er bætt við rafræna skjalið og það merkt Bætt við handvirkt. Það er sent með skjalinu þegar þú velur Senda.

Endurgera byggir viðhengi rafræna skjalsins upp á nýtt úr upprunaskjalinu, svo viðhengi sem var bætt við handvirkt eru fjarlægð. Ef eitthvert skjalanna sem á að endurgera hefur ekki verið sent og er með slíkt viðhengi spyr kerfið fyrst: Þessi rafrænu skjöl eru með viðhengi sem var bætt við handvirkt: … Endurgera endurbyggir viðhengi úr upprunaskjalinu, svo þessi viðhengi verða fjarlægð. Viltu halda áfram? Ef þú svarar Nei er ekkert skjal endurgert.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

  • Skráartegund ekki studd Skráin er af tegund sem BII Staðall leyfir ekki og henni er ekki bætt við. Með TS236 birtist Ekki er hægt að hengja skrána "…" við því TS 236 (PEPPOL BIS Billing 3.0) leyfir ekki "…" skrár. Leyfðar tegundir eru PDF, PNG, JPEG, CSV, XLSX og ODS., annars Ekki er hægt að hengja skrána "…" við því "…" er ekki studd tegund viðhengis. Vistaðu skrána sem leyfða tegund, til dæmis PDF, og reyndu aftur.

  • Ekki er hægt að bæta við viðhengjum Einungis er hægt að bæta viðhengjum við skjöl á útleið sem hafa ekki verið send. Rafræna skjalið … er … með stöðuna …. Skjalið er á innleið eða hefur stöðuna Sending OK!. Þá er Bæta við viðhengi líka óvirkt.

  • Tegund viðhengis ekki leyfð í TS 236 Viðhengið "…" á rafræna skjalinu … er af MIME tegundinni "…", sem TS 236 (PEPPOL BIS Billing 3.0) leyfir ekki. … Þegar BII Staðall er TS236 athugar kerfið viðhengin þegar XML-skjalið er búið til, til dæmis við sendingu, og skjalið er ekki sent. Viðhengi sem eru aðeins tenglar eru ekki athuguð, því þau eru ekki send sem skrá. Villan býður upp á tvær aðgerðir:

    AðgerðHvað hún gerir
    Fjarlægja viðhengiEyðir viðhenginu sem villan á við úr rafræna skjalinu svo hægt sé að senda það.
    Opna rafrænt skjalOpnar spjald rafræna skjalsins.

    Þú getur líka eytt viðhenginu í upplýsingakassanum Viðhengi og bætt við leyfðri tegund með Bæta við viðhengi, eða lagað viðhengin á upprunaskjalinu og valið Endurgera.

Öll skilaboð eru í Aðstoð.