Opna greiðslusafn
Aðgerðin opnar kröfugreiðslur sem hafa verið settar í geymslu.

Upplýsingar
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Línurnr. | Línunúmer kröfugreiðslu í töflu. |
| Kröfunúmer | Kröfunúmer sem var greitt fyrir. |
| Eindagi | Eindagi krafna sem var greitt fyrir. |
| Reikn. færist á viðskm. | Kennitala viðskiptamanns sem fékk kröfu. |
| Upphæð | Upphæð krafna sem var greitt fyrir. |
| Áminningargjald | Upphæð áminningargjalds. |
| Vanskilagjald | Upphæð vanskilagjalds sem lagðist á kröfu. |
| Dráttarvextir | Upphæð dráttarvaxta sem lögðust á kröfu. |
| Upphæð lögð inn | Heildarupphæð greidd á kröfu (getur verið upphæð reiknings auk ýmissa gjalda og dráttarvaxta). |
| Fjármagnstekjuskattur | Upphæð fjármagnstekjuskatts sem var greiddur af dráttarvöxtum sem lögðust á kröfu. |
| Greiðslur | Upphæð greiðslna á kröfu. |
| Annar kostnaður | Upphæð annars kostnaðar sem var greiddur með kröfu (pappírlaust gjald?). |
| Annar grunnkostnaður | Upphæð annars grunnkostnaðar sem var greiddur með kröfu (pappírlaust gjald?). |
| Upph. upphaflegrar kröfu | Upphæð kröfu þegar hún var stofnuð (getur hafa breyst ef upphæð kröfu hefur breyst og krafan uppfærð svo í banka). |
| Upphæð gegn kröfu | Greidd upphæð mínus öll aukagjöldin og kostnaður. |
| Gjalddagi | Gjalddagi krafna. |
| Dagsetning færslu | Dagsetning kröfugreiðslu. |
| Bókunardagsetning | Bókunardagsetning fylgiskjals sem krafa byggist á. |
| Þín tilvísun | Kennitala viðskiptamanns er sett inn sem tilvísun. |
| Kröfuhafi | Kennitala kröfuhafa (úr stofngögn fyrirtækisins). |
| Kenni viðskiptamanns | Kennitala viðskiptamanns. |
| Auðkenni | Innheimtuauðkenni fyrir kröfuna. |
| Banki nr. | Númer útibús bankareiknings þar sem krafa var stofnuð. |
| Höfuðbók | Höfuðbók sem var notuð til að stofna kröfu. Kemur úr reitnum "Höfuðbók" í Stillingar - Kröfur. |
| Innheimtuaðili | Bankareikningur sem krafa var stofnuð í. |
| Flokkunarkóti | Flokkunarkóti frá bankanum. |
| Innlausnarbanki | Banki greiðanda. |
| Bunka nr. | Bunka númer frá bankanum. |
| Reikningur | Reikningur á greiðsluseðli. Er samansett af bankanúmeri, höfuðbók og kröfunúmeri. |
| Innflutningstími | Dagsetning sem kröfugreiðsla var sett í geymslu. |
| Kröfubunkanúmer | Númer kröfubunka sem krafa var stofnuð í. |