Tímasetja vinnslu rafrænna skjala
Þessi síða er fyrir kerfisstjóra sem setja upp rafræn skjöl. Þú setur upp vinnsluraðarfærslur svo skjöl séu sótt, skráð og send sjálfkrafa og villur berist þér í tölvupósti.
Tilgangur
Kerfið vinnur skjölin á þeim tímum sem þú velur, án þess að notandi geri það handvirkt. Þrjár vinnsluraðarfærslur fylgja rafrænum skjölum:
| Hlutakenni | Hlutur | Færibreyta | Hvað gerist |
|---|---|---|---|
10041560 | RdN eDoc Batch | Tóm, eða fetch, send, unimazestatus | Sækir, skráir og sendir skjöl og uppfærir Unimaze-stöður. |
10041563 | RdN Create eDocs | Datasetningarformúla, sjálfgefið <-1D> | Býr til rafræn skjöl fyrir bókaða reikninga sem vantar þau. |
| — | Hreinsunarverk | CLEAR | Eyðir gömlum skjalagögnum. Stofnast úr uppsetningunni, sjá Setja upp sjálfvirka hreinsun gagna. Ekki stofna það handvirkt. |
Forsendur
- Dreifisvæðin sem á að vinna með eru með Sjálfvirk vinnsla valið. Vinnsluröðin sleppir öðrum dreifisvæðum.
- Ef senda á tölvupóst um villur er tölvupóstur settur upp í BC.
Heimildir
Notandinn þarf heimildasafnið EDOCS og heimild til að stofna og gangsetja vinnsluraðarfærslur
í BC. Notandinn sem keyrir færsluna þarf líka EDOCS.
Skref
Sækja, skrá og senda skjöl
-
Opnaðu Vinnsluraðarfærslur og stofnaðu nýja færslu sem keyrir hlut
10041560(RdN eDoc Batch). -
Veldu færibreytu:
- Tóm: kerfið hreinsar almennar villur, sækir skjöl, sendir tilbúin skjöl, skráir öll innkomin skjöl sem BC-skjöl og uppfærir Unimaze-stöður, í þessari röð.
fetch: sækir skjöl og skráir þau sem BC-skjöl, sjá Skrá skjal í BC.send: sendir skjöl í stöðunni Sendist, sjá Senda rafrænan reikning.unimazestatus: uppfærir stöðu sendra skjala hjá Unimaze, sjá Staða skeyta hjá Unimaze. Unimaze staða frá dags. í uppsetningunni takmarkar hvaða skjöl eru uppfærð.
Orðin eru ekki hástafanæm og má sameina, til dæmis
send;unimazestatus. Ef ekkert þeirra er í færibreytunni stöðvast keyrslan með þessari villu:Ógild færibreyta: %1. Studdar færibreytur eru: fetch, send, unimazestatus. Færibreytan er ekki hástafanæm og getur innihaldið fleiri en eitt ræsingarorð. -
Veldu endurtekningu og keyrslutíma og stilltu færsluna á Tilbúið.
Til dæmis má keyra eina færslu með fetch á klukkutíma fresti og aðra með
send;unimazestatus á 15 mínútna fresti.
Búa til rafræn skjöl sem vantar
Rafrænt skjal verður til um leið og reikningur er bókaður á viðskiptamann með dreifisvæði. Þessi færsla grípur aðeins reikninga sem fóru fram hjá, til dæmis bókaða áður en dreifisvæði var sett á viðskiptamanninn eða af notanda án aðgangs að rafrænum skjölum.
- Stofnaðu færslu sem keyrir hlut
10041563(RdN Create eDocs). - Settu í færibreytuna hve langt aftur á að leita, til dæmis
<-7D>. Tóm færibreyta þýðir<-1D>. Ef mínusinn vantar leitar kerfið samt aftur í tímann. - Veldu endurtekningu, til dæmis daglega, og stilltu færsluna á Tilbúið.
Færslan fer í gegnum alla viðskiptamenn með Dreifisvæði og býr til rafrænt skjal í stöðunni
Sendist fyrir bókaða sölu- og þjónustureikninga og kreditreikninga á tímabilinu sem eiga ekki
rafrænt skjal. Næsta keyrsla með send sendir þau.
Tölvupóstur um villur
-
Opnaðu Uppsetning rafrænna reikninga og farðu í flokkinn Villur.
-
Veldu Senda tölvupósta v. villna og skráðu netföng í Email fyrir viðtakanda villuskilaboða. Ógilt netfang stöðvar keyrsluna.

Eftir hverja keyrslu á 10041560 sendir kerfið tölvupóst ef almennar villur komu upp, það er
villur sem tilheyra engu einstöku skjali, til dæmis tengivillur. Efnið er
%1 villur fundust í Rafrænum Reikningum. Ef engar slíkar villur eru er enginn póstur sendur.
Pósturinn notar tölvupóstsviðmiðið RdN eDocs.
Staðfesta
- Opnaðu vinnsluraðarfærsluna eftir fyrstu keyrslu og skoðaðu stöðu og villur.
- Opnaðu vinnuskjal rafrænna reikninga og athugaðu að ný skjöl hafi verið sótt eða send.
- Ef ekkert gerist, athugaðu Sjálfvirk vinnsla á dreifisvæðinu og villur. Sjá líka Aðstoð.