Hoppa yfir í efnið

Bankanotendur

Setja upp bankanotendur:

Hver Dynamics 365 Business Central notandi getur sett upp sinn eigin bankanotanda auðveldlega.

Innskráning Cloud

Opna "Þínir RdN bankanotendur", velja "Nýtt" og fylgja leiðbeiningum.

alt text

Notandi velur bankaþjónustu sem hann er með aðgang að og skráir svo notandanafn í banka (sama og hann notar í heimabanka) og lykilorð. Í framhaldi velur hann "Í lagi" og fær svo jákvætt svar.

alt text

Þá lítur skráning svona út í RdN bankanotendur:

alt text

Innskráning rafræn skilríki

Innskráning með rafrænum skilríkjum kemur ekki í staðinn fyrir innskráningu cloud. Hinsvegar er þörf á henni fyrir sumar aðgerðir bankana eins og t.d kvittanir í bókhald og kreditkorta afstemmingu hjá sumum bönkunum.

Við styðjum aðeins innskráningu með rafrænum skilríkjum fyrir Íslandsbanka eins og er.

alt text

Þegar ýtt er á aðgerðina "Innskráning með rafrænum skilríkjum" opnast gluggi þar sem notandi getur sett inn símanúmerið sitt.

alt text

Hér er sett inn símanúmer og farið eftir hefðbundinni inskráningu með rafrænum skilríkjum. Þegar að því ferli er lokið fær notandann upp nýjann skjá.

alt text

Hér skal ýta á "Samþykkja"

Þegar að glugginn hefur lokast sjálfur þá á að hafa fyllst út í reitinn "Rafræn skilríki auðkennd"

alt text