Stillingar - Kröfur
Stillingar kröfugerð

| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Kröfu númeraröð | Skilgreinir hvaða númeraröð á að nota fyrir kröfur. Þarf að vera nákvæmlega 6 stafir að lengd. |
| Kröfubunka nr. röð | Skilgreinir hvaða númeraröð á að nota fyrir kröfubunka. |
| Lágmarks upphæð kröfu | Skilgreinir lágmarks upphæð sem verður að vera á sölureikningi til að krafa sé búin til. |
| Tilkynningargjöld | Skilgreinir tilkynningargjald kröfunnar. Þetta gjald bætist við upprunalega upphæð. |
| Annar kostnaður | Skilgreinir annan kostnað sem á að bætast við á greiðsluseðli. |
| Athugasemd á greiðsluseðli | Ef fyrirtæki vill láta birta sérstaka athugasemd á greiðsluseðli þá er fyllt út í þennan reit. |
| Innheimtuaðili | Skilgreinir bankareikning sem er sjálfgefinn innheimtuaðili. |
| Gjalddagi | Skilgreinir eftir hversu marga daga gjalddagi á kröfu er. |
| Lágmarks tímabil gjaldaga | Stysta tímabil frá stofnun kröfu til gjalddaga. |
| Niðurfellingar dagur | Skilgreinir eftir hve marga daga krafa er felld niður sjálfkrafa í banka ef hún hefur ekki verið greidd. |
| Birta viðvörun þegar aðgerð er valin | Birtir viðvörun um að aðgerð hafi verið valin á kröfu. |
| Framkvæma aðgerð strax | Framkvæmir aðgerðir og sendir í banka um leið og þær eru valdar á hverri kröfu fyrir sig. |
| Hlutagreiðsla leyfileg sjálfkrafa | Ef hakað er í þennan reit, þá skilar það sér á öllum stofnuðum kröfum sem merkjast svo í banka. |
| Kennitölureitur viðskiptamanns | Ef kennitölureitur á viðskiptamannaspjaldi er ekki sama og Nr. þá er hægt að skilgreina hér hvaða reitur inniheldur kennitölu. |
| Hámarksstærð kröfubunka | Í hverjum kröfubunka mega ekki vera fleiri en 5000 kröfur þegar þær eru sendar í bankann. |
Stillingar kröfugreiðslur

| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Heiti bókarsniðmáts | Skilgreinir bókarsniðmát fyrir inngreiðslubók þar sem kröfugreiðslur eru sendar til bókunar. |
| Heiti bókarkeyrslu | Skilgreinir nafn á bókarkeyrslu tengdu bókarsniðmáti. |
| Númeraröð greiðslna | Skilgreinir hvaða númeraröð á að nota fyrir greiðslur á kröfum. |
| Númeraröð fjármagns | Skilgreinir hvaða númeraröð á að nota fyrir greiðslur á vöxtum sem safnast hafa á kröfur. |
| Fjárhagsreikningur vaxta | Skilgreinir hvaða fjárhagsreikning vextir bókast á í inngreiðslubók. |
| Fjárhagsreikningur gjalda | Skilgreinir hvaða fjárhagsreikning gjöld bókast á í inngreiðslubók. |
| Fjárhagsreikningur fjármagnstekjuskatts | Skilgreinir hvaða fjárhagsreikning fjármangstekjuskattur bókast á í inngreiðslubók. |
| Mótreikningur gjalda | Skilgreinir á móti hvaða fjárhagsreikningi innheimtukostnaður bókast. |
| Mótreikningur vaxta | Skilgreinir á móti hvaða fjárhagsreikningi vextir bókast. |
| Forskeyti númers utanaðkomandi fylgiskjals f. vexti | Ekki má nota sama fylgiskjalsnúmer á fleiri en eina línu. Því er þessu forskeyti bætt við vexti. |
| Forskeyti númers utanaðkomandi fylgiskjals f. gjöld | Ekki má nota sama fylgiskjalsnúmer á fleiri en eina línu. Því er þessu forskeyti bætt við gjöld. |
| Eitt fylgiskjalsnúmer á bók | Ef hakað er við þá verður eitt fylgiskjalsnúmer á öllum færslum í inngreiðslubókinni. |
| Lýsing færslu innheldur tegund greiðslu | Ef hakað er við þá mun lýsing á kröfugreiðslu sem bókað er á viðskiptavini og fjárhag innihalda tegund greiðslu. |
| Leyfa bókun á lokaða viðskiptamenn | Ef hakað er við þá mun kerfið leyfa bókun kröfugreiðslu inn á viðskiptamann sem hefur verið merktur lokaður. |
| Sleppa öðrum kostnaði á kröfugreiðslur | Ef hakað er við þá mun öðrum kostnaði og öðrum vanskilakostnaði frá kröfugreiðslum vera sleppt þegar þær eru fluttar í útgreiðslubók. Þetta á til dæmis við þegar innheimtuþjónusta leggur vanskilagjald á kröfu sem á ekki að bóka með kröfugreiðslu. |
Sjálfvirkni

| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Sækja, færa og/eða bóka | Þessi reitur er notaður í verkraðarfærslu til að sækja kröfugreiðslur sjálfkrafa. Möguleikar eru: Sækja, Sækja og færa í inngreiðslubók eða Sækja, færa í inngreiðslubók og Bóka inngreiðslubókina. |
| Fjöldi daga aftur í tímann | Þennan reit er hægt að nota í verkraðarfærslu til að skilgreina fjölda daga aftur í tímann sem kerfið á að sækja kröfugreiðslur sjálfkrafa. Skrifa skal fjölda daga í heiltölum og setja 'D' á eftir, eins og t.d. svona: 30D. |
Verkraðarfærslur - Aðgerðir krafa
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Leyfa aðgerðatillögur á lokaðar kröfur | Ef hakað er við þá leyfir kerfið aðgerðatillögur á lokaðar kröfur. |
| Sækja aðgerðatillögur á kröfur fram að dagsetningu | Ef leyft er að sækja aðgerðatillögur á lokaðar kröfur, er hægt að nota þennan reit til þess að tilgreina dagsetningu sem kerfið á að sækja aðgerðatillögur fram að. Skiljið eftir tóman reit til þess að sækja aðgerðatillögur á alla kröfuhausa. |