Bankastillingar viðskiptamanns
Á viðskiptamannaspjaldi er reitur Bankastillingar viðskiptamanns. Ef þessi reitur er fylltur út taka gildin forgang yfir gildin í glugganum Stillingar - kröfur.
Bankastillingar viðskiptamanns

| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Kóði | Kóði vegna bankastillinga. |
| Lágmarks tímabil gjalddaga | Stysta tímabil frá stofnun kröfu til gjalddaga. |
| Eindagi | Eindagi krafna, t.d. 7D fyrir 7 daga eftir gjalddaga. |
| Niðurfellingar dagur | Eftir hve marga daga krafa er felld niður sjálfkrafa í banka ef hún hefur ekki verið greidd. |
| Tilkynningargjald | Skilgreinir tilkynningargjald kröfunnar. Þetta gjald bætist við upprunalega upphæð. |
| Útprentunargjald | Skilgreinir útprentunargjald fyrir allar pappírskröfur. Þetta gjald bætist við upprunalega upphæð. |
| Pappírslaus gjöld | Skilgreinir gjöld á pappírslausum viðskiptum. Þetta gjald bætist við upprunalega upphæð. |
| Annar kostnaður | Skilgreinir annan kostnað sem á að bætast við á greiðsluseðli. |
| Lágmarks upphæð kröfu | Skilgreinir lágmarks upphæð sem verður að vera á sölureikningi til að krafa sé búin til. |
| Vanskilavextir | Hvaða vanskilavextir reiknast á kröfum. Möguleikar: Reikna vextir, Engir vextir, Sérstakur kóti. |
| Sérstakur kóti vanskilavaxta | Ef sérstakur kóti er skilgreindur í "Vanskilavextir" þarf að tilgreina kóta hér. |
| Tegund vanskilagjalds | Ekkert vanskilagjald, Gjalddagi-gildi eru upphæðir/prósentur, Eindagi-gildi eru upphæðir/prósentur. |
| Hlutagreiðsla leyfileg sjálfkrafa | Ef hakað er í þennan reit, þá skilar það sér á öllum stofnuðum kröfum sem merkjast svo í banka. |
| Fyrsti vanskilagjald | Tilgreina upphæð vanskilagjalds. |
| Seinni vanskilagjald | Tilgreina upphæð annars vanskilagjalds. |
| Dagar fyrir fyrstu vanskil | Dagafjöldi eftir gjalddaga eða eindaga þegar fyrsta vanskilagjald á að bætast við kröfu. |
| Dagar fyrir aðra vanskil | Dagafjöldi eftir gjalddaga eða eindaga þegar annað vanskilagjald á að bætast við kröfu. |