Hoppa yfir í efnið

Afstemming kreditkorta

Hér verður farið yfir hvernig hægt sé að stemma af kreditkortafærslur út frá skrá sem er sótt hjá banka.

Kreditkort Íslandsbanki

ATH að ef að á að nota kreditkort frá Íslandsbanka þarf fyrst að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum fyrir notanda. Sjá Leiðbeiningar

Aðgerðir

1. Setja upp kreditkort:

Byrja þarf á því að stofna kreditkort í BC. Það er gert með því að smella á "Flytja inn kreditkort" í glugganum RdN Kreditkort (fundið í leitarglugga). Bankareikningur fyrir kreditkortið stofnast sjálfkrafa þegar kreditkort er stofnað.

Athugið að kerfið sækir öll kort sem að skráðir bankanotendur á aðganginum þínum hafa aðgang að. Bankanotandinn þarf að hafa aðgang að kortinu til þess að geta sótt kortið.

Sjá nánari lýsingu hér.

alt text

2. Lesa inn bankafærslur:

Opna RdN Afstemming, velja bankareikninginn sem er með kreditkortategund og svo er hægt að Lesa inn færslur alveg eins og í venjulegri afstemmingu. Sjá nánari lýsingu hér.

alt text

alt text