Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Setja upp rafræna reikninga með aðstoð

Kerfisstjóri sem setur rafræna reikninga upp í fyrsta sinn fær hér grunnuppsetninguna í einni leiðsögn.

Tilgangur

Leiðsögnin eDoc Uppsetning með aðstoð leiðir þig í gegnum fyrstu uppsetningu rafrænna reikninga: dreifisvæði, afrúnnunarlykil, sjálfgefinn bókunartexta og hvort sérstakar númeraseríur eru notaðar. Allt sem þú slærð inn vistast strax, svo þú getur hætt hvenær sem er og haldið áfram síðar. Aðrar stillingar eru á uppsetningarspjaldinu.

Forsendur

  • Notandanafn og lykilorð frá skeytamiðlara (Unimaze, InExchange eða Deloitte).
  • Fjárhagslykill fyrir afrúnnun.
  • Ef nota á sérstakar númeraseríur þurfa þær að vera til eða þú stofnar þær í leiðsögninni.

Heimildir

Notandinn þarf heimildasafnið EDOCS. Leiðsögnin athugar við opnun hvort fyrirtækið hafi aðgang að eDocs í App Center.

Skref

  1. Leitaðu að Uppsetning með hjálp og veldu Setja upp Rafræna Reikninga frá Rue de Net. Leiðsögnin opnast á skrefinu Velkomin.

    Þegar leiðsögnin opnast stofnar hún uppsetningarfærsluna ef hún er ekki til, og skattflokkana Z (0%), AA (11%) og S (24%) ef þeir eru ekki til. Sjá skattflokka.

    Fyrsta skref leiðsagnarinnar eDoc Uppsetning með aðstoð, Velkomin

  2. Veldu Áfram. Í Uppsetning dreifisvæða sérðu lista yfir dreifisvæði með dálkunum Kóði, Tegund, eSkjal sjálfgefinn staðall og Auðkenndur. Listinn er ekki breytanlegur.

  3. Veldu Búa til nýtt dreifisvæði. Glugginn eDoc auðkenning dreifisvæða opnast. Veldu Tegund og eDoc sjálfgefið staðall, breyttu Kóði ef þú vilt og sláðu inn Notandanafn og Dreifisvæðalykilorð. Veldu Í lagi. Fyrir Unimaze, InExchange og Deloitte er spurt „Viltu prófa tenginguna núna?“. Veldu Já til að prófa tenginguna strax. Endurtaktu fyrir hvert dreifisvæði. Sjá dreifisvæði.

  4. Veldu Áfram. Í Sérstillingar rafrænna reikninga skaltu velja:

    • Fjárhagslykill afrúnnunar: lykillinn sem afrúnnunarmismunur er bókaður á.
    • Sjálfg. bókunartexti: bókunarlýsing innkaupareikninga, til dæmis STANDARD. Sjá uppsetningu bókunarlýsingar.
    • Sérstök númerasería fyrir rafræna reikninga: ef þetta er valið birtist næsta skref. Ef ekki eru sömu númeraseríur notaðar fyrir öll innkaupaskjöl.
  5. Ef þú valdir sérstakar númeraseríur skaltu velja Áfram og fylla út No. Reikningar, No. Kreditreikningar, No. Bókaðir Reikningar og No. Bókaðir kreditreikninga í Númeraseríur rafrænna reikninga.

  6. Veldu Áfram. Samantekt sýnir eina línu fyrir hvern hluta uppsetningarinnar. Sjá töfluna hér á eftir.

  7. Veldu Ljúka. Leiðsögnin er merkt lokið og glugginn lokast. Ljúka athugar ekki hvort uppsetningin sé fullkláruð, svo farðu yfir línur merktar ✖ áður en þú velur Ljúka.

Dæmi: Dæmi ehf. stofnar dreifisvæðið UNIMAZE af tegundinni Unimaze vefþj. með staðlinum BII, prófar tenginguna, velur afrúnnunarlykil og STANDARD og sleppir sérstökum númeraseríum. Samantektin sýnir þá eingöngu ✔.

Línur í samantekt

LínaÞýðing
✔ Uppsetning dreifisvæðaAð minnsta kosti eitt dreifisvæði er til. Nöfn þeirra fylgja.
✖ Ekkert dreifisvæði valið. Velja þarf að minnsta kosti eittEkkert dreifisvæði er til. Farðu til baka og veldu Búa til nýtt dreifisvæði.
✔ Öll dreifisvæði stóðu prófiðTengingarpróf allra dreifisvæða tókst.
✖ Eitt eða fleiri dreifisvæði ekki prófuð eða misheppnaðist tengingarprófPrófaðu tenginguna á dreifisvæðinu og leiðréttu auðkenni.
⚊ Dreifisvæði ekki prófuðEkkert dreifisvæði hefur verið prófað.
✔ Sérstillingar rafrænna reikninga útfylltAfrúnnunarlykill og bókunartexti eru útfyllt.
✖ Sérstillingar rafrænna reikninga vantar reitiFjárhagslykill afrúnnunar eða Sjálfg. bókunartexti er tómur.
✖ Stillingar rafrænna reikninga ókláruð - Vantar reiti í EDI UppsetninguDreifisvæði með kóðann EDI er til en X400 Pósthólf eða EDI dreifingaraðili er tómt á uppsetningarspjaldinu. Fylltu reitina út þar; leiðsögnin sýnir ekki EDI-skrefið.
✔ Sérstakar númeraseríur valdar fyrir rafræna reikningaSérstök númerasería fyrir rafræna reikninga er valið.
✔ Sömu númeraseríur verða notaðar fyrir alla reikningaSérstök númerasería fyrir rafræna reikninga er ekki valið.

Staðfesta

  • Opnaðu Öll dreifisvæði rafrænna reikninga og athugaðu að dreifisvæðin séu til og Notandanafn vistað og Lykilorð vistað séu valin.
  • Opnaðu uppsetningarspjaldið og athugaðu Fjárhagslykill afrúnnunar og Sjálfg. Bókunartexti.

Næst skaltu stilla kennitölureiti og auðkenni, úthluta dreifisvæði viðskiptamönnum og setja upp vinnsluraðarfærslu.