Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Senda rafræna innkaupapöntun eða skilapöntun

Þegar lánardrottinn er með dreifisvæði býr útgáfa innkaupapöntunar eða innkaupaskilapöntunar til rafrænt skjal á útleið. Hér sérðu hvernig þú undirbýrð lánardrottininn, gefur pöntunina út og sendir rafræna skjalið.

Sviðsmynd

Dæmi ehf. pantar reglulega vörur frá Prófun hf. Innkaupafulltrúinn vill að pantanir og skilapantanir berist Prófun hf. rafrænt um leið og þær eru gefnar út.

Áður en þú byrjar

  • Lánardrottinn er með Dreifisvæði í stillingum rafrænna reikninga lánardrottins. Gerð eDoc skjals fylgir dreifisvæðinu.
  • Ef lánardrottinn vill pantanir í grunnmælieiningu skaltu velja Nota grunnmælieiningu á lánardrottnaspjaldinu.

Skref fyrir skref

  1. Stofnaðu innkaupapöntun á Prófun hf. Skildu reikningsnúmer lánardrottins eftir autt; ef það er útfyllt lítur kerfið svo á að reikningur sé þegar kominn og býr ekki til rafræna pöntun.

  2. Í hópnum Rafrænn reikningur á flýtiflipanum Almennt skaltu ganga úr skugga um að Sleppa sendingu rafrænnar pöntunar sé ekki valið. Hópurinn sést aðeins þegar lánardrottinn er með dreifisvæði.

    Hópurinn Rafrænn reikningur á innkaupapöntun

  3. Gefðu pöntunina út. Kerfið býr til rafrænt skjal af gerðinni Pöntun -út í stöðunni Sendist. Það gerist aðeins einu sinni fyrir hverja pöntun.

  4. Veldu Rafrænn reikningur á pöntuninni til að opna skjalið og farðu yfir línur, einingar og magn.

    Rafrænt skjal af gerðinni Pöntun -út í stöðunni Sendist

  5. Veldu Senda á rafræna skjalinu, eða sendu mörg skjöl í einu með Senda skjöl fyrir öll dreifisvæði á Vinnuskjal rafrænna reikninga.

Innkaupaskilapöntun

Sama gildir um innkaupaskilapöntun: skildu kreditreikningsnúmer lánardrottins eftir autt og gefðu skilapöntunina út. Kerfið býr til skjal af gerðinni Skilapöntun -út. Á skilapöntuninni er enginn reitur til að sleppa sendingu, svo rafrænt skjal verður alltaf til ef lánardrottinn er með dreifisvæði.

Pantanir sem voru gefnar út áður

Ef dreifisvæði var skráð á lánardrottin eftir að pantanir voru gefnar út geturðu opnað lánardrottnaspjaldið og valið Mynda rafræna reikninga. Í Frá Bókunardags. velurðu fyrsta bókunardag. Kerfið býr til rafræn skjöl fyrir innkaupapantanir lánardrottins sem eiga ekki skjal og birtir Bjó til %1 rafræna reikninga útfrá innkaupapöntunum.

Niðurstaða

Þegar sending tekst birtist Lokið. og staða skjalsins verður Sending OK!. Ef þú breytir pöntuninni eftir útgáfu en áður en hún er send geturðu valið Uppfæra öll skjöl á útleið á vinnuskjalinu til að endurgera skjalið út frá pöntuninni.

Næst geturðu fylgst með stöðu Unimaze-skeyta.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

  • Ekkert rafrænt skjal varð til við útgáfu: lánardrottinn er ekki með dreifisvæði, reikningsnúmer (eða kreditreikningsnúmer) lánardrottins er útfyllt, Sleppa sendingu rafrænnar pöntunar er valið, eða rafrænt skjal er þegar til fyrir pöntunina.
  • Skjalið er ekki tilbúið til sendingar Skjalið er ekki í stöðunni Sendist, til dæmis af því að það hefur þegar verið sent.
  • Aðgerðin var ekki framkvæmd Dreifisvæðið sendi ekki skjalið. Farðu yfir dreifisvæðið og villur skjalsins.

Öll skilaboð eru í Aðstoð.