Stillingar - Afstemming

Upplýsingar
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Kóti | Er eingöngu notað ef margar uppsetningar á afstemmingu eru stofnaðar. Þá er hægt að úthluta kóta afstemmingar per bankareikning. |
| Sjálfgefinn bankareikningur | Hér er færður inn sjálfgefinn bankareikningur fyrir afstemmingu. |
| Númeraröð afstemmingar | Hér er númeraröð afstemmingar valin. Færslur sem eru jafnaðar eru fylltar út með þetta númer í reitnum "Afstemming ID". |
| Eitt jöfnunarnúmer á keyrslu | Ef hakað er í þennan reit verður eitt jöfnunarnúmer á öllum færslum þegar keyrsla er gerð. |
| Mesti leyfilegi dagsetningamunur | Þessi reitur er notaður í sjálfvirka jöfnun. Skilgreinir hver er mesti dagsetningarmunur á jöfnuðum færslum t.d. 1D fyrir 1 dagur. |
| Leyfa óöruggar uppástungur | Þessi reitur er notaður í sjálfvirka jöfnun. Skilgreinir hvort á að jafna færslur sem teljast óöruggar t.d. ef mesti leyfilegi dagsetningarmunur er 3 dagar þá telst það sem óörugg uppástunga. |
| Eitt fylgiskjalsnúmer á bók | Ef hakað er í þennan reit verður sama fylgiskjalsnúmer á öllum færslum sem færðar eru úr afstemmingu í greiðslubók. |
| Öruggur innflutningur yfirlits | Ef hakað er í þennan reit munu óstaðfestar færslur ekki vera lesnar inn frá bankanum. |
Bókhaldslyklavarpanir
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Tengja Bankafærsluflokka við bókhaldslykla | Ef hakað er í þennan reit virkjast vörpunarvirkni sem stillt hefur verið upp á móti flokkunarkótum í bókhaldslyklasíðu. |
| Flokkunarkótar í bókhaldslykla varpanir | Opnar listasíðu fyrir tengingar á milli flokkunarkóta á bankafærslum yfir í bókhaldslykla. Reitur sýnir fjölda varpana sem notandinn er búinn að stilla upp. Sjá meira um síðu hér |
Gengisjöfnun

Hér þarf að velja hvaða sniðmát og keyrslu færslubókar á að nýta til þess að bóka gengisjöfnunina.