Setja upp sjálfvirka hreinsun gagna
Þessi síða er fyrir kerfisstjóra sem vilja halda gagnagrunninum litlum. Þú stillir hve lengi skrár rafrænna skjala eru geymdar og kerfið eyðir þeim síðan sjálfkrafa.
Tilgangur
Vistaðar skrár á bak við rafræn skjöl taka pláss í gagnagrunninum löngu eftir að skjölin hafa verið afgreidd. Með hreinsunarverkinu eyðir kerfið þessum skrám sjálfkrafa einu sinni á sólarhring, eftir varðveislutíma sem þú velur. Rafrænu skjölin sjálf og BC-skjölin haldast.
Forsendur
- Rafrænir reikningar eru settir upp.
- Þú hefur ákveðið hve lengi skrárnar eiga að geymast.
Heimildir
Notandinn þarf heimildasafnið EDOCS og heimild til að stofna og gangsetja vinnsluraðarfærslur
í BC. Án hennar verður færslan til en fer ekki af stað.
Skref
-
Opnaðu Uppsetning rafrænna reikninga og farðu í flokkinn Geymsla.
-
Undir Stillingar hreinsunarverks stillirðu:

Reitur Áhrif Geymsla rafrænna skjala á útleið Eyða: skrám útsendra skjala í stöðunni Sending OK! er eytt. Geyma: þeim er ekki eytt. Geymsla rafrænna skjala á innleið Eyða: skrám móttekinna skjala er eytt ef skjalið er í stöðunni Flutt í BC skjal og BC-skjalið hefur verið bókað. Geyma: þeim er ekki eytt. Varðveislutími Rafrænna Skjala (í dögum) Aðeins skrám sem eru eldri en þessi fjöldi daga er eytt. 0 þýðir að engu er eytt eftir varðveislutíma. Ef báðar geymslustillingarnar eru Geyma eða varðveislutíminn er 0 birtist Vinsamlegast athugið að engu verður eytt miðað við núverandi stillingar hreinsunarverks.
-
Veldu Virkja eDoc Clearance vinnsluraðarfærslu. Kerfið spyr: Þú ert að virkja hreinsunarverkið. Óþarfa gögnum á bak við rafræna reikninga verður eytt úr gagnagrunninum í samræmi við stillingar hreinsunarverksins. Viltu halda áfram? Svaraðu Já.
-
Kerfið stofnar vinnsluraðarfærslu með færibreytunni
CLEAR. Hún keyrir alla daga og fyrst kl. 00:01 næsta dag, með allt að 10 tilraunum og 60 sekúndum á milli. Færslan er stofnuð í biðstöðu og síðan gangsett. Þá kemur önnur af þessum spurningum:- Það tókst að búa til og gangsetja vinnsluraðarfærsluna. Viltu skoða vinnsluraðarfærsluna núna?
- Hreinsunarvinnsluraðarfærslan var búin til en ekki náðist að gangsetja hana, líklega vegna vöntun á notandaleyfi. Færsluna þarf stjórnandi að endurræsa svo hún sé gangsett að fullu. Viltu skoða vinnsluraðarfærsluna núna? Þá er færslan enn í biðstöðu. Notandi með heimild þarf að endurræsa hana.
Óháð stillingunum í skrefi 2 eyðir verkið alltaf skjalagögnum sem tilheyra engu rafrænu skjali.
Til að slökkva á hreinsun tekurðu hakið úr Virkja eDoc Clearance vinnsluraðarfærslu. Þá eyðir kerfið vinnsluraðarfærslunni.
Staðfesta
- Í Geymsla sýnir Staða hreinsunarverks Tilbúin. Gangsett. í grænu þegar verkið er rétt sett upp. Ekki tilbúin. eða Ekki gangsett. í rauðu þýðir að færslan keyrir ekki.
- Veldu Ýttu hér til að skoða hreinsunarvinnsluraðarfærsluna.. til að opna færsluna og skoða síðustu keyrslu og villur.
- Ef eitthvað stöðvast, sjá Aðstoð.