| Ekki hreyfa færslu |
Notað fyrir kröfugreiðslur sem hafa verið færðar í inngreiðslubók og bókaðar í fjárhag. Hakað sjálfkrafa þegar kröfugreiðsla hefur verið bókuð þannig að kerfið bóki ekki tvisvar sömu kröfugreiðslu. |
| Línurnr. |
Línunúmer kröfugreiðslu í töflu. |
| Kröfunúmer |
Kröfunúmer sem var greitt fyrir. |
| Eindagi |
Eindagi krafna sem var greitt fyrir. |
| Reikn. færist á viðskm. |
Kennitala viðskiptamanns sem fékk kröfu. |
| Upphæð |
Upphæð krafna sem var greitt fyrir. |
| Áminningargjald |
Upphæð áminningargjalds. |
| Vanskilagjald |
Upphæð vanskilagjalds sem lagðist á kröfu. |
| Dráttarvextir |
Upphæð dráttarvaxta sem lögðust á kröfu. |
| Upphæð lögð inn |
Heildarupphæð greidd á kröfu (getur verið upphæð reiknings auk ýmissa gjalda og dráttarvaxta). |
| Fjármagnstekjuskattur |
Upphæð fjármagnstekjuskatts sem var greiddur af dráttarvöxtum sem lögðust á kröfu. |
| Greiðslur |
Upphæð greiðslu á kröfu fyrir utan gjöld. |
| Annar kostnaður |
Upphæð annars kostnaðar sem var greiddur með kröfu svo sem seðilgjald. |
| Annar grunnkostnaður |
Upphæð annars vanskilakostnaðar sem var greiddur með kröfu. |
| Upph. upphaflegrar kröfu |
Upphæð kröfu þegar hún var stofnuð (getur hafa breyst ef upphæð kröfu hefur breyst og krafa uppfærð í banka). |
| Upphæð gegn kröfu |
Greidd upphæð mínus öll aukagjöldin og kostnaður. |
| Gjalddagi |
Gjalddagi krafna. |
| Dagsetning færslu |
Dagsetning kröfugreiðslu. |
| Bókunardagsetning |
Bókunardagsetning fylgiskjals sem krafa byggist á. |
| Tilvísun yðar |
Kennitala viðskiptamanns er sett inn sem tilvísun. |
| Kröfuhafi |
Kennitala kröfuhafa (úr stofngögnum fyrirtækis). |
| Nr. kúnna |
Kennitala viðskiptamanns sem greiðir kröfu. |
| Auðkenni |
Innheimtuauðkenni fyrir kröfu. |
| Banki nr. |
Númer útibús bankareiknings þar sem krafa var stofnuð. |
| Höfuðbók |
Höfuðbók sem var notuð til að stofna kröfu. Kemur úr reitnum Höfuðbók í Stillingar - Kröfur. |
| Innheimtuaðili |
Bankareikningur sem krafa var stofnuð í. |
| Flokkunarkóti |
Flokkunarkóti frá bankanum. |
| Innlausnarbanki |
Banki greiðanda. |
| Bunka nr. |
Bunka númer frá bankanum. |
| Reikningur |
Reikningur á greiðsluseðli. Er samansett af bankanúmeri, höfuðbók og kröfunúmeri. |
| Lesið inn |
Dagsetning sem kröfugreiðsla var lesin inn í kerfið (úr banka). |
| Kröfubunkanúmer |
Númer kröfubunka sem krafa var stofnuð í. |