Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Nota afhendingaraðsetur á rafrænum sölureikningi

Fyrir þá sem senda rafræna reikninga til viðskiptamanna með marga afhendingarstaði: hér sérðu hvernig rétti afhendingarstaðurinn kemst á reikninginn.

Tilgangur

Þegar viðskiptamaður er með fleiri en einn afhendingarstað getur rafræni reikningurinn sýnt hvert varan fór. Til þess skráirðu GLN á afhendingaraðsetrið. Reikningurinn er alltaf sendur á dreifisvæði viðskiptamannsins sem reikningurinn færist á; ekki er hægt að velja annað dreifisvæði eftir afhendingaraðsetri.

Forsendur

Skref

  1. Opnaðu Stillingar á Rafrænum Reikningum viðskiptavinar og finndu viðskiptamanninn, til dæmis Prófun hf.

  2. Veldu Sendist-Til Aðsetur, eða smelltu á töluna í Fjöldi afhendingaraðsetra. Síðan Stillingar Rafrænna Reikninga fyrir Afhendingaraðsetur opnast með kóða og GLN hvers aðseturs.

    Síðan Sendist-Til Aðsetur fyrir Prófun hf.

  3. Skráðu GLN afhendingarstaðarins í línu aðsetursins. Þú getur líka skráð GLN beint á spjaldi afhendingaraðsetursins.

  4. Veldu afhendingaraðsetrið á sölureikningnum og bókaðu hann.

  5. Opnaðu rafræna skjalið og veldu Birta í vafra til að athuga afhendingarstaðinn áður en þú sendir reikninginn.

Niðurstaða

Rafræni reikningurinn fær afhendingarstað með auðkenni sem er valið svona:

Á reikningnumAuðkenni afhendingarstaðar
Afhendingaraðsetur með GLNGLN afhendingaraðsetursins
Afhendingaraðsetur án GLNGLN viðskiptamannsins
Ekkert afhendingaraðsetur, en varan er seld öðrum viðskiptamanni en reikningurinn færist áGLN viðskiptamannsins sem varan er seld til

Til dæmis sendir Dæmi ehf. reikning á aðalskrifstofu Prófunar hf., en afhendingarstaðurinn á reikningnum er GLN verslunarinnar sem fékk vöruna.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

  • Ekkert rafrænt skjal varð til: viðskiptamaðurinn sem reikningurinn færist á er ekki með dreifisvæði. Skráðu dreifisvæði og búðu til rafrænt skjal úr reikningnum.
  • Rangt GLN á reikningnum: athugaðu GLN á afhendingaraðsetrinu og hvort rétt aðsetur var valið á reikningnum. Ef reikningurinn hefur ekki verið sendur geturðu valið Endurgera á rafræna skjalinu eftir að þú lagar GLN.

Öll skilaboð eru í Aðstoð.