Vinna úr villum í rafrænu skjali
Þegar móttekið rafrænt skjal er athugað skráir kerfið villu fyrir hvert atriði sem kemur í veg fyrir að hægt sé að skrá það í BC. Hér sérðu hvar villurnar birtast, hvað þær þýða og hvernig þú lagar þær.
Sviðsmynd
Dæmi ehf. sótti í morgun tíu reikninga. Þrír fengu stöðuna Ath. með villum!, meðal annars reikningur frá Prófun hf. Bókarinn vill finna orsökina, laga hana og skrá reikningana í BC.
Áður en þú byrjar
- Skjölin hafa verið sótt og athuguð; sjá Taka á móti rafrænum innkaupareikningi.
- Þú hefur aðgang að vörpunum og spjöldum lánardrottna, vara og viðskiptamanna.
Skref fyrir skref
-
Opnaðu Vinnuskjal rafrænna reikninga og veldu Aðeins með villu til að sjá aðeins skjöl með villum.
-
Veldu Allar Villur til að opna Villulisti rafrænna reikninga. Þar sést Nr. skjals og Villutexti fyrir hverja villu í öllum skjölum.
- Skjal opnar rafræna skjalið sem villan tilheyrir.
- Nánar um villuna sýnir nánari upplýsingar ef þær eru til; annars birtist Það eru engar nánari upplýsingar um þessa villu.

-
Á spjaldi rafræna skjalsins sýnir Villur fjölda villna. Smelltu á töluna til að sjá villur þessa skjals.
-
Finndu villuna í töflunni hér fyrir neðan og lagaðu orsökina.
-
Veldu Athuga skjal (
F9) á spjaldinu, eða Athuga skjöl á vinnuskjalinu. Kerfið eyðir gömlu villunum og athugar skjalið aftur.
Villur og lausnir
| Villa | Orsök | Lausn |
|---|---|---|
| Reikningstegundin %1 ekki stutt! | Reikningurinn er ekki venjulegur reikningur (tegund 380). | Hafðu samband við birginn. Ekki er hægt að skrá reikninginn. |
| Ekki tókst að varpa viðskiptavini … á lánadrottinn. | Enginn lánardrottinn fannst með kennitölu birgisins. | Veldu Stofna lánadrottin á spjaldinu, eða stofnaðu lánardrottin eða vörpun. |
| Ekki tókst að varpa viðskiptavini … á lánadrottinn afþví að lánadrottinn er ekki til. | Vörpun vísar í lánardrottinsnúmer sem er ekki til. | Leiðréttu vörpunina. |
| Ekki tókst að varpa viðskiptavini … á viðskiptamann. | Enginn viðskiptamaður fannst fyrir mótteknu pöntunina. | Stofnaðu viðskiptamann eða vörpun. |
| Tilvísuð pöntun %1 er ekki til. | Athuga Pöntunarnúmer er valið á lánardrottni og engin innkaupapöntun er með Pöntunarnúmer skjalsins. | Leiðréttu Pöntunarnúmer, eða veldu Sleppa athugun á pöntunartilvísun. |
| Gat ekki fundið greiðanda reiknings! | Greiðanda vantar í skjalið. | Ef skjalið á heima hér skaltu velja Sleppa athugun á móttakanda. |
| Þetta skjal (Greiðandi=…) er ekki ætlað þessu fyrirtæki (Kt.=…)! | Kennitala greiðanda er ekki kennitala fyrirtækisins. | Athugaðu hvort skjalið eigi heima í öðru fyrirtæki. Annars skaltu velja Sleppa athugun á móttakanda. |
| Ekki tókst að varpa vöru %1 (%2). Engin vara er til með samsvarandi vörunr. lánadr. | Engin vara er með vörunúmer birgisins og engin vörpun er til. | Skráðu vörunúmer lánardrottins á vöruna eða búðu til vörpun. |
| Ekki tókst að varpa vöru %1 (%2). Engin vara er til með samsvarandi vörunr. | Vara á mótteknu pöntuninni finnst ekki. | Búðu til vörpun fyrir vörunúmer viðskiptamannsins. |
| Gat ekki varpað mælieiningu | Mælieining línunnar finnst ekki. | Búðu til vörpun fyrir mælieininguna. |
| Mismunur í VSK%. Gildi á innleið er %1 í staðinn fyrir %2. | VSK á línunni passar ekki við VSK-uppsetningu vörunnar eða fjárhagslykilsins. | Leiðréttu vörpunina eða VSK-flokkinn. Ef mismunurinn er réttur skaltu velja Sleppa VSK prósentu athugun. |
| Ekki tókst að varpa aukaskjali … til birgðageymslu. | Afhendingarstaður skjalsins er ekki varpaður á birgðageymslu. | Búðu til vörpun fyrir afhendingarstaðinn. |
| Reikningaafrúnun upp á %1 er of mikill. | Mismunur á upphæðum er meiri en Mesta afrúnnunarupphæð (kr.). | Farðu yfir línurnar, eða veldu Sleppa afrúnunarathugun. |
| Vörpun vantar fyrir eSkjals vöru: %1 | Vöru vantar vörpun við skráningu. | Búðu til vörpun. |
| Mælieiningu %1 vantar fyrir vörunúmer %2 | Mælieiningin er ekki til á vörunni. | Bættu mælieiningunni við vöruna. |
Reitirnir Sleppa athugun á móttakanda, Sleppa VSK prósentu athugun, Sleppa afrúnunarathugun og Sleppa athugun á pöntunartilvísun eru í flýtiflipanum Athuganir á spjaldinu og gilda aðeins fyrir það skjal.
Niðurstaða
Þegar engar villur eru eftir verður staðan Athugað OK! og þú getur skráð skjalið í BC.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
- Sama villan kemur aftur eftir athugun: orsökin hefur ekki verið löguð. Athugaðu til dæmis hvort vörpunin sé fyrir réttan birgi.
- Villa birtist við skráningu en ekki við athugun: sumar villur, til dæmis afrúnun, finnast aðeins þegar BC skjalið er búið til. Skjalið fær þá stöðuna Ath. með villum!
- Villan er ekki í töflunni: allar villur og skilaboð eru í Aðstoð.