Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Skilgreining gagnaskipta

Skilgreiningar gagnaskipta segja BC hvernig á að lesa XML-skrár rafrænna skjala á innleið: hvaða hlutar skráarinnar eru línur og hvaða gildi fara í hvaða reit. eDocs setur upp sex skilgreiningar sem eru notaðar sjálfkrafa.

Yfirlit

Skilgreiningarnar eru í BC-listanum fyrir skilgreiningar gagnaskipta (Data Exchange Definitions). Þær eru allar af tegundinni Generic Import og skráargerðin er XML.

KótiHeiti
EDOCINVOICEEdoc Invoice - BII TS-136 Reikningur
EDOCINVOICETS236Edoc Invoice - BII TS-236 Reikningur
EDOCCREDITNOTEEdoc CreditNote - BII TS-137 Kreditreikningur
EDOCCREDITNOTETS237Edoc CreditNote - BII TS-237 Kreditreikningur
EDOCORDEREdoc BII Order - TS-138 Pöntun
EDOCORDER236Edoc Order - Peppol v3 Pöntun

Skilgreiningunum er eytt og þær lesnar inn aftur þegar eDocs er sett upp eða uppfært, og þegar Keyra uppsetningarkóða handvirkt er valið á Uppsetning rafrænna reikninga. Breytingar sem þú gerir á þeim hverfa því við næstu uppfærslu. Ef skilgreiningu vantar eða hún er biluð lagar Keyra uppsetningarkóða handvirkt hana.

Skilgreiningar gagnaskipta fyrir rafræna reikninga

Val á skilgreiningu

Við innlestur velur kerfið skilgreiningu eftir rót XML-skrárinnar:

Rót skráarSkilgreining
Invoice með UBLVersionID 2.0EDOCINVOICE
Invoice, önnur útgáfaEDOCINVOICETS236
CreditNote með UBLVersionID 2.0EDOCCREDITNOTE
CreditNote, önnur útgáfaEDOCCREDITNOTETS237
Order á Peppol v3EDOCORDER236
Order, annaðEDOCORDER

Ef engin skilgreining finnst birtist villan „Engin skilgreining gagnaskipta fyrir tegund“. Keyrðu þá Keyra uppsetningarkóða handvirkt.

Línuskilgreiningar

Hver skilgreining hefur línuskilgreiningar, eina fyrir hvern hluta skjalsins. EDOCINVOICETS236 hefur til dæmis INVOICEHDR (haus), INVOICEATTACH (viðhengi), INVOICEHDRREF, INVOICELINE (línur), INVOICELOC, INVOICEPAYEE, INVOICESUPP (seljandi), INVOICECUST (kaupandi), INVOICETAX (skattalínur), INVOICEITEMPROP, INVOICELINEREF og INVOICELINEAC.

ReiturHvað hann gerirHvenær á að breytaSjálfgefið
Tegund línu (Line Type)Hvort línan er haus, lína eða annað.Aldrei.Úr uppsetningu
KóðiAuðkenni línuskilgreiningarinnar.Aldrei.Úr uppsetningu
HeitiLýsing á hlutanum.Aldrei.Úr uppsetningu
Gagnalínumerki (Data Line Tag)XPath að XML-hnútnum sem hver lína er lesin úr.Aldrei.Úr uppsetningu
Nafnabil (Namespace)XML-nafnabil skjalsins.Aldrei.Úr uppsetningu
Yfirkóði (Parent Code)Línuskilgreiningin sem þessi lína heyrir undir, t.d. heyra línur undir haus.Aldrei.Úr uppsetningu

Aðgerðin Field Mapping sýnir í hvaða reiti í töflum eDocs dálkarnir eru lesnir.

Dálkskilgreiningar

Dálkskilgreiningar segja hvaða gildi eru lesin úr hverjum hluta.

ReiturHvað hann gerirHvenær á að breytaSjálfgefið
Dálknúmer (Column No.)Númer dálksins innan línuskilgreiningarinnar.Aldrei.Úr uppsetningu
HeitiLýsing á gildinu.Aldrei.Úr uppsetningu
Tegund gagna (Data Type)Hvort gildið er texti, dagsetning eða tala.Aldrei.Úr uppsetningu
Slóð (Path)XPath að gildinu, t.d. /Invoice/cac:AccountingCustomerParty/cac:Party/cbc:EndpointID.Aldrei.Úr uppsetningu

Sækja skráaskipan

Aðgerðin Get File Structure í BC les skipan XML- eða JSON-skrár inn í línu- og dálkskilgreiningar. Ekki þarf að nota hana fyrir skilgreiningar eDocs, því þær eru settar upp í heild.

ReiturHvað hann gerir
Skráargerð (File Type)XML eða Json.
Slóð (Path)Skráin sem skipanin er lesin úr.
Kóði skilgreiningar gagnaskiptaSkilgreiningin sem skipanin er lesin inn í.
Kóði línuskilgreiningarLínuskilgreiningin sem skipanin er lesin inn í.